Saltarinn 28Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 28

Davíðs-sálmur. Til þín, Drottinn, hrópa eg; þú bjarg mitt, ver eigi hljóður gagnvart mér, að eg ekki, er þú þegir við mér, verði sem þeir, er til grafar eru gengnir.

Heyr þú á grátbeiðni mína, er eg hrópa til þín, er eg lyfti höndum mínum til þíns allrahelgasta.

Hríf mig eigi á burt með óguðlegum og illgjörðamönnum, þeim er tala vinsamlega við náunga sinn, en hafa ilt í hyggju.

Launa þeim eftir verkum þeirra, eftir þeirra illu breytni, launa þeim eftir verkum handa þeirra, endurgjald þeim það, er þeir hafa aðhafst.

Því að þeir hyggja eigi á verk Drottins og handaverk hans; hann rífi þá niður og reisi þá eigi við aftur.

Lofaður sé Drottinn, því að hann hefir heyrt grátbeiðni mína.

TDrottinn er vígi mitt og skjöldur; honum treysti hjarta mitt, og eg hlaut hjálp; því fagnar hjarta mitt, og með ljóðum mínum lofa eg hann.

Drottinn er vígi lýð sínum, og hjálparhæli sínum smurða.

Hjálpa lýð þínum og blessa eign þína, gæt þeirra og ber þá að eilífu.