Matteusarguðspjall 26Krans-útgáfa

Matteusarguðspjall 26

Og það varð, er Jesús hafði lokið öllum þessum ræðum, að hann mælti við lærisveina sína:

Þér vitið, að eftir tvo daga koma páskarnir, og verður mannsins sonur þá framseldur, til þess að verða krossfestur.

Þá söfnuðust saman æðstu prestarnir og öldungar lýðsins í höll æðsta prestsins, er Kaífas hét,

og þeir tóku saman ráð sín, til þess að höndla Jesúm með svikum og ráða hann af dögum.

En þeir sögðu: Ekki á hátíðinni, til þess að eigi verði uppþot meðal lýðsins.

En er Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa,

kom til hans kona, er hafði alabasturs-buðk með dýrindis smyrslum, og helti yfir höfuð honum, er hann sat yfir borðum.

En er lærisveinarnir sáu það, urðu þeir gramir og sögðu: Til hvers er þessi eyðsla?

Því að þetta hefði mátt selja miklu verði og gefa fátækum.

En er Jesús varð þess var, sagði hann við þá: Hvað eruð þér að mæða konuna? Því að gott verk gjörði hún á mér;

því að ávalt hafið þér fátæka menn hjá yður, en mig hafið þér eigi ávalt.

Því að þegar hún helti smyrslum þessum yfir líkama minn, gjörði hún það til þess að búa mig til greftrunar.

Sannlega segi eg yður: hvar sem fagnaðarerindi þetta verður boðað í öllum heiminum, mun og þess, er hún gjörði, getið verða, til minningar um hana.

Þá fór einn af þeim tólf, Júdas Ískaríot að nafni, til æðstu prestanna

og sagði: Hvað viljið þér gefa mér til þess að eg framselji yður hann? En þeir greiddu honum þrjátíu silfurpeninga;

og upp frá því leitaði hann færis að svíkja hann.

En á fyrsta degi ósýrðu brauðanna komu lærisveinarnir til Jesú og sögðu: Hvar viltu að vér búum þér páskamáltíðina?

En hann sagði: Farið til borgarinnar til manns nokkurs, og segið við hann: Meistarinn segir: Minn tími er í nánd; hjá þér vil eg halda páska með lærisveinum mínum.

Og lærisveinarnir gjörðu eins og Jesús lagði fyrir þá og efndu til páskamáltíðarinnar.

En er kveld var komið, settist hann til borðs ásamt þeim tólf lærisveinum.

Og er þeir mötuðust, sagði hann: Sannlega segi eg yður, að einn af yður mun svíkja mig.

Og þeir urðu mjög hryggir og tóku að segja við hann hver um sig: Er það eg, herra?

En hann svaraði og sagði: Sá sem dýfði ásamt mér hendinni í fatið, sá mun svíkja mig.

Mannsins sonur fer að sönnu héðan, eins og ritað hefir verið um hann. En vei þeim manni, sem því veldur, að mannsins sonur verður framseldur; betra væri þeim manni, að hann hefði aldrei fæðst.

En Júdas, er sveik hann, svaraði og sagði: Er það eg, rabbí? Hann segir við hann: Þú sagðir það.

En er þeir mötuðust, tók Jesús brauð, blessaði og braut það, og gaf lærisveinunum það og sagði: Takið, etið; þetta er líkami minn.

Og hann tók bikar, gjörði þakkir og gaf þeim og sagði: Drekkið af honum allir;

því að þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, sem úthelt er fyrir marga, til synda fyrirgefningar.

En eg segi yður, að héðan í frá mun eg alls ekki drekka af þessum ávexti vínviðarins, til þess dags, er eg drekk hann ásamt yður nýjan í ríki föður míns.

Og er þeir höfðu sungið lofsönginn, fóru þeir út til Olíufjallsins.

Þá segir Jesús við þá: Allir munuð þér hneykslast á mér á þessari nóttu; því að ritað er: Eg mun slá hirðinn, og sauðir hjarðarinnar munu tvístrast.

En eftir að eg er vakinn frá dauðum, mun eg fara á undan yður til Galíleu.

En Pétur svaraði og sagði við hann: Þótt allir hneykslist á þér, skal eg þó aldrei hneykslast.

Jesús sagði við hann: Sannlega segi eg þér, á þessari nóttu, áður en haninn galar, muntu þrisvar afneita mér.

Pétur segir við hann: Og þótt eg ætti að deyja með þér, mun eg alls eigi afneita þér. Á líkan hátt mæltu og allir lærisveinarnir.

Þá kemur Jesús með þeim í garð, er heitir Getsemane, og hann segir við lærisveina sína: Setjist hér, meðan eg fer burt og biðst þar fyrir.

Og hann tók með sér Pétur og þá tvo sonu Sebedeusar, og tók að hryggjast og titra.

Þá segir hann við þá: Sál mín er sárhrygg alt til dauða; bíðið hér og vakið með mér.

Og hann gekk lítið lengra áfram, féll fram á ásjónu sína og baðst fyrir og sagði: Faðir minn, ef mögulegt er, þá fari þessi bikar fram hjá mér; þó ekki sem eg vil, heldur sem þú vilt.

