Dagatal

Markús guðspjallamaður

Hátíðisdagur — dagur sem kirkjan heldur sérstaklega upp á.

Páskatíð · Vika 3

Litur dagsins er rauður — litur píslarvotta og hins Heilaga Anda.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Guðs föður dýrðar dásöm mynd,dagsins eilífa heilög lind,alheimsins ljós og líf og von,lof sé þér, Guðs og mannsins son.Sól þinnar náðar helg og hlýheilsar oss alla morgna ný.Hjartað vakni og heilsi þér,hylli þitt sanna ljós sem ber.Renni oss upp þín sannleikssól,sigri hún það, sem myrkrið ól,lát guðdómsanda geislann þinngreiða þér veg í hjörtun inn.Morgunn af þinni miskunn skín,myrkrin öll sigrar gæskan þín,lúti vor sála sigri þeim,sjái og boði ljóssins heim.Þú ert vor dagur, vernd og vörn,varðveit í trúnni öll þín börn.Veit oss að bera vitni þér,vera þér trú á jörðu hér.Dagurinn fagur fari um heim,finni vor sál þinn tæra hreimí gegnum alla hljóma hansmeð helgri þökk til skaparans.Lind allrar náðar, lífsins brauð,líknin í hverri þraut og nauð,alvaldi Drottinn, einum þér,eilíf vegsemd og lotning ber. Amen.

Sálmur 119, 145-152

Andstef · Orðin sem ég hef talað til yðar, þau eru andi og þau eru líf, hallelúja.

145Ég kalla af öllu hjarta, bænheyr mig * Drottinn, ég vil halda lög þín.

146Ég ákalla þig, hjálpa þú mér * að ég megi varðveita reglur þínar.

147Ég er á ferli fyrir dögun * og hrópa og bíð orða þinna.

148Fyrr en vakan hefst eru augu mín * vökul til þess að íhuga orð þitt.

149Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni * lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.

150Þeir eru nærri, er ofsækja mig af fláræði * þeir eru langt burtu frá lögmáli þínu.

151Þú ert nálægur, Drottinn * og öll boð þín eru trúfesti.

152Fyrir löngu hefi ég vitað um reglur þínar * að þú hefur grundvallað þær um eilífð.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Orðin sem ég hef talað til yðar, þau eru andi og þau eru líf, hallelúja.

Sálmur — SS 9, 1-6. 9-11 — Drottinn, gef mér visku

Andstef · Drottinn, þú hefur reist musteri og altari á þínu heilaga fjalli, hallelúja.

1„Guð feðra minna og Drottinn miskunnarinnar * þú sem gjörðir alla hluti með orði þínu

2og skipaðir manninn með speki þinni * að hann skyldi drottna yfir sköpuninni, sem af þér var gjörð,

3að hann skyldi stjórna heiminum eftir jöfnuði * og réttlæti og fullnægja rétti með einlægu hjarta:

4Gef mér spekina, sem situr hjá hásæti þínu * og hafna mér eigi meðal barna þinna.

5Því að ég er þjónn þinn og sonur ambáttar þinnar * veikur maður og skammær og skortir skilning á dómi og lögum.

6Því að þótt einhver sé fullkominn meðal mannanna barna * mun hann að engu metinn verða, ef speki þín er eigi með honum.

9Og speki þín er með þér, sú sem þekkir verk þín og var og viðstödd * þegar þú gjörðir heiminn, og vissi, hvað þóknanlegt var augum þínum og hvað rétt var í boðorðum þínum.

10Send hana út af þínum heilaga himni og frá hásæti tignar þinnar * að hún sé með mér og vinni með mér, að ég megi vita, hvað þér er þóknanlegt.

11Því að hún þekkir og skilur alla hluti og mun leiða * mig hóflega í verkum mínum og varðveita mig með mætti sínum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, þú hefur reist musteri og altari á þínu heilaga fjalli, hallelúja.

Sálmur 117

Andstef · Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið, hallelúja.

