Öldungana yðar á meðal áminni eg þá, eg samöldungurinn og vottur písla Krists, sem einnig mun hlutdeild fá í þeirri dýrð, sem opinberuð mun verða.
Gætið þeirrar hjarðar Guðs, sem meðal yðar er; gegnið umsjónarstarfinu, ekki af nauðung, heldur af fúsu geði, að Guðs vilja; ekki heldur sakir svívirðilegs ávinnings, heldur fúslega;
eigi heldur þannig, að þér drotnið harðlega yfir hlutdeild yðar, heldur þannig, að þér verðið fyrirmynd hjarðarinnar,
og þá munuð þér, þegar hinn æðsti hirðir birtist, öðlast hina ófölnandi kórónu dýrðarinnar.
Sömuleiðis verið þér, hinir yngri, öldungunum undirgefnir, og skrýðist allir lítillætinu hver gegn öðrum, því að Guð stendur gegn dramblátum, en auðmjúkum veitir hann náð.
Auðmýkið yður því undir Guðs voldugu hönd, til þess að hann á sínum tíma upphefji yður;
varpið allri áhyggju yðar upp á hann, því að hann ber umhyggju fyrir yður.
Verið algáðir, vakið; óvinur yðar djöfullinn gengur um sem öskrandi ljón, leitandi að þeim, sem hann geti gleypt;
standið gegn honum, stöðugir í trúnni, vitandi að sömu þjáningar fullnast á bræðrum yðar, sem eru í heiminum.
En Guð allrar náðar, sem kallaði yður til sinnar eilífu dýrðar í Kristi, eftir að þér þjáðst hafið lítinn tíma, hann mun sjálfur fullkomna yður, styrkja og öfluga gjöra.
Hans er mátturinn um aldir alda. Amen.
Með Silvanusi, hinum trúa meðbróður, eftir því sem eg tel, hefi eg stuttlega ritað yður, og eg áminni og vitna hátíðlega, að þetta er hin sanna náð Guðs; standið stöðugir í henni.
Yður heilsar hin samútvalda í Babýlon og Markús sonur minn.
Heilsið hver öðrum með kærleikskossi. Friður sé með yður öllum, sem eruð í Kristi.