Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Davíðs-sálmur. ——
Himnarnir segja frá Guðs dýrð og festingin kunngjörir verkin hans handa.
Hver dagurinn af öðrum mælir orð, hver nóttin af Annari talar speki.
Engin ræða, engin orð, ekki heyrist raust þeirra.
Og þó fer boðskapur þeirra um alla jörðina og orð þeirra til endimarka heims. Röðlinum reisti hann tjald á þeim;
Shann er sem brúðguminn, er gengur út úr svefnhúsi sínu, hlakkar sem hetja til að renna skeið sitt.
Við takmörk himins rennur hann upp og hringferð hans nær til enda himins og ekkert dylst fyrir geislaglóð hans.
Lögmál Drottins er lýtalaust, hressir sálina, vitnisburður Drottins er áreiðanlegur, gjörir hinn fávísa vitran.
Fyrirmæli Drottins eru rétt, gleðja hjartað. Boðorð Drottins eru skír, hýrga augun.
Ótti Drottins er hreinn, varir að eilífu. Ákvæði Drottinn eru sannleikur, eru öll réttlát.
Þau eru dýrmætari heldur en gull, já, gnóttir af skíru gulli, og sætari en hunang, já, hunangsseimur.
Þjónn þinn varðveitir þau og kostgæfilega; að halda þau hefir mikil laun í för með sér.
En hver verður var við yfirsjónirnar? Sykna mig af leyndum brotum!
Og varðveit þjón þinn fyrir ofstopamönnum, lát þá eigi drotna yfir mér. Þá verð eg lýtalaus og sýknaður af miklu afbroti.
Ó að orðin af munni mínum yrðu þér þóknanleg og hugsanir hjarta míns kæmu fram fyrir auglit þitt, þú Drottinn, hellubjarg mitt og frelsari!