Saltarinn 25Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 25

Davíðs-sálmur. Til þín hef eg sál mína, Drottinn, Guð minn!

Þér treysti eg, lát mig eigi verða til skammar, lát eigi óvini mína hlakka yfir mér.

Hver sá, er á þig vonar, mun eigi heldur verða til skammar; þeir verða til skammar, er ótrúir eru að raunalausu.

Vísa mér vegu þína, Drottinn, kenn mér stigu þína.

Lát mig ganga í sannleika þínum og kenn mér, því að þú ert Guð hjálpræðis míns, á þig vona eg liðlangan daginn.

Minst þú miskunnar þinnar, Drottinn, og kærleiksverka, því að þau eru frá eilífð.

Minst eigi æskusynda minna og afbrota, minst mín eftir elsku þinni, sakir gæzku þinnar, Drottinn.

Góður og réttlátur er Drottinn, þess vegna vísar hann syndurum veginn.

Hann lætur hina voluðu ganga eftir réttlætinu og kennir hinum voluðu veg sinn.

Allir vegir Drottinn eru elska og trúfesti fyrir þá, er gæta sáttmála hans og vitnisburða.

Sakir nafns þíns, Drottinn — fyrirgef mér sekt mína, því að hún er mikil.

Ef einhver óttast Drottin, mun hann kenna honum veg þann, er hann á að velja.

Sjálfur mun hann búa við hamingju, og niðjar hans eignast landið.

Drottinn sýnir trúnað þeim, er óttast hann og sáttmála sinn gjörir hann þeim kunnan.

Augu mín mæna ætíð til Drottins, því að hann greiðir fót minn úr snörunni.

Snú þér til mín og líkna mér, því að eg er einmana og volaður.

Angist sturlar hjarta mitt, leið mig úr nauðum mínum.

Lít á eymd mína og armæðu og fyrirgef allar syndir mínar.

Lít á, hversu margir fjandmenn mínir eru, með rangsleitnishatri hata þeir mig.

Varðveit sál mína og frelsa mig, lát mig eigi verða til skammar, því að hjá þér leita eg hælis.

Lát ráðvendni og hreinskilni gæta mín, því að á þig vona eg.

Frelsa, ó Guð, Ísrael úr öllum nauðum hans.