Laugardagur fyrir páska
Páskaþrenningin — heilögustu dagar ársins.
Páskaþrenningin · Vika 6Litur dagsins er hvítur — litur gleði og Krists.
Lesa meiraLestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Jesaja 54:5-14
- Davíðssálmur
- Sálmur 118:1-2, 16-17, 22-23
- 2. lesning
- 2. Mósebók 14:15—15:1
- Guðspjall
- Matteusarguðspjall 28:1-10
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Ég kveiki á kertum mínumvið krossins helga tré.Í öllum sálmum sínumhinn seki beygir kné.Ég villtist oft af vegi.Ég vakti oft og bað.Nú hallar helgum degiá Hausaskeljastað.Í gegnum móðu' og misturég mikil undur sé.Ég sé þig koma, Kristur,með krossins þunga tré.Af enni daggir drjúpa,og dýrð úr augum skín.Á klettinn vil ég krjúpaog kyssa sporin þín.Þín braut er þyrnum þakin,hver þyrnir falskur koss.Ég sé þig negldan nakinnsem níðing upp á kross.Ég sé þig hæddan hangaá Hausaskeljastað. –Þann lausnardaginn langavar líf þitt fullkomnað. Amen.
Sálmur 64
Andstef · Þótt hann væri án syndar var Drottinn líflátinn. Heimurinn heldur sorgarathöfn líkt og fyrir sinn einkason.
1Til söngstjórans. Davíðssálmur.
2Heyr, ó Guð, raust mína, er ég kveina * varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins.
3Skýl mér fyrir bandalagi bófanna * fyrir óaldarflokki illvirkjanna,
4er hvetja tungur sínar sem sverð * leggja örvar sínar, beiskyrðin, á streng
5til þess að skjóta í leyni á hinn ráðvanda * skjóta á hann allt í einu, hvergi hræddir.
6Þeir binda fastmælum með sér ill áform * tala um að leggja leynisnörur, þeir hugsa: „Hver ætli sjái það?“
7Þeir upphugsa ranglæti: „Vér erum tilbúnir * vel ráðin ráð!“ því að hugskot hvers eins og hjarta er fullt véla.
8Þá lýstur Guð þá með örinni * allt í einu verða þeir sárir,
9og tunga þeirra verður þeim að falli. Allir þeir er sjá þá * munu hrista höfuðið.
10Þá mun hver maður óttast og kunngjöra * dáðir Guðs og gefa gætur að verkum hans.
11Hinn réttláti mun gleðjast yfir Drottni og leita hælis hjá honum * og allir hjartahreinir munu sigri hrósa.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þótt hann væri án syndar var Drottinn líflátinn. Heimurinn heldur sorgarathöfn líkt og fyrir sinn einkason.
Sálmur — Jes 38, 10-14d. 17b-20 — Örvænting sjúkra, gleði heilbrigðra
Andstef · Bjarga sálu minni, Drottinn, úr gini heljar.
10Ég sagði: Á hádegi ævi minnar stend ég við dauðans dyr. * Það sem eftir er ára minna er ég ofurseldur hliðum Heljar.
11Ég sagði: Ég fæ eigi framar að sjá Drottin á landi lifenda * ég fæ eigi framar menn að líta meðal þeirra sem heiminn byggja.
12Bústað mínum er kippt upp og svipt burt frá mér eins og hjarðmannatjaldi. Ég hefi undið upp líf mitt * eins og vefari. Hann sker mig frá uppistöðunni. Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.
13Ég þreyði til morguns. Öll mín bein voru kramin eins og af * ljónshrammi. Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.
14Ég tísti sem svala og kurra sem dúfa. Augu mín mæna til himins. Drottinn * ég er í nauðum, líkna þú mér.
17Sjá, til blessunar varð mér hin sára kvöl. Þú forðaðir sál minni frá gröf eyðingarinnar * því að þú varpaðir að baki þér öllum syndum mínum.
18Hel vegsamar þig eigi * dauðinn lofar þig eigi. Þeir sem niður eru stignir í gröfina vona eigi á trúfesti þína.
19En sá einn lofar þig, sem lifir * eins og ég í dag. Feður kunngjöra börnum sínum trúfesti þína.
20Drottinn er mitt hjálpræði. Í húsi Drottins * skulum vér því hreyfa strengina alla vora lífdaga.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Bjarga sálu minni, Drottinn, úr gini heljar.
Sálmur 150
Andstef · Ég dó, en sjá, lifandi er ég um aldir alda, og ég hef lykla dauðans og Heljar.
1Hallelúja. Lofið Guð í helgidómi hans * lofið hann í voldugri festingu hans!
2Lofið hann fyrir máttarverk hans * lofið hann eftir mikilleik hátignar hans!
3Lofið hann með lúðurhljómi * lofið hann með hörpu og gígju!
4Lofið hann með bumbum og gleðidansi * lofið hann með strengleik og hjarðpípum!
5Lofið hann með hljómandi skálabumbum * lofið hann með hvellum skálabumbum!
6Allt sem andardrátt * hefur lofi Drottin! Hallelúja!
