Saltarinn 31Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 31

Til helgisöngs. Davíðs-sálmur.

Hjá þér, Drottinn, leita eg hælis, lát mig aldrei verða til skammar; bjarga mér eftir réttlæti þínu;

hneig eyru þín til mín, frelsa mig í skyndi; ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar.

Því að þú ert bjarg mitt og vígi, og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér.

Þú munt draga mig úr neti því, er þeir lögðu leynt fyrir mig, því að þú ert vörn mín.

Í þína hönd fel eg anda minn, þú munt frelsa mig, Drottinn, þú trúfasti Guð!

Eg hata þá, er dýrka fánýt falsgoð, en Drottinn treysti eg.

Eg vil gleðjast og fagna yfir miskunn þinni, yfir því, að þú hefir litið á eymd mína, gefið gætur að sálarneyð minni

og eigi ofurselt mig óvinunum, en sett fót minn á víðlendi.

Líkna mér, Drottinn, því að eg er í nauðum staddur, döpruð af harmi eru augu mín, sál mín og líkami.

Líf mitt er liðið í harmi og ár mín Í andvörpum; mér förlast kraftur sakir sektar minnar og bein mín tærast.

Eg er að spotti öllum fjandmönnum mínum, til háðungar nábúum mínum og skelfing kunningjum mínum; þeir, sem sjá mig á strætum úti, flýja mig.

Sem dáinn maður er eg gleymdur hjörtum þeirra, eg er sem ónýtt ker.

Því að eg heyri illyrði margra, skelfing er alt um kring; þá er þeir bera ráð sín saman móti mér, hyggja þeir á að svifta mig lífi.;

En eg treysti þér, Drottinn, segi: Þú ert Guð minn!

Í þinni hendi er hagur minn, frelsa mig af hendi óvina minna og ofsækjenda.

Lát ásjónu þína lýsa yfir þjón þinn, hjálpa mér sakir elsku þinnar.

Drottinn, lát mig eigi verða til skammar, því að eg ákalla þig; lát hina óguðlegu verða til skammar, hverfa hljóða til heljar.

Lát lygavarirnar þagna, þær er mæla drambyrði gegn réttlátum með hroka og fyrirlitningu.

Hversu mikil er gæzka þín, er þú hefir geymt þeim, er óttast þig, er þú auðsýnir þeim, er leita hælis hjá þér frammi fyrir mönnunum.

Þú hylur þá í skjóli auglitis þíns fyrir svikráðum manna, felur þá í leyni fyrir deilum tungnanna.

Lofaður sé Drottinn, því að hann hefir sýnt mér dásamlega náð í öruggri borg.

Og eg hugsaði í angist minni: eg er burtrekinn frá augum þínum, en samt heyrðir þú grátraust mína, er eg hrópaði til þín.

Elskið Drottin, allir þér hans guðhræddu, Drottinn verndar trúfasta, en geldur í fullum mæli þeim, er ofmetnaðarverk vinna.

Verið öruggir og hughraustir, allir þér, er vonið á Drottin.