Markúsarguðspjall 16Krans-útgáfa

Markúsarguðspjall 16

Og er hvíldardagurinn var liðinn, keyptu þær María Magdalena og María móðir Jakobs og Salóme ilmsmyrsl, til að fara og smyrja hann.

Og mjög árla hinn fyrsta dag vikunnar koma þær til grafarinnar, um sólar uppkomu.

Og þær sögðu sín á milli: Hver mun velta fyrir oss steininum frá grafardyrunum?

Og er þær litu upp, sjá þær, að steininum var velt um koll, því að hann var mjög stór.

Og þær gengu inn í gröfina og sáu ungan mann sitjandi hægramegin, hjúpaðan hvítum dragkyrtli, og þær skelfdust.

Og hann segir við þær: Skelfist eigi; þér leitið að Jesú frá Nazaret, hinum krossfesta; hann er upp risinn, hann er ekki hér; sjá, þarna er staðurinn, þar sem þeir lögðu hann.

En gangið burt, segið lærisveinum hans og Pétri: Hann fer á undan yður til Galíleu; þar munuð þér sjá hann, eins og hann sagði yður.

Og þær fóru út og flýðu frá gröfinni, því að ótti og ofboð var yfir þær komið, og engum sögðu þær frá neinu, því að þær voru hræddar.

Og er hann var upp risinn árla hinn fyrsta dag vikunnar, birtist hann fyrst Maríu Magdalenu, henni, sem hann hafði rekið út frá sjö illa anda.

Hún fór og kunngjörði þetta þeim, sem með honum höfðu verið, er voru harmandi og grátandi.

Og er þeir heyrðu, að hann væri á lífi og að hún hefði séð hann, trúðu þeir ekki.

En eftir þetta birtist hann tveimur af þeim í annarri mynd, er þeir voru á gangi, á leið út á landsbygð.

Og þeir fóru og kunngjörðu hinum, og eigi trúðu þeir þeim heldur.

En seinna birtist hann þeim ellefu, er þeir sátu yfir borðum, og álasaði hann þeim fyrir vantrú þeirra og harðúð hjartans, að þeir hefðu ekki trúað þeim, er höfðu séð hann upp risinn.

Og hann sagði við þá: Farið út um allan heiminn og prédikið gleðiboðskapinn allri skepnu.

Sá, sem trúir og verður skírður, mun hólpinn verða, en sá, sem ekki trúir, mun fyrirdæmdur verða.

En þessi tákn skulu fylgja þeim, er trúa: Í mínu nafni munu þeir reka út illa anda, tala nýjum tungum,

taka upp höggorma; og þó að þeir drekki eitthvað banvænt, þá mun það alls ekki saka þá; og þeir munu leggja hendur yfir sjúka, og þeir munu verða heilir.

Og síðan var Drottinn Jesús, eftir að hann hafði talað við þá, upp numinn til himins og settist til Guðs hægri handar.

En þeir fóru út og prédikuðu alstaðar, og var Drottinn í verki með þeim, og staðfesti orðið með táknunum, er samfara voru. Amen.