1Lofið Drottin, allar þjóðir * vegsamið hann, allir lýðir,

2því að miskunn hans er voldug yfir oss * og trúfesti Drottins varir að eilífu. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

Rm 14, 7-9Enginn af oss lifir sjálfum sér og enginn deyr sjálfum sér. Ef vér lifum, lifum vér Drottni, og ef vér deyjum, deyjum vér Drottni. Hvort sem vér þess vegna lifum eða deyjum, þá erum vér Drottins. Því að til þess dó Kristur og varð aftur lifandi, að hann skyldi drottna bæði yfir dauðum og lifandi.

Stutt svarvers

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Hann, sem hékk á krossinum fyrir oss,

hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn er risinn upp úr gröfinni, * hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Símon Pétur sagði: Drottinn, til hvers ættum vér að fara? Þú hefur orð eilífs lífs, og vér trúum og vitum, að þú ert Kristur, Sonur Guðs, hallelúja.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Kristur er brauð lífsins, hann mun reisa upp á efsta degi alla sem hlut eiga í borði orðs hans og líkama. Biðjum í fögnuði:Drottinn, gef oss frið og fögnuð.Sonur Guðs, þú varst reistur upp frá dauðum til að leiða oss til lífsins,blessa og helga öll börn Föður þíns.Þú gefur frið og fögnuð öllum þeim sem trúa á þig,veit að vér megum ganga sem börn ljóssins, fagnandi í sigri þínum.Byggðu upp trú líðandi Kirkju þinnar á jörðu,til að hún megi bera upprisu þinni vitni frammi fyrir öllum heiminum.Þú leiðst píslir og gekkst þannig inn til dýrðar Föðurins,breyttu tárum hinna sorgmæddu í fögnuð.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, þú hefur í skírninni endurnýjað þá, sem á þig trúa. Vernda þá, sem endurfæddir eru í Kristi, svo að þeir fái sigrað allar árásir villunnar og varðveiti af trúmennsku þá náð, sem þú hefur auðsýnt þeim. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Nú vil eg enn í nafni þínu,náðugi Guð sem léttir pínu,mér að minni hvílu hallaog heiðra þig fyrir gæsku allaþáða af þér á þessum degi,því er skylt eg gleymi eigi.En það má eg aumur játa,angri vafinn sýta og gráta,móðgað hef eg margfaldlegamildi þína guðdómlega.Útslétt mínar syndir svartar,sundurkramið lækna hjarta.Þá mun ásókn illra andaei hið minnsta kunna að granda.Lát mig þenkja á þessu kvöldiþað eg lifi i veiku holdi,brothætt gler og bólan þunnabrotna senn og hjaðna kunna.Þú einn, Guð, skalt þar um ráðaþínar kný eg á dyr náðaraf míns hjarta innsta grunniandvarpa og bið með munni.Þegar eg skal seinast sofnasál viðskilur, fjörið dofnar,hjartans faðir, í hendur þínarhverfa lát þá öndu mína.Hold í jörðu hægt lát blundahelgra svo þar bíði fundaog upprisinn að eg víkiinn með þér í himnaríki.Þar mun eg þúsund þakkir færa,þér sé lofgjörð, prís og æra. Amen.

Sálmur 122

Andstef · Megi friður Krists fylla hjörtu yðar fögnuði, hallelúja.

1Ég varð glaður, er menn sögðu við mig * „Göngum í hús Drottins.“

2Fætur vorir standa * í hliðum þínum, Jerúsalem.

3Jerúsalem, þú hin endurreista * borgin þar sem öll þjóðin safnast saman,

4þangað sem kynkvíslirnar fara, kynkvíslir Drottins – það er regla fyrir Ísrael * til þess að lofa nafn Drottins,

5því að þar standa dómarastólar * stólar fyrir Davíðs ætt.

6Biðjið Jerúsalem friðar * hljóti heill þeir, er elska þig.

7Friður sé kringum múra þína * heill í höllum þínum.

8Sakir bræðra minna og * vina óska ég þér friðar.

9Sakir húss Drottins, Guðs vors * vil ég leita þér hamingju.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Megi friður Krists fylla hjörtu yðar fögnuði, hallelúja.

Sálmur 130

Andstef · Með blóði þínu hefur þú endurleyst oss Guði til handa, hallelúja.

