Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Davíðs-sálmur. Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti eg að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti eg að hræðast?
Þegar illvirkjarnir nálgast mig, til þess að eta hold mitt, þá verða það fjandmenn mínir og óvinir, sem hrasa og falla.
Þegar ber sezt um mig, óttast hjarta mitt eigi; þegar ófriður hefst í gegn mér, er eg samt Öruggur.
Eins hefi eg beðið Drottinn, það eitt þrái eg: að eg fái að dveljast í húsi Drottins alla æfidaga mína, til þess að fá að skoða yndisleik Drottins, sökkva mér niður í hugleiðingar í musteri hans.
Því að hann geymir mig í skjóli, á óheilladeginum, hann felur mig í fylgsnum tjalds síns, lyftir mér upp á klett.
Þess vegna hefst upp höfuð mitt, yfir óvini mína umhverfis mig, að eg með fögnuði megi færa fórnir í tjaldi hans, syngja og leika Drottinn.
Heyr, Drottinn, eg hrópa hátt! Sýn mér miskunn og svara mér!
Þú mælir svo, segir hjarta mitt: Leitið auglitis míns! Eg vil leita auglitis þíns, Drottinn.
Hyl eigi auglit þitt fyrir mér, vísa þjóni þínum eigi frá í reiði. Þú hefir verið fulltingi mitt, hrind mér eigi burt og yfirgef mig eigi, þú Guð hjálpræðis míns.
Því að þótt faðir minn og móðir hafi yfirgefið mig, tekur Drottinn mig að sér.
Vísa mér veg þinn, Drottinn, leið mig um slétta braut sakir fjandmanna minna.
Ofursel mig eigi græðgi fjandmanna minna, því að falsvitni rísa í gegn mér og menn, er fnæsa ofbeldi.
Ef eg treysti því eigi, að fá að sjá gæzku Drottins á landi lifenda —!
Vona á Drottin, ver öruggur og hugrakkur, já, vona á Drottin.