Fyrst Kristur þess vegna hefir liðið á holdi, þá vopnið yður einnig með sömu hugsun, — því að sá, sem hefir liðið á holdinu, er hættur við synd —
til þess að þér ekki framar lifið tímann, sem eftir er, í holdinu fyrir fýsnir manna, heldur fyrir vilja Guðs.
Því að það er nóg að hafa tímann, sem liðinn er, gjört vilja heiðingjanna og lifað í saurlifnaði, girndum, ofdrykkju, óhófi, samdrykkjum og svívirðilegri skurðgoðadýrkun,
og þess vegna furðar þá, að þér hlaupið ekki með þeim út í hið sama spillingardíki; og þeir lastmæla;
en þeir munu verða að gjöra reikning þeim, sem reiðubúinn er að dæma lifendur og dauða;
því að til þess var og dauðum boðað fagnaðarerindið, að þeir að vísu verði dæmdir eftir mönnum í holdi, en lifi eftir Guði í anda.
En endir allra hluta er í nánd; verið því gætnir og algáðir til bæna;
umfram alt hafið brennandi kærleika hver til annars, því að kærleikur hylur fjölda synda;
verið gestrisnir hver við annan án möglunar.
Eins og hver hefir fengið náðargáfu, þá þjónið hver öðrum með henni, svo sem góðir ráðsmenn margvíslegrar náðar Guðs;
tali einhver, þá sé það sem orð Guðs, hafi einhver þjónustu á hendi, þá þjóni hann eins og eftir þeim mætti, sem Guð gefur, til þess að Guð vegsamist í öllum hlutum fyrir Jesúm Krist, og hans er dýrðin og mátturinn um aldir alda. Amen.
Þér elskaðir, látið yður eigi undra eldraunina yðar á meðal, sem yfir yður er komin yður til reynslu, eins og yður hendi eitthvað kynlegt,
heldur gleðjið yður að sama skapi, sem þér eruð hluttakandi í píslum Krists, til þess að þér einnig megið gleðjast miklum fögnuði við opinberun dýrðar hans.
Ef þér eruð smánaðir fyrir nafn Krists, þá eruð þér sælir, því að andi dýrðarinnar og andi Guðs hvílir yfir yður.
Því að enginn yðar líði ilt sem manndrápari eða þjófur eða illvirki eða sem sá, er hlutast til um það, er öðrum kemur við;
en ef hann líður ilt svo sem kristinn maður, þá fyrirverði hann sig ekki, heldur vegsami Guð fyrir þetta nafn.
Því að nú er tíminn kominn til að dómurinn byrji á húsi Guðs, en ef hann byrjar á oss, hver munu þá verða afdrif þeirra, sem ekki hlýðnast fagnaðarboðskap Guðs?
Og ef hinn réttláti naumlega frelsast, hvar mun þá hinn óguðlegi og syndarinn lenda?
Fyrir því skulu og þeir, sem ilt líða eftir vilja Guðs, fela sálir sínar á hendur hinum trúa skapara, er þeir gjöra hið góða.