Saltarinn 87Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 87

Kóraíta-sálmur. Ljóð.

Drottinn elskar borg sína á heilögum fjöllum, hlið Zíonar framar öllum bústöðum Jakobs.;

Dýrlega er talað um þig, þú borg Guðs. Sela.

Eg nefni Rahab og Babel vegna játenda minna þar, hér er Filistea og Týrus, ásamt Blálandi, einn er fæddur hér, annar þar.

En Zíon kallast móðirin, hver og einn er fæddur í henni, og hann, hinn hæsti, verndar hana.

Drottinn telur saman í þjóða-skránum: einn er fæddur hér, annar þar.

Og menn syngja eins og þeir, er stíga dans: allar uppsprettur mínar eru í þér.