Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Davíðs-maskil. Sæll er sá, er afbrotin eru fyrirgefin, synd hans hulin.
Sæll er sá maður, er Drottinn tilreiknar eigi misgjörð, sá er eigi geymir svik í anda.
Meðan eg þagði, tærðust bein mín, er eg kveinaði liðlangan daginn.
Því að dag og nótt lá hönd þín þungt á mér, lífsvökvi minn þvarr sem í sumarbreiskju. Sela.
Þá játaði eg synd mína fyrir þér og fól eigi misgjörð mína. Eg mælti: Eg vil játa afbrot mín fyrir Drottni, og þú fyrirgafst syndasekt mína. Sela.
Þess vegna biðji þig sérhver guðhræddur, meðan þig er að finna, koti þótt vatnsflóðið komi, nær það honum eigi.
Þú ert skjól mitt, þú leysir mig úr nauðum, með frelsisfögnuði umkringir þú mig. Sela.
Eg vil kenna þér og fræða þig um veg þann, er þú átt að ganga; eg vil kenna þér ráð, hafa augun á þér.
Verið eigi sem hestar eða skynlausir múlar; með taum og beizli verður að temja þrjózku þeirra, annars nálgast þeir þig ekki.
Miklar eru þjáningar óguðlegs manns, en þann, er treystir Drottni, umlykur hann elsku.
Gleðjist yfir Drottni og fagnið, þér réttlátir, kveðið fagnaðarópi, allir hreinhjartaðir!