Dagatal

Pálmasunnudagur

Sunnudagur á lönguföstu — vikuleg páskahátíð kirkjunnar.

Langafasta · Vika 6

Litur dagsins er rauður — litur píslarvotta og hins Heilaga Anda.

Hvað þýðir það

Messuskylda — kaþólikkar sækja messu þennan dag.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í sunnudagsmessunni

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Við kross þinn, Jesús, jafnan vil ég mér hæli fá.Þar hellubjargið best ég finn, sem byggt ég traust get á.Það hæli er í eyðimörksvo ágæt höfn og blíð,þar sem reika' eg einn um ókunn löndgegnum angist, neyð og stríð.Ó, hjálp í sálarhrelling, ó, hæli, sem ég fann,við krossinn fagra frelsarans, þar frið ég sálu vann.Sem Jakob nætur sá í sýnupp sólar ljúkast hvel,get ég stigann séð frá krossi Krists,þar í kærleiks von ég dvel.En skammt frá krossins skugga ég skelfdur gröf sé nær,og dimm og geigvæn dauðans nótt þar drunga yfir slær.En nær mér stendur krosstákn Kristsí kærleiks ljóma fáð,eins og stjarna yfir villuveg,þar mér veitist ljós og náð.Og oft ég lít í anda Guðs einkason á krossvið dauðans berjast dimmu kvöl og dreyra renna foss.Ó, hvílíkt undur, ást og náð,sjá andans dýrsta hnoss,fyrir mig að ljúfur lausnarinnvildi líða dauða' á kross.Til kross þíns, kæri Jesús, ég kom og hlaut þar frið,því aldrei ég í huga hef það hæli' að skiljast við.Og hvað sem býður heimur mér,ég hismi met og tál,en ég hrósa mér af krossi Krists,þar Guðs kærleik vann mín sál. Amen.

Sálmur 118

Andstef · Sá mikli mannfjöldi sem kominn var til hátíðarinnar, hrópaði til Drottins: Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins. Hósanna í hæstu hæðum.

1Þakkið Drottni, því að hann er góður * því að miskunn hans varir að eilífu.

2Það mæli Ísrael * „Því að miskunn hans varir að eilífu!“

3Það mæli Arons ætt * „Því að miskunn hans varir að eilífu!“

4Það mæli þeir sem óttast Drottin * „Því að miskunn hans varir að eilífu!“

5Í þrengingunni ákallaði ég Drottin * hann bænheyrði mig og rýmkaði um mig.

6Drottinn er með mér, ég óttast eigi * hvað geta menn gjört mér?

7Drottinn er með mér með hjálp sína * og ég mun fá að horfa á ófarir hatursmanna minna.

8Betra er að leita hælis * hjá Drottni en að treysta mönnum,

9betra er að leita hælis * hjá Drottni en að treysta tignarmönnum.

10Allar þjóðir umkringdu mig * en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.

11Þær umkringdu mig á alla vegu * en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.

12Þær umkringdu mig eins og býflugur vax, brunnu sem eldur í þyrnum * en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.

13Mér var hrundið, til þess að ég skyldi falla * en Drottinn veitti mér lið.

14Drottinn er styrkur minn og lofsöngur * og hann varð mér til hjálpræðis.

15Fagnaðar– og siguróp kveður við í tjöldum réttlátra * Hægri hönd Drottins vinnur stórvirki,

16hægri hönd Drottins upphefur * hægri hönd Drottins vinnur stórvirki.

17Ég mun eigi deyja * heldur lifa og kunngjöra verk Drottins.

18Drottinn hefur hirt mig harðlega * en eigi ofurselt mig dauðanum.

19Ljúkið upp fyrir mér hliðum réttlætisins * að ég megi fara inn um þau og lofa Drottin.

20Þetta er hlið Drottins * réttlátir menn fara inn um það.

21Ég lofa þig * af því að þú bænheyrðir mig og ert orðinn mér hjálpræði.

22Steinninn sem smiðirnir höfnuðu * er orðinn að hyrningarsteini.

23Að tilhlutun Drottins er þetta orðið * það er dásamlegt í augum vorum.

24Þetta er dagurinn sem Drottinn hefur gjört * fögnum, verum glaðir á honum.

25Drottinn, hjálpa þú * Drottinn, gef þú gengi!

26Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins * frá húsi Drottins blessum vér yður.

