Dagatal

4. sunnudagur á páskatíma

Sunnudagur á páskatíð — vikuleg páskahátíð kirkjunnar.

Páskatíð · Vika 4

Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.

Hvað þýðir það

Messuskylda — kaþólikkar sækja messu þennan dag.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í sunnudagsmessunni

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Kristur, þig kallar á,krossfestan mannsins son,dimmustu djúpum frá,deyjandi trú og von.Sárar en nokkurt sinnsér allt, sem skyni er gætt,hrópandi' í himininnhold þitt í sundur tætt.Skilst þó ei skynjun mannsskelfingin ótalföld.Kveinstöfum hjarta hansharðúðin byrgir köld.Helju er veröld vígð,veit ei sín lausnarorð,sjáandi sér ei drýgðsaklausra bræðra morð.Villtur um veg og ráðvísar þar hver frá sér,allt þar til ógnin bráðyfir hann dynja fer.Þig, sem öll þjáning beit,þig, sem ert heimsins von,ákallar angist heit,upprisinn mannsins son. Amen.

Sálmur 118

Andstef · Ég mun eigi deyja, heldur lifa og kunngjöra verk Drottins, hallelúja.

1Þakkið Drottni, því að hann er góður * því að miskunn hans varir að eilífu.

2Það mæli Ísrael * „Því að miskunn hans varir að eilífu!“

3Það mæli Arons ætt * „Því að miskunn hans varir að eilífu!“

4Það mæli þeir sem óttast Drottin * „Því að miskunn hans varir að eilífu!“

5Í þrengingunni ákallaði ég Drottin * hann bænheyrði mig og rýmkaði um mig.

6Drottinn er með mér, ég óttast eigi * hvað geta menn gjört mér?

7Drottinn er með mér með hjálp sína * og ég mun fá að horfa á ófarir hatursmanna minna.

8Betra er að leita hælis * hjá Drottni en að treysta mönnum,

9betra er að leita hælis * hjá Drottni en að treysta tignarmönnum.

10Allar þjóðir umkringdu mig * en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.

11Þær umkringdu mig á alla vegu * en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.

12Þær umkringdu mig eins og býflugur vax, brunnu sem eldur í þyrnum * en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.

13Mér var hrundið, til þess að ég skyldi falla * en Drottinn veitti mér lið.

14Drottinn er styrkur minn og lofsöngur * og hann varð mér til hjálpræðis.

15Fagnaðar– og siguróp kveður við í tjöldum réttlátra * Hægri hönd Drottins vinnur stórvirki,

16hægri hönd Drottins upphefur * hægri hönd Drottins vinnur stórvirki.

17Ég mun eigi deyja * heldur lifa og kunngjöra verk Drottins.

18Drottinn hefur hirt mig harðlega * en eigi ofurselt mig dauðanum.

19Ljúkið upp fyrir mér hliðum réttlætisins * að ég megi fara inn um þau og lofa Drottin.

20Þetta er hlið Drottins * réttlátir menn fara inn um það.

21Ég lofa þig * af því að þú bænheyrðir mig og ert orðinn mér hjálpræði.

22Steinninn sem smiðirnir höfnuðu * er orðinn að hyrningarsteini.

23Að tilhlutun Drottins er þetta orðið * það er dásamlegt í augum vorum.

24Þetta er dagurinn sem Drottinn hefur gjört * fögnum, verum glaðir á honum.

25Drottinn, hjálpa þú * Drottinn, gef þú gengi!

26Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins * frá húsi Drottins blessum vér yður.

27Drottinn er Guð, hann lætur oss skína ljós. Tengið saman dansraðirnar með laufgreinum * allt inn að altarishornunum.

28Þú ert Guð minn, og ég þakka þér * Guð minn, ég vegsama þig.

29Þakkið Drottni, því að hann er góður * því að miskunn hans varir að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég mun eigi deyja, heldur lifa og kunngjöra verk Drottins, hallelúja.

