Saltarinn 84Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 84

Til helgisöngs. Með Gat-lagi. Kóraita-sálmur.

Hversu yndislegir eru bústaðir þínir, Drottinn hersveitanna.

Sálu mína langaði til, já hún þráði forgarða Drottins; nú fagnar hjarta mitt og hold fyrir hinum handa Guði.

Jafnvel fuglinn hefir fundið hús og svalan á sér hreiður, þar sem hún leggur unga sína: ölturu þín, Drottinn hersveitanna, konungur minn og Guð minn!

Sælir eru þeir, sem búa í húsi þínu, þeir munu framvegis lofa þig. Sela.

Sælir eru þeir menn, sem finna styrkleik hjá þér, er þeir hafa helgifarir í huga.

Þótt þeir fari gegnum táradalinn, breytir hann honum í vatnslindir, og haustregnið hylur hann blessun.

Þeim eykst æ kraftur á göngunni; hann birtist fyrir Guði á Zion.

Drottinn, Guð hersveitanna, heyr bæn mína, hlýð til, þú Jakobs Guð. Sela.

Guð, skjöldur vor, sjá og lít á auglit þíns smurða.

Því að einn dagur í forgörðum þínum er betri en þúsund aðrir; heldur vil eg standa við þröskuldinn í húsi Guðs míns en dvelja í tjöldum óguðlegra.

Því að Drottinn Guð er sól og skjöldur, náð og vegsemd veitir Drottinn; hann synjar þeim engra gæða, er ganga Í grandvarleik.

Drottinn hersveitanna, sæll er sá maður, sem treystir þér.