Jesajabók 54Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 54

Fagna, þú óbyrja, sem ekki hefir fætt! Hef upp gleðisöng, lát við kveða fagnaðaróp, þú sem eigi hefir haft fæðingarhríðir! Því að börn hinnar yfirgefnu munu fleiri verða en giftu konunnar, segir Drottinn.

Víkka þú út tjald þitt, og lát þá þenja út tjalddúka búðar þinnar, meina þeim það ekki; gjör tjaldstög þín löng og rek fast hælana.

Því að þú munt útbreiðast til hægri og vinstri, og niðjar þínir munu eignast lönd þjóðanna og byggja eyddar borgir.

Óttast eigi, því að þú skalt eigi til skammar verða, lát eigi háðungina á þér festa, því að þú skalt eigi þurfa að fyrirverða þig. Því að þú skalt gleyma vanvirðu æsku þinnar og eigi framar minnast svívirðingar ekkjudóms þíns.

Því að hann, sem skóp þig, er eiginmaður þinn; Drottinn hersveitanna er nafn hans; og hinn Heilagi í Ísrael er frelsari þinn; Guð gjörvallrar jarðarinnar heitir hann.

Því að Drottinn kallar þig sem yfirgefna konu og harmþrungna, og æskunnar brúður — verður henni hafnað? segir Guð þinn.

Skamma stund yfirgaf eg þig, en með mikilli miskunnsemi tek eg þig að mér.

Í ofurreiði minni byrgði eg auglit mitt fyrir þér um stund, en með eilífri líka miskunna eg þér, segir endurlausnari þinn, Drottinn.

Því að það fer eins fyrir mér með þetta og með Nóaflóð: svo sem eg sór þá, að Nóaflóð skyldi ekki framar ganga yfir jörðina, eins sver eg nú að reiðast þér ekki, né ávíta þig.

Því þótt fjöllin færist úr stað og hálsarnir riði, skal mín miskunnsemi við þig ekki færast úr stað og minn friðarsáttmáli ekki raskast, segir miskunnari þinn, Drottinn.

Þú hin vesala, hrakta, huggunarlausa! sjá, eg legg rúbína sem steina í bygging þína og hleð grunnmúra þína af safírsteinum,

ogeg gjöri múrtinda þína af jaspis og hlið þín af roðasteinum og allan ummerkjagarð þinn af dýrindissteinum.

Og allir synir þínir eru lærisveinar Drottins, og synir þínir njóta mikils friðar.

Fyrir réttlæti munt þú stöðug standa; álít þig fjarlæga ofríki, því að þú þarft ekki að óttast, og fjarlæga skelfingu, því að hún skal ekki koma nærri þér.

Ef nokkur áreitir þig, þá er það ekki að mínum vilja; hver, sem áreitir þig, skal falla fyrir þér.

Sjá, eg skapa smiðinn, sem blæs að kolaeldinum og framleiðir vopnið til sinnar notkunar, og eg skapa eyðandann, til þess að leggja í eyði.

Engin vopn, sem smíðuð verða móti þér, skulu verða sigurvænleg, og allar tungur, sem upprísa gegn Þér til málaferla, skalt þú kveða niður. Þetta er hlutskifti þjóna Drottni og það réttlæti, er þeir fá hjá mér, segir Drottinn.