Sálmur — Dn 3, 52-57 — Öll sköpunin lofi Drottin

Andstef · Blessað sé dýrðlegt og heilagt nafn þitt, hallelúja.

52„Blessaður ert þú, Drottinn, Guð feðra vorra, og lofs verður og vegsamaður og upp hafinn yfir allt að eilífu * og blessað er hið heilaga nafn dýrðar þinnar og lofs vert og upp hafið yfir allt um allar aldir.

53Blessaður ert þú í hinu heilaga musteri dýrðar þinnar * og mjög lofs verður og mjög dýrlegur að eilífu.

54Blessaður ert þú í hásæti ríkis þíns * og mjög lofs verður og upp hafinn yfir allt að eilífu.

55Blessaður ert þú, sem lítur í djúpin og situr yfir kerúbunum * og lofs verður og upp hafinn yfir allt að eilífu.

56Blessaður ert þú á festingu himinsins * og lofs verður og dýrlegur að eilífu.

57Öll verk Drottins, blessið Drottin * lofið hann og hefjið hann yfir allt að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Blessað sé dýrðlegt og heilagt nafn þitt, hallelúja.

Sálmur 150

Andstef · Gefið Guði vorum heiður og dýrð; allt sem hann gerir er fullkomið og allir vegir hans eru sannir, hallelúja.

1Hallelúja. Lofið Guð í helgidómi hans * lofið hann í voldugri festingu hans!

2Lofið hann fyrir máttarverk hans * lofið hann eftir mikilleik hátignar hans!

3Lofið hann með lúðurhljómi * lofið hann með hörpu og gígju!

4Lofið hann með bumbum og gleðidansi * lofið hann með strengleik og hjarðpípum!

5Lofið hann með hljómandi skálabumbum * lofið hann með hvellum skálabumbum!

6Allt sem andardrátt * hefur lofi Drottin! Hallelúja!

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Gefið Guði vorum heiður og dýrð; allt sem hann gerir er fullkomið og allir vegir hans eru sannir, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

P 10, 40-43Guð uppvakti Jesú á þriðja degi og lét hann birtast, ekki öllum lýðnum, heldur þeim vottum, sem Guð hafði áður kjörið, oss, sem átum og drukkum með honum, eftir að hann var risinn upp frá dauðum. Og hann bauð oss að prédika fyrir lýðnum og vitna, að hann er sá dómari lifenda og dauðra, sem Guð hefur fyrirhugað. Honum bera allir spámennirnir vitni, að sérhver, sem á hann trúir, fái fyrir hans nafn fyrirgefningu syndanna.

Stutt svarvers

Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, miskunna þú oss, * hallelúja, hallelúja.

Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, miskunna þú oss, * hallelúja, hallelúja.

Þú ert upp risinn frá dauðum,

hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, miskunna þú oss, * hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Ég er dyr sauðanna. Sá sem kemur inn um mig mun frelsast, og hann mun finna haga, hallelúja.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Guð Faðir almáttugur reisti Jesúm upp sem frumburðinn frá hinum dauðu og gjörði hann að Frelsara vorum. Áköllum hann og segjum:Gef oss, Drottinn, dýrð Sonar þíns.Alheilagi Faðir, þú fluttir elskaðan Son þinn úr myrkri dauðans inn í ljóma dýrðar þinnar,flyt oss einnig inn í undursamlegt ljós þitt.Þú hefur gefið oss trú til að frelsa oss,megum vér lifa á degi þessum eftir trú skírnar vorrar.Þú bauðst oss að keppast eftir því sem er hið efra, þar sem Kristur situr við hægri hönd þína,lát oss ekki blekkjast af ginningum syndarinnar.Megi líf vort, fólgið með Kristi í þér, Faðir vor, skína frammi fyrir heiminum,og vita á nýjan himinn og nýja jörð.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almátugi, eilífi Guð, leið oss inn til hins fagnandi samfélags á himnum, svo að vanmegnung hjörðin sé hjá óbugandi hirði sínum. Sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Nú vil eg enn í nafni þínu,náðugi Guð sem léttir pínu,mér að minni hvílu hallaog heiðra þig fyrir gæsku allaþáða af þér á þessum degi,því er skylt eg gleymi eigi.En það má eg aumur játa,angri vafinn sýta og gráta,móðgað hef eg margfaldlegamildi þína guðdómlega.Útslétt mínar syndir svartar,sundurkramið lækna hjarta.Þá mun ásókn illra andaei hið minnsta kunna að granda.Lát mig þenkja á þessu kvöldiþað eg lifi i veiku holdi,brothætt gler og bólan þunnabrotna senn og hjaðna kunna.Þú einn, Guð, skalt þar um ráðaþínar kný eg á dyr náðaraf míns hjarta innsta grunniandvarpa og bið með munni.Þegar eg skal seinast sofnasál viðskilur, fjörið dofnar,hjartans faðir, í hendur þínarhverfa lát þá öndu mína.Hold í jörðu hægt lát blundahelgra svo þar bíði fundaog upprisinn að eg víkiinn með þér í himnaríki.Þar mun eg þúsund þakkir færa,þér sé lofgjörð, prís og æra. Amen.

