Jesajabók 53Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 53

Hver trúði því, sem oss var boðað, og hverjum varð armleggur Drottins opinber?

Hann rann upp eins og viðarteinungur fyrir augliti hans og sem rótarkvistur úr þurri jörð. Hann var hvorki fagur né glæsilegur, svo að oss gæfi á að lifa, né álitlegur, svo að oss fyndist til um hann.

Hann var fyrirlitinn, og menn forðuðust hann, harmkvæla-maður og kunnugur þjáningum, líkur manni, er menn byrgja fyrir andlit sín, fyrirlitinn, og vér mátum hann einskis;

en Á vorar þjáningar voru það, sem hann bar, og vor harmkvæli, er hann á sig lagði; vér álitum hann refsaðan, sleginn af Guði og lítiltættan,

en hann var særður vegna vorra synda og kraminn vegna vorra misgjörða; hegningin, sem vér höfðum til unnið, kom niður á honum, og fyrir hans benjar urðum vér heilbrigðir.

Vér fórum allir villir vega sem sauðir, stefndum hver sína leið, en Drottinn lét misgjörð vor allra koma niður á honum.

Hann var hrjáður, en hann litillætti sig og lauk eigi upp munni sínum, eins og lamb, sem leitt er til slátrunar, og eins og sauður þegir fyrir þeim, er klippa hann; hann lauk eigi upp munni sínum.

Með þrenging og dómi var hann burt numinn, og hver af samtíðarmönnum hans hugsaði um það, þá er hann var hrifinn burt af landi lifenda: fyrir sakir syndar míns lýðs var hann lostinn til dauða?

Og menn bjuggu honum gröf meðal illræðismanna, legstað meðal glæpamanna, þótt hann hefði eigi ranglæti framið og svik væru ekki í munni hans.

En Drottinn þóknaðist að kremja hann með harmkvælum: ef hann fórnaði sjálfum sér í sektarfórn, skyldi hann fá að líta afsprengi og lifa langa æfi og áform Drottins fyrir hans hönd framgengt verða.

Vegna þeirra hörmunga, er sál hans þoldi, mun hann sjá og seðjast af þekking sinni; hann, hinn réttláti, þjónn minn, mun gjöra marga réttláta, og hann mun bera misgjörðir þeirra.

Fyrir því gef eg honum hina mörgu að hlutskifti, og hann mun öðlast fjölmarga að herfangi, fyrir það, að hann gaf líf sitt í dauðann og var með illræðismönnum talinn, — hann sem bar syndir margra og bað fyrir illræðismönnum.