Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Davíðs-sálmur.
Drottinn bænheyri þig á degi neyðarinnar, nafn Jakobs Guðs bjargi þér.
Hann sendi þér hjálp frá helgidóminum, styðji þig frá Zíon.
Hann minnist allra fórnargjafa þinna og taki brennifórn þína gilda. Sela.
Hann veiti þér það, er hjarta þitt þráir, og veiti framgang öllum áformum þínum.
Ó að vér mættum fagna yfir sigri þínum og veifa fánanum í nafni Guðs vors. Drottinn uppfylli allar óskir þínar.
Nú veit eg, að Drottinn veitir hjálp sínum smurða, svarar honum frá sínum helga himni,. í máttarverkum kemur fulltingi hægri handar hans fram.
Hinir stæra sig af vögnum sínum og hestum, en vér af nafni Drottins, Guðs vors.
Þeir fá knésig og falla, en vér rísum og stöndum uppréttir.
Drottinn! hjálpa konunginum og bænheyr oss, er vér hrópum.