Saltarinn 88Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 88

Ljóð. Kóraíta-sálmur. Til helgisöngs. Syngist með Makalat-lagi. Hemans-maskíl Esraíta.

Drottinn, Guð minn, eg kalla um daga, um nætur hrópa eg frammi fyrir þér.

Lát bæn mína koma fyrir þig, hneig eyra að hrópi mínu,

því að sál mín er mett orðin af böli og líf mitt nálægist helju.

Eg er talinn með þeim, sem gengnir eru til grafar, eg er sem magnþrota maður.

Mér er fenginn bústaður með framliðnum, eins og vegnum mönnum, er liggja í gröfinni, er þú minnist eigi framar, því að þeir eru hrifnir burt úr hendi þinni.

Þú hefir lagt mig í gryfju undirheima, í myrkrið niðri Í djúpinu.

Heift þín liggur á mér og alla boða þína hefir þú látið skella á mér, Sela.

Þú hefir fjarlægt frá mér kunningja mína, gjört mig að andstygð í augum þeirra; eg er byrgður inni og kemst ekki út.

Augu mín eru döpruð af eymd;. eg ákalla þig, Drottinn, dag hvern, breiði út hendurnar í móti þér.

Gjörir þú furðuverk vegna framliðinna, eða munu vofurnar rísa upp til þess að lofa þig? Sela.

Er sagt frá miskunn þinni í gröfinni, frá trúfesti þinni í undirdjúpunum?

Eru furðuverk þín kunngjörð í myrkrinu eða réttlæti þitt í landi gleymskunnar?

En eg hrópa til þín, Drottinn, og á morgnana kemur bæn mín fyrir þig.

Hví útskúfar þú, Drottinn, sálu minni, hylur auglit þitt fyrir mér?

Eg er aumur og deyjandi frá æsku, eg ber skelfingar þínar og er ráðþrota.

Reiðiblossar þínir ganga yfir mig, ógnir þínar eyða mér.

Þær umkringja mig eins og vötn liðlangan daginn, lykja um mig allar saman.

Þú hefir fjarlægt frá mér ástvini og félaga og gjört myrkrið að kunningja mínum.