Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Davíðs-sálmur. Drottinn heyrir jörðin og alt, sem á henni er, heimurinn og þeir, sem í honum búa;
því að hann hefir grundvallað hana á hafinu og fest hana á vötnunum.
Hver fær að stíga upp á fjall Drottins, hver fær að dveljast á hans helga stað?
Sá, er hefir óflekkaðar hendur og hreint hjarta, eigi sækist eftir hégóma og eigi vinnur rangan eið.
Hann mun blessun hljóta frá Drottni og réttlætingu frá Guði hjálpræðis síns.
Þessi er sú kynslóð, er leitar Drottins, stundar eftir augliti þínu, þú Jakobs Guð. Sela.
Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.
»Hver er þessi konungur dýrðarinnar?« Það er Drottinn, hin volduga hetja, Drottinn, bardagahetjan.
Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.
»Hver er þessi konungur dýrðarinnar?« Drottins hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar. Sela.