27Drottinn er Guð, hann lætur oss skína ljós. Tengið saman dansraðirnar með laufgreinum * allt inn að altarishornunum.

28Þú ert Guð minn, og ég þakka þér * Guð minn, ég vegsama þig.

29Þakkið Drottni, því að hann er góður * því að miskunn hans varir að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Sá mikli mannfjöldi sem kominn var til hátíðarinnar, hrópaði til Drottins: Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins. Hósanna í hæstu hæðum.

Sálmur — Dn 3, 52-57 — Öll sköpunin lofi Drottin

Andstef · Með englunum og trúuðum játum vér trú vora og hrópum til Jesú Krists, sigurvegara dauðans: Hósanna í hæstu hæðum.

52„Blessaður ert þú, Drottinn, Guð feðra vorra, og lofs verður og vegsamaður og upp hafinn yfir allt að eilífu * og blessað er hið heilaga nafn dýrðar þinnar og lofs vert og upp hafið yfir allt um allar aldir.

53Blessaður ert þú í hinu heilaga musteri dýrðar þinnar * og mjög lofs verður og mjög dýrlegur að eilífu.

54Blessaður ert þú í hásæti ríkis þíns * og mjög lofs verður og upp hafinn yfir allt að eilífu.

55Blessaður ert þú, sem lítur í djúpin og situr yfir kerúbunum * og lofs verður og upp hafinn yfir allt að eilífu.

56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.

57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Með englunum og trúuðum játum vér trú vora og hrópum til Jesú Krists, sigurvegara dauðans: Hósanna í hæstu hæðum.

Sálmur 150

Andstef · Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins; friður á himni og dýrð í upphæðum.

1Hallelúja. Lofið Guð í helgidómi hans * lofið hann í voldugri festingu hans!

2Lofið hann fyrir máttarverk hans * lofið hann eftir mikilleik hátignar hans!

3Lofið hann með lúðurhljómi * lofið hann með hörpu og gígju!

4Lofið hann með bumbum og gleðidansi * lofið hann með strengleik og hjarðpípum!

5Lofið hann með hljómandi skálabumbum * lofið hann með hvellum skálabumbum!

6Allt sem andardrátt * hefur lofi Drottin! Hallelúja!

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins; friður á himni og dýrð í upphæðum.

Stuttur ritningarlestur

Sk 9, 9Fagna þú mjög, dóttirin Síon, lát gleðilátum, dóttirin Jerúsalem! Sjá, konungur þinn kemur til þín. Réttlátur er hann og sigursæll, lítillátur og ríður asna, ungum ösnufola.

Stutt svarvers

Þú hefur endurleyst oss, Drottinn, * með blóði þínu.

Þú hefur endurleyst oss, Drottinn, * með blóði þínu.

Af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.

Með blóði þínu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Þú hefur endurleyst oss, Drottinn, * með blóði þínu.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Fögnum Drottni með sálmum þegar hann kemur, skuldum til fundar við hann með söngvum og hymnum, og færum honum tilbeiðslu vora af gleði meðan vér syngjum: Lofaður sé Drottinn!

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Þegar Kristur kom inn í Jerúsalem var honum fagnað sem konungi og Messíasi. Tignum hann og lofum hann með fögnuði:Blessaður sé sá, sem kemur í nafni Drottins.Hósanna syni Davíðs, konungi eilífðar,hósanna þér sem sigraðir dauðann og myrkraöflin.Þú fórst upp til Jerúsalem til að þjást og gekkst þannig til dýrðar þinnar,leiddu Kirkju þína til hinnar himnesku páskahátíðar.Þú gjörðir kross þinn að lífsins tré,gefðu þeim ávöxt þess sem endurfæddir verða í skírninni.Frelsari mannkynsins, þú komst til að frelsa syndara,leið inn í ríki þitt alla þá sem hafa trú, von og kærleika.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi eilífi Guð, þú lést lausnara vorn taka á sig hold og þola krossfestingu mannkyni til fyrirmyndar um auðmýkt. Veit þú mildur, að vér verðskuldum að vitna um þolgæði hans og öðlast hlutdeild í upprisu hans, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Fyrst boðar Guð sitt blessað náðarorðið,svo býður hann sitt ríka kærleiksborðiðog sendir einkason sinn til að kallatil sinnar kvöldmáltíðar alla – alla.En fyrsti' og annar afsökunar biðja,og eins fer fyrir boðsmanninum þriðja,og það er kunngjört Herra hefðarríkum,að heimsins börn ei sinni boðskap slíkum.Þá spyr hann að, hvort veikir ekki vilji,hvort volaðir og blindir ekki skilji,þá býður hann þeim bjargarlausu' og snauðu,þeim breysku, særðu, föllnu, týndu' og dauðu.Hvert orð er sterkast? Orðið hans, er kallar.Sjá, einnig dauðir ganga lífs til hallar,þeir koma' í hópum, heimurinn sem smáir,en Herrann segir: "Þeir eru' enn of fáir."Hann býður ennþá: "Farið, laðið, leiðið,og leitið, kallið, biðjið, þrýstið, neyðið,mitt kærleiks djúp á himins víðar hallir,í húsi mínu rúmast allir – allir."Fyrst kallar Guð, en bregðist þú því boði,þá biður Guð, og þó að hvorugt stoði,þá þrýstir Guð, og það er síðsta orðið,ef því er neitað, hræðstu sálar morðið!Ó, Drottinn, þú, sem býður, biður, neyðir,ég blindur er, en sonur þinn mig leiðirfrá synd og hættum gegnum dauðans dalinn,í dýrðar þinnar fagra gleðisalinn. Amen.

