Gamla testamentiðSpámennirnir
æSvo segir Drottinn: Hvar er sú skilnaðarskrá móður yðar, er eg hafi rekið hana burt með? eða hverjum af lánardrotnum mínum hefi eg selt yður? Sjá, sökum misgjörða yðar hafið þér seldir verið og vegna afbrota yðar hefir móðir yðar verið burt rekin.
Hvers vegna var enginn fyrir, þegar eg kom, hví gegndi enginn, þegar eg kallaði? Er hönd mín þá svo stutt orðin, að hún geti eigi frelsað, eða vantar mig mátt hl að bjarga? Sjá, með hótun minni þurka eg upp hafið, gjöri fljótin að eyðimörku, svo að fiskarnir í þeim úldna af vatnsleysi og deyja af þorsta.
Eg færi himininn í svartan hjúp og sveipa hann í sorgarbúning.
Drottinn Guð hefir gefið mér lærisveina tungu, svo að eg hefði vil á að styrkja hina mæddu með orðum mínum; hann vekur á hverjum morgni, á hverjum morgni vekur hann eyra mitt, svo að eg taki eftir, eins og lærisveinar gjöra.
Drottinn Guð opnaði eyra mitt og eg þverskallaðist eigi, færðist ekki undan.
Eg bauð bak mitt þeim, sem börðu mig, og kinnar mínar þeim, sem reyttu mig; eg byrgði eigi ásjónu mína fyrir haðungum og hrákum.
Drottinn Guð hjálpar mér, fyrir því lét eg ekki haðungarnar á mér festa, fyrir því gjörði eg andlit mitt að tinnusteini, því að eg veit, að eg verð ekki til skammar,
Nálægur er sá, er mig réttlætir. Hver vill deila við mig? Við skulum báðir ganga fram! Hver hefir sök að kæra á hendur mér? Komi hann til mín!
Sjá, Drottinn Guð hjálpar mér; hver er sá, er geti gjört mig sekan? Sjá, þeir munu allir detta sundur, eins og gamalt Á fat; mölur skal eyða þeim.
Hver sá meðal yðar, sem óttast Drottin, hlýði raustu þjóns hans; sá sem í myrkrunum gengur og enga skímu sér, hann treysti á nafn Drottins og reiði sig á Guð sinn.
Sjá, allir þér, sem kveikið eld og gyrðið yður eldlegum skeytum, farið þér í loga yðvars elds og í eldlegu skeytin, sem þér hafið tendrað! Frá minni hendi kemur þetta yfir yður; þér skuluð liggja í kvölum.