Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Davíðs-sálmur, þá er hann gjörði sér upp vitfirringu frammi fyrir Abímelek, svo að Abímelek rak hann í burt, og hann fór burt.
Eg vil vegsama Drottin alla tíma, ætíð sé lof hans mér í munni.
Sál mín hrósar sér af Drottni, eð hinir hógværu skulu heyra það og fagna.
Miklið Drottinn ásamt mér, tignum í sameiningu nafn hans.
Eg leitaði Drottins, og hann svaraði mér, frelsaði mig frá öllu því, er eg hræddist.
Lítið til hans og gleðjist, og andlit yðar skulu eigi blygðast.
Hér er volaður maður, sem hrópaði, og Drottinn heyrði hann og hjálpaði honum úr öllum nauðum hans.
Engill Drottins setur vörð kring um þá, er óttast hann, og frelsar þá.
Finnið og sjáið, að Drottinn er góður; sæll er sá maður, er leitar hælis hjá honum.
Óttist Drottin, þér hans heilögu, því að þeir, er óttast hann, líða engan skort.
Ung ljón eiga við skort að búa og svelta, en þeir, er leita Drottins, fara einskis góðs á mis.
Komið, börn, hlýðið á mig; eg vil kenna yður ótta Drottins.
Ef einhver óskar lífs, þráir lífdaga, til þess að njóta hamingjunnar,
þá varðveit tungu þína frá illu og varir þínar frá svikatali;
forðast ilt og gjörðu gott, leita friðar og legg stund á hann.
en augu Drottins hvíla á réttlátum og eyru hans gefa gaum að hrópi þeirra.
Auglit Drottins horfir á þá, er illa breyta, til þess að afmá minningu þeirra af jörðunni,
Ef þeir hrópa, þá heyrir Drottinn, úr öllum nauðum þeirra frelsar hann þá.
Drottinn er nálægur þeim, er hafa sundurmarið hjarta, þeim, er hafa sundurkraminn anda, hjálpar hann.
Margar eru raunir réttláts manns, en Drottinn frelsar hann úr þeim öllum.
Hann gætir allra beina hans, ekki eitt af þeim skal brotið.
Ógæfa drepur óguðlegan mann, þeir, er hata hinn réttláta, skulu sekir dæmdir.
Drottinn frelsar líf þjóna sinna, enginn sá, er leitar hælis hjá honum, mun sekur dæmdur.