Sálmur 110, 1-5. 7

Andstef · Keppist eftir því, sem er hið efra, þar sem Kristur situr við hægri hönd Guðs, hallelúja.

1Svo segir Drottinn við drottin minn: „Sest þú mér til hægri handar * þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.“

2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon * drottna þú mitt á meðal óvina þinna!

3Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu * skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.

4Drottinn hefur svarið, og hann iðrar þess eigi * „Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“

5Drottinn er þér til hægri handar * hann knosar konunga á degi reiði sinnar.

7Á leiðinni drekkur hann úr læknum * þess vegna ber hann höfuðið hátt.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Keppist eftir því, sem er hið efra, þar sem Kristur situr við hægri hönd Guðs, hallelúja.

Sálmur 112

Andstef · Í myrkrinu rennur hann upp: Ljós fyrir réttlát hjörtu, hallelúja.

1Hallelúja. Sæll er sá maður * sem óttast Drottin og hefur mikla unun af boðum hans.

2Sæði hans verður voldugt á jörðunni * ætt réttvísra mun blessun hljóta.

3Nægtir og auðæfi eru í húsi hans * og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu.

4Hann upprennur réttvísum sem ljós í myrkrinu * mildur og meðaumkunarsamur og réttlátur.

5Vel farnast þeim manni, sem er mildur og fús að lána * sem framkvæmir málefni sín með réttvísi,

6því að hann mun eigi haggast að eilífu * hins réttláta mun minnst um eilífð.

7Hann óttast eigi ill tíðindi * hjarta hans er stöðugt og treystir Drottni.

8Hjarta hans er öruggt, hann óttast eigi * og loks fær hann að horfa á fjendur sína auðmýkta.

9Hann hefur miðlað mildilega, gefið fátækum * réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu, horn hans gnæfir hátt í vegsemd.

10Hinn óguðlegi sér það, og honum gremst * nístir tönnum og tortímist. Ósk óguðlegra verður að engu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Í myrkrinu rennur hann upp: Ljós fyrir réttlát hjörtu, hallelúja.

Sálmur — Opb 19, 1-2. 5-7

Andstef · Hallelúja. Hjálpræðið og dýrðin og mátturinn eru Guðs vors, hallelúja.

1Eftir þetta heyrði ég sem sterkan ym mikils fjölda á himni. Þeir sögðu * „Hallelúja! Hjálpræðið og dýrðin og mátturinn er Guðs vors.

2Sannir og réttlátir eru dómar hans. Hann hefur dæmt skækjuna miklu * sem jörðunni spillti með saurlifnaði sínum, og hann hefur látið hana sæta hefnd fyrir blóð þjóna sinna.“

5Og frá hásætinu barst rödd, er sagði: „Lofsyngið Guði vorum * allir þér þjónar hans, þér sem hann óttist, smáir og stórir.“

6Þá heyrði ég raddir sem frá miklum mannfjölda og sem nið margra vatna og sem gný frá sterkum þrumum. Þær sögðu * „Hallelúja, Drottinn Guð vor, hinn alvaldi, er konungur orðinn.