Sálmur 110, 1-5. 7

Andstef · Kristur var húðstrýktur og smánaður, en hægri hönd Guðs reisti hann upp.

1Svo segir Drottinn við drottin minn: „Sest þú mér til hægri handar * þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.“

2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon * drottna þú mitt á meðal óvina þinna!

3Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu * skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.

4Drottinn hefur svarið, og hann iðrar þess eigi * „Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“

5Drottinn er þér til hægri handar * hann knosar konunga á degi reiði sinnar.

7Á leiðinni drekkur hann úr læknum * þess vegna ber hann höfuðið hátt.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Kristur var húðstrýktur og smánaður, en hægri hönd Guðs reisti hann upp.

Sálmur 115

Andstef · Blóð Krists þvær af oss syndir vorar og gerir oss verðug þess að þjóna hinum lifanda Guði.

1Gef eigi oss, Drottinn, eigi oss * heldur þínu nafni dýrðina sakir miskunnar þinnar og trúfesti.

2Hví eiga heiðingjarnir að segja * „Hvar er Guð þeirra?“

3En vor Guð er í himnunum * allt sem honum þóknast, það gjörir hann.

4Skurðgoð þeirra eru silfur og gull * handaverk manna.

5Þau hafa munn, en tala ekki * augu, en sjá ekki,

6þau hafa eyru, en heyra ekki * nef, en finna engan þef.

7Þau hafa hendur, en þreifa ekki, fætur * en ganga ekki, þau tala eigi með barka sínum.

8Eins og þau eru, verða smiðir þeirra * allir þeir er á þau treysta.

9En Ísrael treystir Drottni * hann er hjálp þeirra og skjöldur.

10Arons ætt treystir Drottni * hann er hjálp þeirra og skjöldur.

11Þeir sem óttast Drottin treysta Drottni * hann er hjálp þeirra og skjöldur.

12Drottinn minnist vor, hann mun blessa * hann mun blessa Ísraels ætt, hann mun blessa Arons ætt,

13hann mun blessa þá er óttast Drottin * yngri sem eldri.

14Drottinn mun fjölga yður * sjálfum yður og börnum yðar.

15Þér eruð blessaðir af Drottni * skapara himins og jarðar.

16Himnarnir eru himnar Drottins * en jörðina hefur hann gefið mannanna börnum.

17Eigi lofa andaðir menn Drottin * né heldur neinn sá, sem hniginn er í dauðaþögn,

18en vér viljum lofa Drottin * héðan í frá og að eilífu. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Blóð Krists þvær af oss syndir vorar og gerir oss verðug þess að þjóna hinum lifanda Guði.

Sálmur — 1Pt 2, 21-24 — Um sjálfviljuga þjáningu Krists, þjóns Guðs

Andstef · Kristur bar syndir vorar á líkama sínum upp á krossinn til þess að vér skyldum deyja frá syndunum og lifa því sem gott er.

21Til þessa eruð þér kallaðir. Því að Kristur leið einnig fyrir yður og lét yður eftir fyrirmynd * til þess að þér skylduð feta í hans fótspor.

22„Hann drýgði ekki synd * og svik voru ekki fundin í munni hans.“

23Hann illmælti eigi aftur, er honum var illmælt, og hótaði eigi * er hann leið, heldur gaf það í hans vald, sem réttvíslega dæmir.