Og hann kemur til lærisveinanna og finnur þá sofandi, og hann segir við Pétur: Gátuð þér þá eigi vakað með mér eina stund?

Vakið og biðjið, til þess að þér fallið eigi í freistni; andinn er að sönnu reiðubúinn, en holdið er veikt.

Enn vék hann burt annað sinn, baðst fyrir og sagði: Faðir minn, ef þessi bikar getur eigi farið fram hjá, án þess að eg drekki hann, þá verði þinn vilji.

Og hann kom og fann þá aftur sofandi; því að augu þeirra voru yfirkomin af svefnþunga.

Og hann yfirgaf þá og fór enn á burt, og baðst fyrir í þriðja sinni og mælti aftur hinum sömu orðum.

Þá kemur hann til lærisveinanna og segir við þá: Sofið seinna og hvílist! Sjá, stundin nálgast, og mannsins sonur er framseldur í hendur syndara.

Standið upp, förum; sjá, sá er í nánd, er mig svíkur.

Og meðan hann enn var að tala, sjá, þá kom Júdas, einn af þeim tólf, og með honum mannfjöldi mikill, með sverðum og bareflum, frá æðstu prestunum og öldungum lýðsins.

En sá, er sveik hann, gaf þeim merki, segjandi: Sá er eg kyssi, hann er það. Handtakið hann.

Og hann gekk þegar að Jesú og sagði: Heill, rabbí! og kysti hann.

En Jesús sagði við hann: Vinur, hví ert þú kominn hér? Þá gengu þeir að, lögðu hendur á Jesúm og tóku hann.

Og sjá, einn þeirra, er voru með Jesú, rétti út höndina og brá sverði, og hann hjó þjón æðsta prestsins og sneið af honum eyrað.

Þá segir Jesús við hann: Slíðra þú sverð þitt; því að allir þeir, sem grípa til sverðs, munu farast fyrir sverði.

Eða hyggur þú, að eg geti ekki beðið föður minn, svo að hann nú sendi mér til liðs meira en tólf sveitir engla?

Hvernig ættu þá ritningarnar að rætast, að það á þannig að verða?

Á þeirri stundu mælti Jesús við mannfjöldann: Lögðuð þér á stað, eins og á móti ræningja, með sverðum og bareflum, til þess að handtaka mig? Daglega sat eg í helgidóminum og kendi, og þér handtókuð mig ekki.

En alt þetta er komið fram, til þess að ritningar spámannanna rættust. Þá yfirgáfu allir lærisveinarnir hann og flýðu.

En þeir, sem höfðu handtekið Jesúm, færðu hann til Kaífasar, æðsta prestsins, þar sem fræðimennirnir og öldungarnir voru saman komnir.

En Pétur fylgdi honum álengdar alt að hallargarði æðsta prestsins, og hann gekk þar inn og settist hjá þjónunum, til þess að sjá endalokin.

En æðstu prestarnir og alt ráðið leitaði ljúgvitnis gegn Jesú, til þess að geta líflátið hann;

en þeir fundu eigi, þótt margir ljúgvottar kæmu fram. En loks komu fram tveir og sögðu:

Þessi maður hefir sagt: Eg get brotið niður musteri Guðs og reist það á þremur dögum.

Og æðsti presturinn stóð upp og sagði við hann: Svarar þú engu? Hvað vitna þessir gegn þér?

En Jesús þagði. Og æðsti presturinn sagði við hann: Eg særi þig við Guð hinn lifanda, að þú segir oss, hvort þú ert Kristur, sonur Guðs.

Jesús segir við hann: Þú sagðir það. En eg segi yður, að upp frá þessu skuluð þér sjá mannsins son sitja til hægri handar máttarins og koma á skýjum himinsins.

Þá reif æðsti presturinn klæði sín og segir: Hann hefir lastmælt! Hvað þurfum vér framar votta við? Sjá, nú hafið þér heyrt lastmælið.

Hvað líst yður? En þeir svöruðu og sögðu: Hann er dauða sekur.

Þá hræktu þeir í andlit honum og slógu hann hnefum. Sumir börðu hann með stöfum,

segjandi: Spáðu fyrir oss, Kristur; hver var það sem sló þig?

En Pétur sat fyrir utan í hallargarðinum. Og þerna ein kom til hans og mælti: Þú varst einnig með Jesú frá Galíleu.

En hann neitaði því í áheyrn allra og sagði: Eg veit ekki hvað þú átt við.

En er hann var kominn út í fordyrið, sá önnur hann og sagði við þá, er þar voru: Þessi maður var líka með Jesú frá Nazaret.

Og aftur neitaði hann því með eiði: Ekki þekki eg manninn.

En litlu síðar komu þeir að, er þar stóðu, og sögðu við Pétur: Sannlega ert þú líka einn af þeim; því að og málfæri þitt segir til þín.

Þá tók hann að formæla sér og sverja: Ekki þekki eg manninn. Og jafnskjótt gól haninn.

Og Pétur mintist orðsins, er Jesús hafði sagt: Áður en haninn galar, muntu þrisvar afneita mér. Og hann gekk út fyrir og grét beisklega.