Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Etans-maskíl Esraita.
Um náðarverk Drottins vil eg syngja að eilífu, kunngjöra trúfesti þína með munni mínum frá kyni til kyns,
því að þú hefir sagt: náðin skal upp bygð að eilífu, á himninum grundvallaðir þú trúfesti þína.
Eg hefi gjört sáttmála við minn útvalda, unnið Davíð þjóni mínum svolátandi eið:
Eg vil staðfesta afspring þinn að eilífu, reisa hásæti þitt frá kyni til kyns. Sela.
Þá lofuðu himnarnir dásemdarverk þín, Drottinn, og söfnuður heilagra trúfesti þína;
því að hver er í himninum jafn Drottinn, hver er líkur Drottins meðal guðasonanna?
Guð er ægilegur í hóp heilagra, mikill er hann ogóttalegur öllum þeim, sem eru umhverfis hann.
Drottinn, Guð hersveitanna, hver er eins sterkur og þú, Jah? Og trúfesti þín er umhverfis þig.
Þú ræður yfir ofstopa hafsins; þegar öldur þess hefjast, stöðvar þú þær.
Þú knosaðir skrimslið eins og veginn mann, með þínum volduga armlegg tvístraðir þú óvinum þínum.
Þinn er himininn, þín er og jörðin, þú hefir grundvallað veröldina og alt, sem í henni er.
Þú hefir skapað norðrið og suðrið, Tabor og Hermon fagna yfir nafni þínu.
Þú hefir máttugan armlegg, hönd þín er sterk, hátt upphafin hægri hönd þín.
Réttlæti og réttvísi er grundvöllur hásætis þíns, miskunn og trúfesti ganga fram fyrir þig.
Sæll er sá lýður, sem þekkir fagnaðarópið, sem gengur í ljósi auglitis þíns, Drottinn.
Þeir gleðjast yfir nafni. þínu liðlangan daginn og fagna yfir réttlæti þínu,
því að þú ert þeirra máttug prýði, og sakir velþóknunar þinnar munt þú hefja horn vort,
því að Drottinn heyrir skjöldur vor, og konungur vor hinum Heilaga í Ísrael.
Þá talaðir þú í sýn til dýrkanda þíns af og sagðir: Eg hefi sett kórónu á kappa, eg hefi upphafið útvaldan mann af lýðnum;
eg hefi fundið Davíð þjón minn, smurt hann með minni heilögu olíu,
til þess að hönd mín megi gjöra hann stöðugan og armleggur minn styrkja hann.
Óvinurinn skal eigi ráðast að honum og ekkert illmenni skal kúga hann,
heldur skal eg gjöra út af við fjendur hans að honum ásjáandi og hatursmenn hans skal eg ljósta.
trúfesti mín og miskunn skulu vera með honum, og fyrir sakir nafns míns skal horn hans gnæfa hátt;
eg legg hönd hans á hafið og hægri hönd hans á fljótin.
Hann mun segja við mig: Þú ert faðir minn, Guð minn og klettur hjálpræðis míns.
Og eg vil gjöra hann að frumgetning, að hinum hæsta meðal konunga jarðarinnar.
Eg vil varðveita miskunn mína við hann að eilífu, og sáttmáli minn við hann skal stöðugur standa.
Eg læt niðja hans haldast við um aldur og hásæti hans meðan himininn er til.
Ef synir hans hafna lögmáli mínu og ganga eigi eftir boðum mínum;
ef þeir vanhelga lög mín og varðveita eigi boðorð mín,
þá vil eg vitja afbrota þeirra með vendinum og misgjörða þeirra með plágum,
en miskunn mína mun eg ekki frá honum taka og eigi bregða trúfesti minni.
Eg vil eigi vanhelga sáttmála minn og eigi breyta því, er mér hefir af vörum liðið;
Og hefi einu sinni svarið við heilagleik minn og mun aldrei svíkja Davíð:
niðjar hans skulu haldast við um aldur og hásæti hans sem sólin fyrir mér.
Það skal standa stöðugt að eilífu sem tunglið, svo sannarlega sem áreiðanlegt vitni er á himnum. Sela.
Og þó hefir þú útskúfað og hafnað og reiðst þínum smurða;
bú hefir riftað sáttmálanum við þjón þinn, vanhelgað kórónu hans og fleygt henni til jarðar;
þú hefir brotið niður alla múrveggi hans og lagt virki hans í eyði;
allir vegfarendur ræna hann, hann er til háðungar orðinn nágrönnum sínum;
þú hefir hafið hægri hönd fjenda hans, glatt alla óvini hans;
þú hefir og látið sverðseggjar hans hörfa undan é og eigi látið hann standast í bardaganum;
þú hefir látið endi á verða vegsemd hans og hrundið hásæti hans til jarðar;
bú hefir stytt æskudaga hans og hulið hann skömm. Sela.
Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú eiliflega að dyljast, á reiði þín að brenna sem eldur?
Minst þú, Drottinn, hvað æfín er, til hvílíks hégóma þú hefir skapað öll mannanna börn.
Hver er sá, er lifi og sjái eigi dauðann, sá er bjargi sálu sinni úr greipum heljar? Sela.
Hvar eru þín fyrri náðarverk, ó Drottinn, þau er þú í trúfesti þinni sórst Davíð?
Minst, ó Drottinn, háðungar þjóna þinna, að eg verð að bera í skauti smánan margra þjóða,
er óvinir þínir, Drottinn, smána mig með, smána fótspor þíns smurða.
Lofaður sé Drottinn að eilífu. Amen. Amen. Fjórða bóli.