24Hann bar sjálfur syndir vorar á líkama sínum upp á tréð * til þess að vér skyldum deyja frá syndunum og lifa réttlætinu. Fyrir hans benjar eruð þér læknaðir.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Kristur bar syndir vorar á líkama sínum upp á krossinn til þess að vér skyldum deyja frá syndunum og lifa því sem gott er.

Stuttur ritningarlestur

Sbr. P 13, 26-30Bræður, oss er sent orð þessa hjálpræðis. Þeir, sem í Jerúsalem búa, og höfðingjar þeirra þekktu hann eigi né skildu orð spámannanna, sem upp eru lesin hvern hvíldardag, en uppfylltu þau með því að dæma hann. Þótt þeir fyndu enga dauðasök hjá honum, báðu þeir Pílatus að láta lífláta hann. En er þeir höfðu fullnað allt, sem um hann var ritað, tóku þeir hann ofan af krossinum og lögðu í gröf. En Guð vakti hann frá dauðum.

Stutt svarvers

Vér tilbiðjum þig, Kristur, * og vegsömum þig.

Vér tilbiðjum þig, Kristur, * og vegsömum þig.

Því að með krossi þínum hefur þú endurleyst heiminn.

Og vegsömum þig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Vér tilbiðjum þig, Kristur, * og vegsömum þig.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Ritað er: Ég mun slá hirðinn, og sauðir hjarðarinnar munu tvístrast. En eftir að ég er upp risinn, mun ég fara á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá mig, segir Drottinn.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, miskunna lýð þínum.Verndaðu Kirkjuna.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Frelsaðu lýð þinn.Varðveittu friðinn.Lýstu trúleysingjum.Leiddu þá sem stjórna þjóðum.Hjálpaðu fátækum.Huggaðu sorgmædda.Miskunna þú munaðarlausum.Taktu á móti dánum.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi eilífi Guð, þú lést lausnara vorn taka á sig hold og þola krossfestingu mannkyni til fyrirmyndar um auðmýkt. Veit þú mildur, að vér verðskuldum að vitna um þolgæði hans og öðlast hlutdeild í upprisu hans, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Þú, Jesús, lífsins lindin bestþú ljós og yndi sálna mestþú betra hverri býður þrájá, betra' en allt, sem hugsast má.Ó, hve mín þrá er heit til þínæ, hvenær muntu vitja mín.Æ, hvenær fögnuð hlýt ég þinnæ, hvenær saðning, Jesús minn?Ég fylgi, Jesús, þangað þérei þig fær skilið neitt frá mérþú hefur tekið hjartað mittþað hjá þér dvelur og er þitt.Þig lofar allur himins herog helga vegsemd greiðir þér.Þú, gleðin heims, þú gafst oss friðvorn Guð og föður sjálfan við.Þig lofi, Jesús, líf og sálþig lofi tunga' og hjartans mál.Í trú vér biðjum: Til þín innoss tak þú alla' í himin þinn. Amen.

Sálmur 91

Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.

1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta * sá er gistir í skugga Hins almáttuga,

2sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg * Guð minn, er ég trúi á!“

3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans * frá drepsótt glötunarinnar,

4hann skýlir þér með fjöðrum sínum * undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.

5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar * eða örina, sem flýgur um daga,

6drepsóttina, er reikar um í dimmunni * eða sýkina, er geisar um hádegið.

7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar * þá nær það ekki til þín.

8Þú horfir aðeins á með augunum * sér hversu óguðlegum er endurgoldið.

9Þitt hæli er Drottinn * þú hefur gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.

10Engin ógæfa hendir þig * og engin plága nálgast tjald þitt.

11Því að þín vegna býður hann út englum sínum * til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.

12Þeir munu bera þig á höndum sér * til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.

13Þú skalt stíga ofan á ljón og nöðrur * troða fótum ung ljón og dreka.

14„Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann * ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.

15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann * ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.

16Ég metta hann með fjöld lífdaga * og læt hann sjá hjálpræði mitt.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.

Stuttur ritningarlestur

Opb 22, 4-5Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Guð, Faðir, veit oss er í dag höfum minnst upprisu Sonar þíns, auðmjúka bæn vora: Frelsa oss frá öllu illu svo að vér fáum sofið í friði og risið í gleði til að lofsyngja dýrð þína. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007