1Úr djúpinu ákalla * ég þig, Drottinn,

2Drottinn, heyr þú raust mína * lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína!

3Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum * Drottinn, hver fengi þá staðist?

4En hjá þér er fyrirgefning * svo að menn óttist þig.

5Ég vona á Drottin, sál mín vonar * og hans orðs bíð ég.

6Meir en vökumenn morgun * vökumenn morgun, þreyr sál mín Drottin.

7Ó Ísrael, bíð þú Drottinn, því að hjá Drottni er miskunn * og hjá honum er gnægð lausnar.

8Hann mun leysa Ísrael * frá öllum misgjörðum hans.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Með blóði þínu hefur þú endurleyst oss Guði til handa, hallelúja.

Sálmur — Fil 2, 6-11 — Um Krist, þjónn Guðs

Andstef · Átti ekki Kristur að líða þetta og ganga svo inn i dýrð sína? Hallelúja.

6Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki * með það sem feng sinn að vera Guði líkur.

7Hann svipti sig öllu * tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur.

8Hann kom fram sem maður * lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi.

9Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið * sem hverju nafni er æðra,

10til þess að í nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni * jörðu og undir jörðu

11og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar * Jesús Kristur er Drottinn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Átti ekki Kristur að líða þetta og ganga svo inn i dýrð sína? Hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

1Pt 2, 9-10Þér eruð útvalin kynslóð, konunglegt prestafélag, heilög þjóð, eignarlýður, til þess að þér skuluð víðfrægja dáðir hans, sem kallaði yður frá myrkrinu til síns undursamlega ljóss. Þér sem áður voruð ekki lýður eruð nú orðnir Guðs lýður. Þér, sem ekki nutuð miskunnar, hafið nú miskunn hlotið.

Stutt svarvers

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Þegar þeir sáu Drottin upp risinn,

hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Lærisveinarnir fögnuðu, * hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Sannlega, sannlega, segi ég yður: Sá sem kemur inn um dyrnar, er hirðir sauðanna. Hann fer á undan þeim, og þeir fylgja honum, af því að þeir þekkja raust hans, hallelúja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, hjálpaðu lýð þínum.Leiddu mannkynið með starfi Kirkjunar til einingar.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn með blessun þinni N.Leiddu djákna með Anda þínum.Helgaðu trúaða.Vertu ráðgjafi handverksmanna.Leiddu ríka til að nota eigur sínar rétt.Verndaðu veika.Frelsaðu bandingja.Vernda oss frá jarðhræringum.Verndaðu oss frá óvæntum dauða.Veittu látnum alsæla sýn auglits þíns.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almátugi, eilífi Guð, leið oss inn til hins fagnandi samfélags á himnum, svo að vanmegnung hjörðin sé hjá óbugandi hirði sínum. Sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Konungur lífsins kemur hér til sala,kveður til fylgdar börnin jarðardala,undan þeim fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann.Hertygi ljóssins lífsins konung skrýða,lýsir af bitru orðsins sverði víða,konungs á höfði kostuleg mun skartakórónan bjarta.Alvæpni Guðs hann öllum mönnum gefur,eðalstein lífsins hann á skjöldinn grefur,skeyti þá engin skaða mega vinna,skjól er hann sinna.Fátæka barn, til fylgdar þig hann krefur,fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur,sakleysið verndar, sorg í gleði breytir,sigurinn veitir.Styrki oss Guð að velja veginn rétta,viskan og náðin sveig úr rósum flétta,undan þér fer hann, friðarmerkið ber hann,frelsari er hann. Amen.

Sálmur 4

Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]

4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]

6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.

7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hallelúja, hallelúja, hallelúja.

Stuttur ritningarlestur

5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.

Stutt svarvers

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Hallelúja, hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, í þínar hendur fel ég anda minn. * Hallelúja, hallelúja.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði, hallelúja.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Fagna þú, Drottning himinsins,hallelúja (hallelúja),Því að hann sem þér veittist sú náð að ganga með,hallelúja (hallelúja),Hann er upprisinn, svo sem hann sagði,hallelúja (hallelúja);Bið Guð fyrir osshallelúja (hallelúja).

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007