Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Musterisvígsluljóð. Davíðs-sálmur.
Eg tigna þig, Drottinn, því að þú hefir bjargað mér, og eigi látið óvini mína hlakka yfir mér.
Drottinn, Guð minn, eg hrópaði til þín og þú læknaðir mig.
Drottinn, þú heimtir sál mína úr helju, lézt mig halda lífi, er aðrir gengu til grafar.
Syngið Drottni lof, þér hans guðhræddu, vegsamið hans heilaga nafn.
Því að augnablik stendur reiði hans, en alla æfi náð hans; að kveldi gistir oss grátur, en gleðisöngur að morgni.
En eg ugði eigi að mér og hugsaði: Aldrei verð eg valtur á fótum!
SDrottinn, af náð þinni hafðir þú gjört bjarg mitt stöðugt, nú huldir þú auglit þitt og eg skelfdist.
Til þín, Drottinn, kallaði eg og Drottinn grátbændi eg:
Hver ávinningur er í blóði mínu, í því að eg gangi til grafar? Getur duftið lofað þig, kunngjört trúfesti þína?
Heyr, Drottinn, og líkna mér, ó Drottinn, ver þú hjálpari minn! Í
Þá breyttir þú grát mínum í gleðidans, leystir af mér hærusekkinn og gyrtir mig fögnuði,
að sál mín megi lofsyngja þér og eigi þagna. Drottinn, Guð minn, eg vil þakka þér að eilífu.