Langafasta
Langafastan
Hefst á öskudegi og varir í fjörtíu daga. Langafastan er sérstakur tími fyrir bænir og yfirbót. Á lönguföstu eigum við að undirbúa okkur fyrir páskana.
Kaþólskir fasta tvo sérstaka daga á hverju ári; öskudag og föstudaginn langa. Það merkir að við neytum einnar fullkominnar máltíðar hvern þessara daga. Til þess er einnig ætlast að við gerum yfirbót á hverjum föstudegi og hvern dag föstunnar.
Á öskudaginn er öskuvígsla og tækifæri fyrir fólk að meðtaka öskukross. Við úthlutun hinnar vígðu ösku segir presturinn við okkur: „Minnstu þess maður, að þú ert mold og að moldu skalt þú aftur verða.“
Hvenær
Langafastan hefst á öskudegi og stendur í fjörutíu daga fram að skírdagskvöldi. Dagsetningin færist með páskunum og því getur öskudagur verið hvenær sem er frá byrjun febrúar fram í byrjun mars.
Óstaðfestur texti
Dymbilvika
Í dymbilviku heldur kirkjan hátíðlega upp á atburði síðustu ævidaga Jesú, fyrir páska.
Pálmasunnudagur
Fyrstur af þessum atburðum var hans dýrðlega innganga í Jerúsalem, sem Messías. Við minnumst þessa atburðar á pálmasunnudegi þegar við göngum helgigönguna með vígðum pálmagreinum.
Á pálmasunnudag lesum við tvö guðspjöll. Fyrsta guðspjallið segir okkur um hina dýrlegu inngöngu Jesú inn í Jerúsalem. Annað guðspjallið segir okkur frá kvöl og dauða Jesú.
Skírdagur
Annar atburðurinn sem við höldum hátíðalega í dymbilviku, er síðasta kvöldmáltíðin, á skírdagskvöld. Messa á skírdag er byrjunin á dögunum þrem fyrir páskadaginn. Og þessir dagar eru þeir heilögustu í árinu. Þessir dagar ná hámarki sínu á páskavöku.
Föstudagurinn langi
Þriðji atburðurinn úr lífi Jesús sem við höldum hátíðlega í dymbilviku eru þjáningar hans og dauði, sem var á föstudaginn langa fyrir tvö þúsund árum.
Á föstudaginn langa tökum við okkur tíma til að hugsa um hið saklausa lamb Guðs sem var fórnað vegna synda okkar. Þetta er dagurinn sem við sýnum sérstaka virðingu fyrir krossinum og við biðjum fyrir öllum heiminum. Föstudagurinn langi er dagur föstu og bindindis, dagur sem við gerum iðrun.
Laugardaginn fyrir páska biðja kaþólskir menn og hugsa um þá hluti sem komu fyrir Jesú og ástæður þess. Það er eins og við séum að krjúpa við gröf hans í djúpri sorg og bíðum upprisu hans.
Hvers vegna fjólublár
Fjólublár er litur iðrunar og undirbúnings, sá sami og á aðventu. Á fjórða sunnudegi föstunnar má nota bleikan lit, sem er merki um að hátíðin nálgast.
Óstaðfestur texti
Texti frá catholica.is. Kaflar merktir „Óstaðfestur texti“ eru okkar eigin texti og bíða yfirlestrar sóknarinnar.