Saltarinn 26Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 26

Davíðs-sálmur. Lát mig ná rétti mínum, Drottinn, því að eg geng fram í grandvarleik, og Drottins treysti eg óbifanlega.

Rannsaka mig, Drottinn, og reyn mig, prófa nýru mín og hjarta.

Því að eg hefi elsku þína fyrir augum, og eg geng í sannleika þínum.

Eg tek mér eigi sæti hjá lygurum og hefi eigi umgengni við undirförula menn.

Eg hata söfnuð illvirkjanna, sit eigi meðal óguðlegra.

Eg þvæ hendur mínar í sakleysi, að eg megi ganga í kring um altari þitt, Drottinn,

Til þess að láta lofsönginn hljóma, og segja frá öllum þínum dásemdarverkum.

Drottinn, eg elska bústað húss þíns og staðinn, þar sem dýrð þín býr.

Hrif eigi sál mína burt með syndurum, né líf mitt með morðingjum,

þeim er hafa svívirðing í höndum sér og hægri höndina fulla af mútugjöfum.

En eg geng fram í grandvarleik; frelsa mig og líkna mér.

Fótur minn stendur á sléttri grund, í söfnuðunum vil eg lofa Drottin.