7Gleðjumst og fögnum og gefum honum dýrðina * því að komið er að brúðkaupi lambsins og brúður hans hefur búið sig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hallelúja. Hjálpræðið og dýrðin og mátturinn eru Guðs vors, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

Heb 10, 12-14Jesús bar fram eina fórn fyrir syndirnar og settist um aldur við hægri hönd Guðs og bíður þess síðan, að óvinir hans verði gjörðir að fótskör hans. Því að með einni fórn hefur hann um aldur fullkomnað þá, er helgaðir verða.

Stutt svarvers

Drottinn er sannarlega upp risinn, * hallelúja, hallelúja.

Drottinn er sannarlega upp risinn, * hallelúja, hallelúja.

Og hefur birst Símoni,

hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn er sannarlega upp risinn, * hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Ég er góði hirðirinn sauðanna; ég er kominn til þess að þeir hafa líf, líf í fullri gnægð, hallelúja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, miskunna lýð þínum.Verndaðu Kirkjuna.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Frelsaðu lýð þinn.Varðveittu friðinn.Lýstu trúleysingjum.Leiddu þá sem stjórna þjóðum.Hjálpaðu fátækum.Huggaðu sorgmædda.Miskunna þú munaðarlausum.Taktu á móti dánum.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almátugi, eilífi Guð, leið oss inn til hins fagnandi samfélags á himnum, svo að vanmegnung hjörðin sé hjá óbugandi hirði sínum. Sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Konungur lífsins kemur hér til sala,kveður til fylgdar börnin jarðardala,undan þeim fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann.Hertygi ljóssins lífsins konung skrýða,lýsir af bitru orðsins sverði víða,konungs á höfði kostuleg mun skartakórónan bjarta.Alvæpni Guðs hann öllum mönnum gefur,eðalstein lífsins hann á skjöldinn grefur,skeyti þá engin skaða mega vinna,skjól er hann sinna.Fátæka barn, til fylgdar þig hann krefur,fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur,sakleysið verndar, sorg í gleði breytir,sigurinn veitir.Styrki oss Guð að velja veginn rétta,viskan og náðin sveig úr rósum flétta,undan þér fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann. Amen.

Sálmur 91

Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta * sá er gistir í skugga Hins almáttuga,

2sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg * Guð minn, er ég trúi á!“

3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans * frá drepsótt glötunarinnar,

4hann skýlir þér með fjöðrum sínum * undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.

5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar * eða örina, sem flýgur um daga,

6drepsóttina, er reikar um í dimmunni * eða sýkina, er geisar um hádegið.

7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar * þá nær það ekki til þín.

8Þú horfir aðeins á með augunum * sér hversu óguðlegum er endurgoldið.

9Þitt hæli er Drottinn * þú hefur gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.

10Engin ógæfa hendir þig * og engin plága nálgast tjald þitt.

11Því að þín vegna býður hann út englum sínum * til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.

12Þeir munu bera þig á höndum sér * til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.

13Þú skalt stíga ofan á ljón og nöðrur * troða fótum ung ljón og dreka.

14„Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann * ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.

15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann * ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.

16Ég metta hann með fjöld lífdaga * og læt hann sjá hjálpræði mitt.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

Opb 22, 4-5Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.

Stutt svarvers

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði, hallelúja.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Drottinn, vér biðjum þig að vitja þessa húss, og halda snörum óvinarins fjarri því. Megi heilagir englar þínir dvelja hér og varðveita oss í friði og lát blessun þína ávallt hvíla yfir oss. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Fagna þú, Drottning himinsins,hallelúja (hallelúja),Því að hann sem þér veittist sú náð að ganga með,hallelúja (hallelúja),Hann er upprisinn, svo sem hann sagði,hallelúja (hallelúja);Bið Guð fyrir osshallelúja (hallelúja).

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007