Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Davíðs-sálmur. Tjáið Drottni, þér guðasynir, tjáið Drottni vegsemd og vald.
Tjáið Drottni dýrð þá, er nafni hans hæfir, fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða.
Raust Drottins hljómar yfir vötnunum, Guð dýrðarinnar þrumar, Drottinn yfir hinum miklu vötnum.
Raust Drottins hljómar með krafti, raust Drottins hljómar með tign.
Raust Drottins brýtur sundur sedrustré, Drottinn brýtur sundur sedrustrén á Líbanon.
Hann lætur þau hoppa eins og kálfa, Líbanon og Sirjon eins og unga vísunda.
Raust Drottins klýfur eldsloga,
Raust Drottins lætur eyðimörkina skjálfa, Drottinn lætur Kades-eyðimörk skjálfa.
Raust Drottins lætur hindirnar bera fyrir tímann og gjörir skógana nakta, og alt í helgidómi hans segir: Dýrð!
Drottinn sat uppi yfir flóðinu, Drottinn mun sitja sem konungur að eilífu.
Drottinn veitir lýð sínum styrkleik, Drottinn blessar lýð sinn með friði.