Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Davíðs-sálmur.
Drottinn! yfir veldi þínu fagnar konungurinn, hve mjög kælist hann yfir hjálp þinni!
Þú hefir gefið honum það, er hjarta hans þráði, um það, sem varir hans báðu, neitaðir þú honum eigi. Sela.
Því að þú kemur í móti honum með hamingjublessunum, setur gullna kórónu á höfuð honum.
Um líf bað hann þig, það veittir þú honum, fjöld lífdaga um aldur og æfi.
Mikil er sæmd hans fyrir þína hjálp, vegsemd og heiður veittir þú honum.
Já, þú hefir veitt honum blessun að eilífu, þú gleður hann með fögnuði fyrir augliti þínu.
Því að konungurinn treystir Drottni og elsku hins hæsta, og verður eigi valtur á fótum.
Hönd þín nær til allra óvina þinna, hægri hönd þín nær til allra hatursmanna þinna.
Þú gjörir þá sem glóandi ofn, er þú lítur á þá, Drottinn; hann tortímir þeim í reiði sinni og eldurinn eyðir þeim.
Ávöxtu þeirra afmáir þú af jörðunni og afkvæmi þeirra úr mannheimi,
því að þeir hafa stofnað ilt ráð í gegn þér, búið fánýtar vélar.
Því að þú rekur þá á flótta, miðar á andlit þeirra með boga þínum.
Hef þig, Drottinn, í veldi þínu, þá skulum vér syngja og kveða um máttarverk þín.