Jesajabók 51Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 51

Hlýðið á mig, þér sem leggið stund á réttlæti, þér sem leitið Drottins! Lítið á hellubjargið, sem þér eruð af höggnir, og á brunnholuna, sem þér eruð úr grafnir.

Lítið á Abraham, föður yðar, og á Söru, sem ól yður. Því að einan kallaði eg hann, og eg blessaði hann og jók kyn hans.

Því að Drottinn huggar Zíon, huggar allar rústir hennar; hann gjörir auðn hennar sem Eden og heiði hennar sem aldingarð Drottins. Fögnuður og gleði mun finnast í henni, þakkargjörð og lofsöngur.

Hlýð þú á mig, þú lýður minn, hlusta á mig, þú þjóð mín, því frá mér mun kenning út ganga og minn réttur sem ljós fyrir þjóðirnar.

Skyndilega nálgast réttlæti mitt, hjálpræði mitt er á leiðinni; armleggir mínir munu dæma þjóðirnar; fjarlægar landsálfur vænta mín og bíða eftir mínum armlegg.

Hefjið augu yðar til himins og lítið á jörðina hér neðra; því að himininn mun leysast sundur sem reykur og jörðin fyrnast sem fat og þeir, sem á henni búa, deyja sem mý; en mitt hjálpræði varir eilíflega og mínu réttlæti mun eigi linna.

Hlýðið á mig, þér sem þekkið réttlætið, þú lýður, sem ber lögmál mitt í hjarta þínu: Óttist eigi spott manna og hræðist eigi smánaryrði þeirra;

því að mölur mun eta þá eins og klæði, og maur eta þá eins og ull; en réttlæti mitt varir eilíflega og hjálpræði mitt frá kyni til kyns.

Vakna þú, vakna þú, íklæð þig styrkleika, þú armleggur Drottins; vakna þú, eins og fyr á tíðum, eins og í árdaga! Varst það eigi þú, sem banaðir skrimslinu og lagðir í gegn drekann?

Varst það eigi þú, sem þurkaðir upp hafið, vötn hins mikla djúps, sem gjörðir sjávardjúpin að vegi, svo að hinir endurleystu gætu komist yfir?

Hinir endurkeyptu Drottinn skulu aftur hverfa og koma með fögnuði til Zíonar, og eilíf gleði skal leika yfir höfði þeim; fögnuður og gleði skal fylgja þeim, en hrygð og andvarpan flýja.

Eg, eg er sá, sem hugga yður. Hver ert þú, að þú skulir hrædd vera við mennina, sem eiga að deyja, og mannanna börn, sem feld verða eins og grasið,

en gleymir Drottinn, skapara þínum, sem útþandi himininn og grundvallaði jörðina, og óttast stöðugt liðlangan daginn heift kúgarans? Þegar hann býr sig til að gjöreyða, hvar er þá heift kúgarans?

Brátt skulu þeir, er fjötraðir eru, leystir verða, og þeir skulu eigi deyja og fara í gröfina, né heldur skal þá skorta brauð —

svo sannarlega sem eg er Drottinn, Guð þinn, sá er æsir hafið, svo að bylgjurnar gnýja; Drottinn hersveitanna er nafn hans.

Og eg hefi lagt mín orð í munn þér og skýlt þér undir skugga handar minnar, til þess að gróðursetja himininn og grundvalla jörðina, og til þess að segja við Zion: Þú ert minn lýður!

Hrestu þig upp, hrestu þig upp, rístu upp, Jerúsalem, þú sem drukkið hefir reiðibikar Drottinn, er hönd hans rétti að þér; vímubikarinn hefir þú drukkið í botn!

Af öllum þeim sonum, sem hún hafði alið, var ekki nokkur einn, sem leiddi hana; af öllum þeim sonum, sem hún hafði upp fætt, var enginn, sem tæki í hönd hennar.

Þetta tvent benti þig — hver aumkar þig? — eyðing og umturnun, hungur og sverð — hver huggar þig?

Synir þínir liðu í ómegin og lágu á öllum strætamótum, eins og antilópur í veiðigröf, fullir af reiði Drottins, af hirtingarorðum Guðs þíns.

Fyrir því heyr þú þetta, þú hin vesala, þú sem drukkin ert, og þó ekki af víni:

svo segir Drottinn þinn, Drottinn, og Guð þinn, sem réttir hlut lýðs síns: Sjá, eg tek úr hendi þinni vímubikarinn, skál reiði minnar; þú skalt ekki framar á henni bergja;

eg fæ hana í hendur þeim, sem angra þig, þeim er sögðu við þig: »Varpa þér niður, svo að vér getum gengið á þér!te og þú varðst að gjöra hrygg þinn sem gólf og að götu fyrir vegfarendur.