Saltarinn 23Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 23

Davíðs-sálmur. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.

Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem eg má næðis njóta.

Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns.

Jafnvel þótt eg fari um dimman dal, óttast eg ekkert ilt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig.

Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum; þú smyr höfuð mitt með olíu; bikar minn er barmafullur,

Já, gæfa og náð fylgja mér alla æfidaga mína, og í húsi Drottins bý eg langa æfi.