Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Lag: Hind morgunroðans. Davíðs-sálmur.
Guð minn, Guð minn! hví hefir þú yfirgefið mig? Langt burt frá hjálp minni eru kveinstafir mínir.
»Guð minn!« hrópa eg um daga, en þú svarar ekki, og um nætur, en eg finn enga fró.
Og samt ert þú hinn Heilagi,; sá er situr uppi yfir lofsöngum Ísraels.
Þér treystu feður vorir, treystu þér — og þú hjálpaðir þeim,
til þín hrópuðu þeir, og þeim varð bjargað, þér treystu þeir og urðu ekki til skammar.
En eg er maðkur og eigi maður, til spotts fyrir menn og fyrirlitinn af lýðnum.
Allir þeir, er sjá mig, gjöra gys að mér, bregða grönum og hrista höfuðið.
»Fel málefni þitt Drottinn! Hann mun hjálpa honum, hann mun frelsa hann, því að hann hefir þóknun á honum«.
Já, þú leiddir mig fram af móðurlífi, lézt mig liggja öruggan við brjóst móður minnar.
Til þín var mér varpað frá móðurskauti, frá móðurlífi ert þú Guð minn.
Ver eigi fjarri mér, því að neyðin er nærri, því að enginn hjálpar.
Sterk naut umkringja mig, Basans uxar slá hring um mig.
Þeir glenna upp ginið í móti mér, - sem bráðsólgið, öskrandi ljón.
Mér er helt út sem vatni, og öll bein mín eru gliðnuð sundur; hjarta mitt er sem vax, bráðnað sundur í brjósti mér.
Gómur minn er þur sem brendur leir og tungan loðir föst í munni mér og í duft dauðans leggur þú mig.
Því að hundar umkringja mig, hópur illvirkja slær hring um mig, hendur mínar og fætur hafa þeir gegnumstungið.
Eg get talið öll mín bein, þeir horfa á og hafa mig að augnagamni.
Þeir skifta með sér klæðum mínum og kasta hlut um kyrtil minn.
En þú, ó Drottinn, ver eigi fjarri! þú styrkur minn, skunda mér til hjálpar,
frelsa sál mína undan sverðinu, mína einmana sál undan hundunum.
Frelsa mig úr ljónsgininu og mína aumu sál frá hornum vísundarins.
Eg vil kunngjöra bræðrum mínum nafn þitt, í söfnuðinum vil eg lofa þig.
þér, sem óttist Drottin, lofið hann, tignið hann, allir niðjar Jakobs, hræðist hann, allir niðjar Ísraels.
Því að hann hefir eigi fyrirlitið né virt að vettugi eymd hins volaða og eigi hulið auglit sitt fyrir honum, heldur heyrt, er hann hrópaði til hans.
Frá þér kemur lofsöngur minn í stórum söfnuði, heit mín vil eg efna frammi fyrir þeim, er óttast hann.
Volaðir munu eta og verða mettir, þeir, er leita Drottins, munu lofa hann; hjörtu yðar lifni við að eilífu.
Endimörk jarðar munu minnast þess og aftur hverfa til Drottins, og allar ættir heiðingjanna falla fram fyrir augliti þínu.
Því að ríkið heyrir Drottinn og hann er drotnari yfir heiðingjunum.
Já, fyrir honum munu öll stórmenni jarðar falla fram, fyrir honum munu beygja sig allir þeir, er hníga í duftið. En sál mín lifir honum,
niðjar mínir munu þjóna honum. Komandi kynslóðum mun sagt verða frá drotni,
lýð, sem enn er ófæddur, mun boðað réttlæti hans, að hann hefir framkvæmt það.