Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Bæn guðsmannsins Móse. — Drottinn, þú hefir verið oss athvarf frá kyni til kyns.
Áður en fjöllin fæddust og jörðin og heimurinn urðu til, frá eilifð til eilífðar ert þú, ó Guð.
Þú lætur manninn hverfa aftur til duftsins og segir: Hverfið aftur, þér mannanna börn!
Því að þúsund ár eru í þínum augum sem dagurinn í gær, þegar hann er liðinn, já, eins og næturvaka.
Þú eyðir þeim, þeir sofna, þeir er að morgni voru sem gróandi gras;
Sað morgni blómgast það og grær, að kvöldi fölnar það og visnar.
Því að vér hverfum fyrir reiði þinni, skelfumst fyrir bræði þinni.
Þú hefir sett misgjörðir vorar fyrir augu þér, vorar huldu syndir fyrir ljós auglitis þíns;
allir dagar vorir hverfa fyrir reiði þinni, ár vor líða sem andvarp.
Æfidagar vorir eru sjötíu ár og þegar bezt lætur áttatíu ár, og dýrsta hnossið er mæða og hégómi; því að þeir líða í skyndi og vér fljúgum burt.
Hver þekkir styrkleik reiði þinnar og bræði þína, svo sem hana ber að óttast?
Kenn oss að telja daga vora, að vér megum öðlast viturt hjarta.
Snú þú aftur, Drottinn, — hversu lengi! — og aumkast yfir þjóna þína.
Metta oss að morgni með miskunn þinni, að vér megum fagna og gleðjast alla daga vora.
Veit oss gleði í stað daga þeirra, er þú hefir lægt oss, ára þeirra, er vér höfum út reynt.
át dáðir þínar birtast þjónum þínum og dýrð þína börnum þeirra.
Hylli Drottins, Guðs vors, sé yfir oss, styrk þú verk handa vorra.