Jesajabók 52Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 52

Ó Vakna þú, vakna þú, íklæð þig styrkleik þínum, Zíon; klæð þig skartklæðum þínum, Jerúsalem, þú hin heilaga borg, því að enginn óumskorinn eða óhreinn skal framar inn í þig ganga.

Hrist af þér rykið, rís upp og sezt í sæti þitt, Jerúsalem! Losa þú af þér hálsfjötra þína, þú hin hertekna, dóttirin Zíon!

Því að svo segir Drottinn: Þér voruð seldir fyrir ekkert, þér skuluð og án silfurs leystir verða.

Því að svo segir Drottinn Guð: Til Egiptalands fór lýður minn forðum, til þess að dveljast þar um hríð, og Assúr kúgaði hann heimildarlaust.

Og nú, hvað hefi eg hér að gjöra, segir Drottinn, þar sem lýður minn hefir verið burt numinn fyrir ekkert? Yfirdrotnarar hans dramba, Segir Drottinn, og stöðugt er nafn mitt smáð liðlangan daginn.

Fyrir því skal lýður minn fá að þekkja nafn mitt, fá að reyna það á þeim degi, að það er eg, sem segi: Sjá, hér er eg!

Hversu yndislegir eru á fjöllunum fætur fagnaðarboðans, sem friðinn kunngjörir, gleðitíðindin flytur, hjálpræðið boðar og segir við Zíon: Guð þinn er seztur að völdum!

Heyr varðmenn þína; þeir hefja upp raustina allir í einu, þeir æpa fagnaðaróp, því að með eigin augum sjá þeir Drottin hverfa aftur til Zíonar.

Hefjið gleðisöng, æpið fagnaðaróp allar í einu, þér eyðirústir Jerúsalem, því að Drottinn huggar lýð sinn, leysir Jerúsalem.

Drottinn hefir beran gjört heilagan annlegg, sinn í augsýn allra þjóða, og öll endimörk jarðarinnar skulu sjá hjálpræði Guðs vors.

Farið burt, farið burt, gangið út þaðan, snertið ekkert óhreint; gangið burt þaðan, hreinsið yður, þér skjaldsveinar Drottins!

Því að eigi skuluð þér í flýti brott ganga né fara með skyndingu, því að Drottinn fer fyrir yður í fararbroddi og Guð Ísraels gengur aftastur í flokki yðrum.

Sjá, þjónn minn mun giftusamur verða, hann mun verða mikill og veglegur og mjög hátt upp hafinn.

Eins og margir urðu agndofa af skelfingu yfir þér — svo afskræmd var ásýnd hans framar en nokkurs manns og mynd hans framar en nokkurs af mannanna sonum —,

eins mun hann vekja undrun margra þjóða; konungar munu afturlykja munni sínum fyrir honum, því að þeir munu sjá það, sem þeim hefir aldrei verið frá sagt, og verða þess áskynja, er þeir hafa aldrei heyrt.