Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Davíðs-bæn. Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig, því að eg er volaður og aumur.
Vernda líf mitt, því að eg er guðhræddur, hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér.
Ver mér náðugur, Drottinn, því að þig ákalla eg liðlangan daginn.
Gleð þú sál þjóns þíns, því að til þín, Drottinn, hef eg sál mína.
Því að þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæzkuríkur öllum þeim, er ákalla þig.
Hlýð, Drottinn, á bæn mína, og gef gaum grátbeiðni minni.
Þegar eg er í nauðum staddur ákalla eg þig, því að þú bænheyrir mig.
Enginn er sem þú meðal guðanna, Drottinn, og ekkert er sem þín verk.
Allar þjóðir, er þú hefir skapað, munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt.
Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk, þú einn, ó Guð!
Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í trúfesti þinni, gef mér heilt hjarta, til þess að óttast nafn þitt.
Eg vil lofa þig, Drottinn, Guð minn, af öllu hjarta og tigna nafn þitt að eilífu,
því að miskunn þín er mikil við mig og þú hefir frelsað sál mína frá djúpi heljar.
Guð, ofstopamenn hefjast gegn mér, og hópur ofríkismanna sækist eftir lífi mínu, eigi hafa þeir þig fyrir augum.
En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð, þolinmóður og gæzkuríkur og harla trúfastur.
Snú þér að mér og ver mér náðugur, veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar.
Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.