Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni, hreinlyndum hæfir lofsöngur.
Lofið Drottin með gígjum, leikið fyrir honum á tístrengjaða hörpu.
Syngið honum nýjan söng, knýið strengina ákaft með fagnaðarópi.
Því að orð Drottins er áreiðanlegt og öll verk hans eru í trúfesti gjörð.
Hann hefir mætur á réttlæti og rétti, jörðin er full af miskunn Drottins.
Fyrir orð Drottins voru himnarnir gjörðir og allur her þeirra fyrir anda munns hans;
hann safnaði vatni hafsins sem í belg, lét straumana í forðabúr.
Öll jörðin óttist Drottin, allir heimsbúar hræðist hann;
því að hann talaði — og það varð, hann bauð — þá stóð það þar.
Drottinn ónýtti ráð heiðingjanna, gjörði að engu áform þjóðanna,
Men ráð Drottinn stendur stöðugt um aldur, áform hjarta hans frá kyni til kyns.
Sæl er sú þjóð, er á Drottin að Guði, sá lýður, er hann hefir kjörið sér til eignar.
Drottinn leit niður af himni, sá öll mannanna börn;
frá bústað sínum virti hann fyrir sér alla jarðarbúa,
hann, sem myndað hefir hjörtu þeirra allra, sem gefur gætur að öllum athöfnum þeirra.
Eigi sigrar konungurinn fyrir gnótt herafla síns, eigi bjargast kappinn fyrir ofurafl sitt.
Svikull er hestur til sigurs, með ofurafli sínu bjargar hann ekki.
En augu Drottins hvíla á þeim, er óttast hann, á þeim, er vona á miskunn hans,
til þess að frelsa þá frá dauða og halda lífinu í þeim í hallæri.
Sálir vorar vona á Drottin, hann er hjálp vor og skjöldur.
Já, yfir honum fagnar hjarta vort, hans heilaga nafni treystum vér.
Miskunn þín, Drottinn, sé yfir oss, svo sem vér vonum á þig.