Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Kóraíta-sálmur.
Þú hefir, Drottinn, haft þóknun á landi þínu, snúið við hag Jakobs,
þú hefir fyrirgefið misgjörð lýðs þíns, hulið allar syndir þeirra. Sela.
Þú hefir dregið að þér alla bræði þína, látið af heiftarreiði þinni.
Lát oss rétta við aftur, þú Guð hjálpræðis vors, og lát af gremju þinni í gegn oss.
Ætlar þú þá að vera oss reiður um eilifð, láta reiði þína haldast við frá kyni til kyns?
Vilt þú eigi láta oss lifna við aftur, svo að lýður þinn megi gleðjast yfir þér?
Lát oss, Drottinn, sjá miskunn þína og veit oss hjálpræði þitt.
Eg vil hlýða á það, sem Guð Drottins talar; hann talar frið til lýðs síns og til dýrkenda sinna og til þeirra, er snúa hjarta sínu til hans.
Já, hjálp hans er nálæg þeim, er óttast hann, til þess að vegsemdir megi búa í landi voru.
Elska og trúfesti mætast, réttlæti og friður kyssast.
Trúfesti sprettur upp úr jörðinni og réttlæti lítur niður af himni.
Þá gefur og Drottni gæði, og land vort veitir afurðir sínar.
Réttlæti fer fyrir honum og friður fylgir skrefum hans.