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég dó, en sjá, lifandi er ég um aldir alda, og ég hef lykla dauðans og Heljar.
Stuttur ritningarlestur
Hs 5, 15d – 6, 2Svo segir Drottinn: Þegar að þeim þrengir, munu þeir snúa sér til mín. Komið, vér skulum hverfa aftur til Drottins, því að hann hefir sundur rifið og mun lækna oss, hann hefir lostið og mun binda um sár vor. Hann mun lífga oss eftir tvo daga og reisa oss upp á þriðja degi, til þess að vér lifum fyrir hans augliti.
Stutt svarvers
Í staðinn fyrir svarstefið er eftirfarandi texti lesinn:
Jesús Kristur lægði sig og varð hlýðinn allt til dauða, dauðans á krossi. Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Bjarga oss, ó Frelsari heimsins. Á krossinum endurleystir þú oss með því að úthella blóði þínu; vér hrópum til þín um hjálp, ó Guð.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Endurlausnari vor leið píslir og var greftraður fyrir oss í því skyni að rísa upp aftur. Vér tignum hann af heilu hjarta og í vitneskju um það sem oss skortir hrópum vér upp yfir oss:Drottinn, miskunna þú oss.Kristur, Frelsari vor, syrgjandi stóð móðir þín hjá þér er þú lést og varst greftraður,megum vér eiga hlut í píslum þínum í harmi vorum.Kristur, Drottinn vor, líkt og sæðið grafið í jörðu, gafstu af þér oss til handa uppskeru náðarinnar,megum vér deyja syndinni og lifa í Guðs þágu.Kristur, góði hirðirinn, í dauðanum varst þú hulinn heiminum,kenndu oss að vilja helst lifa hulin með þér í Föðurnum.Kristur, nýi Adam, þú fórst inn í ríki dauðra til að leysa alla réttláta menn allt frá upphafi heimsins,megi allir sem liggja dauðir í synd heyra rödd þína og rísa til lífsins.Kristur, Sonur hins lifanda Guðs, fyrir skírnina vorum vér greftruð með þér,megum vér ganga inn til nýs lífs uppvakin með þér í skírninni.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi og ævarandi Guð, Sonur þinn eini steig niður meðal hinna dauðu og reis upp aftur í dýrð. Reistu upp í mildi þinni trúfastan lýð þinn, sem grafinn var með honum í skírninni, til að vera eitt með honum í eilífu lífi á himnum. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Jesús, lífs míns lífið sanna,líf í dauða gafstu þitt,þú af byrði þjáningannaþreyttist, svo mér verði fritt.Þinn, ó, Jesús, dauði deyddidauða minn og skelfing eyddi.Jesús, þér sé þakkargjörðþúsundföld á himni' og jörð.Saklaus varstu sekur dæmdur,sýkn að talinn verði ég,bundinn milli fjenda flæmdur,frjáls að minn ég gangi veg.Mér að verði sómi sýndur,sárum varstu þyrnum krýndur.Jesús, þér sé þakkargjörðþúsundföld á himni' og jörð.Synda minna byrði barstu,brotin lágu mín á þér,hátt á krosstré hafinn varstu,himins til að lyftir mér,faðminn út þú blóðgan breiddir,blítt að Guðs í skaut mig leiddir.Jesús, þér sé þakkargjörðþúsundföld á himni' og jörð. Amen.
Sálmur 116, 10-19
Andstef · Dauði, þú skalt deyja í mér; helvíti, þér skal eytt af mér.
10Ég trúði, þó ég segði * „Ég er mjög beygður.“
11Ég sagði í angist minni * „Allir menn ljúga.“
12Hvað á ég að gjalda Drottni * fyrir allar velgjörðir hans við mig?
13Ég lyfti upp bikar * hjálpræðisins og ákalla nafn Drottins.
14Ég greiði Drottni heit mín * og það í augsýn alls lýðs hans.
15Dýr er í augum * Drottins dauði dýrkenda hans.
16Æ, Drottinn, víst er ég þjónn þinn * ég er þjónn þinn, sonur ambáttar þinnar, þú leystir fjötra mína.
17Þér færi ég þakkarfórn * og ákalla nafn Drottins.
18Ég greiði Drottni heit mín * og það í augsýn alls lýðs hans,
19í forgörðum húss Drottins * í þér, Jerúsalem. Hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Dauði, þú skalt deyja í mér; helvíti, þér skal eytt af mér.
Sálmur 143, 1-11
Andstef · Jónas var í kvíði stórhvelisins þrjá daga og þrjár nætur, og eins mun Mannssonurinn vera þrjá daga og þrjár nætur í skauti jarðar.
1Drottinn, heyr þú bæn mína * ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu.
2Gakk eigi í dóm við þjón þinn * því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.
3Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar * lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.
4Andi minn örmagnast í mér * hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.
5Ég minnist fornra daga * íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.
6Ég breiði út hendurnar í móti þér * sál mín er sem örþrota land fyrir þér. [Sela]
7Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér * svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.
8Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg * er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.
9Frelsa mig frá óvinum mínum * Drottinn, ég flý á náðir þínar.
10Kenn mér að gjöra vilja þinn * því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.
11Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns * leið sál mína úr nauðum sakir réttlætis þíns.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Jónas var í kvíði stórhvelisins þrjá daga og þrjár nætur, og eins mun Mannssonurinn vera þrjá daga og þrjár nætur í skauti jarðar.
Sálmur — Fil 2, 6-11 — Um Krist, þjónn Guðs
Andstef · Brjótið þetta musteri, og ég skal reisa það á þrem dögum, sagði Drottinn. En hann var að tala um musteri líkama síns.
6Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki * með það sem feng sinn að vera Guði líkur.
7Hann svipti sig öllu * tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur.
8Hann kom fram sem maður * lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi.
9Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið * sem hverju nafni er æðra,
10til þess að í nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni * jörðu og undir jörðu
11og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar * Jesús Kristur er Drottinn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Brjótið þetta musteri, og ég skal reisa það á þrem dögum, sagði Drottinn. En hann var að tala um musteri líkama síns.
Stuttur ritningarlestur
1Pt 1, 18-21Þér vitið, að þér voruð eigi leystir með hverfulum hlutum, silfri eða gulli, frá fánýtri hegðun yðar, er þér höfðuð að erfðum tekið frá feðrum yðar, heldur með blóði hins lýtalausa og óflekkaða Lambs, með dýrmætu blóði Krists. Hann var útvalinn, áður en veröldin var grundvölluð, en var opinberaður í lok tímanna vegna yðar. Fyrir hann trúið þér á Guð, er vakti hann upp frá dauðum og gaf honum dýrð, svo að trú yðar skyldi jafnframt vera von til Guðs.
Stutt svarvers
Í staðinn fyrir svarstefið er eftirfarandi texti lesinn:
Jesús Kristur lægði sig og varð hlýðinn allt til dauða, dauðans á krossi. Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Nú er Mannssonurinn dýrlegur orðinn, og Guð er orðinn dýrlegur í honum, og mun enn gjörast dýrlegur.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, hjálpaðu lýð þínum.Leiddu mannkynið með starfi Kirkjunar til einingar.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn með blessun þinni N.Leiddu djákna með Anda þínum.Helgaðu trúaða.Vertu ráðgjafi handverksmanna.Leiddu ríka til að nota eigur sínar rétt.Verndaðu veika.Frelsaðu bandingja.Vernda oss frá jarðhræringum.Verndaðu oss frá óvæntum dauða.Veittu látnum alsæla sýn auglits þíns.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi og ævarandi Guð, Sonur þinn eini steig niður meðal hinna dauðu og reis upp aftur í dýrð. Reistu upp í mildi þinni trúfastan lýð þinn, sem grafinn var með honum í skírninni, til að vera eitt með honum í eilífu lífi á himnum. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Þú, Jesús, lífsins lindin bestþú ljós og yndi sálna mestþú betra hverri býður þrájá, betra' en allt, sem hugsast má.Ó, hve mín þrá er heit til þínæ, hvenær muntu vitja mín.Æ, hvenær fögnuð hlýt ég þinnæ, hvenær saðning, Jesús minn?Ég fylgi, Jesús, þangað þérei þig fær skilið neitt frá mérþú hefur tekið hjartað mittþað hjá þér dvelur og er þitt.Þig lofar allur himins herog helga vegsemd greiðir þér.Þú, gleðin heims, þú gafst oss friðvorn Guð og föður sjálfan við.Þig lofi, Jesús, líf og sálþig lofi tunga' og hjartans mál.Í trú vér biðjum: Til þín innoss tak þú alla' í himin þinn. Amen.
Sálmur 91
Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.
1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta * sá er gistir í skugga Hins almáttuga,
2sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg * Guð minn, er ég trúi á!“
3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans * frá drepsótt glötunarinnar,
4hann skýlir þér með fjöðrum sínum * undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.
5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar * eða örina, sem flýgur um daga,
6drepsóttina, er reikar um í dimmunni * eða sýkina, er geisar um hádegið.
7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar * þá nær það ekki til þín.
8Þú horfir aðeins á með augunum * sér hversu óguðlegum er endurgoldið.
9Þitt hæli er Drottinn * þú hefur gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.
10Engin ógæfa hendir þig * og engin plága nálgast tjald þitt.
11Því að þín vegna býður hann út englum sínum * til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.
12Þeir munu bera þig á höndum sér * til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.
13Þú skalt stíga ofan á ljón og nöðrur * troða fótum ung ljón og dreka.
14„Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann * ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.
15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann * ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.
16Ég metta hann með fjöld lífdaga * og læt hann sjá hjálpræði mitt.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.
Stuttur ritningarlestur
Opb 22, 4-5Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.
Stutt svarvers
Eftirfarandi er lesið í stað svarstefsins:
Jesús Kristur lægði sig og varð hlýðinn allt til dauða, dauðans á krossi. Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Guð, Faðir, veit oss er í dag höfum minnst upprisu Sonar þíns, auðmjúka bæn vora: Frelsa oss frá öllu illu svo að vér fáum sofið í friði og risið í gleði til að lofsyngja dýrð þína. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007