Gamla testamentiðLögmálið
Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
Seg Ísraelsmönnum, að - þeir snúi aftur og selji búðir sínar fyrir framan Pí-Hakírót, milli Migdóts og hafsins, gegnt líaal-Zefón; þar andspænis skuluð þér setja húðir yðar við hafið.
Og Faraó mun segja um Ísraelsmenn: Þeir fara villir vega í landinu, eyðimörkin hefir innibyrgt þá.
Og eg vil herða hjarta Faraós og hann skal veita þeim eftirför; eg vil sýna dýrð mína á Faraó og öllum liðsafla hans, svo að Egiptar skulu vita, að eg er Drottinn, Og þeir gjörðu svo.
Þegar Egiptalandskonungi var sagt, að fólkið væri flúið, varð hugur Faraós og þjóna hans mótsnúinn fólkinu og þeir sögðu: Hví höfum vér gjört þetta, að sleppa israel úr þjónustu vorri?
Lét hann þá beita fyrir vagna sína og tók menn sína með sér.
Og hann tók sex hundruð valda vagna og alla vagna Egiptalands og setti kappa á hvern þeirra.
En Drottinn herti hjarta Faraós, Egiptalands konungs, svo að hann veitti Ísraelsmönnum eftirför, því að Ísraelsmenn höfðu farið burt með upplyftri hendi.
Egiptar sóttu nú eftir þeim, allir hestar og vagnar Faraós, riddarar hans og her hans, og náðu þeim þar sem þeir höfðu sett búðir sínar við hafið, hjá Pí-Hakírót, gegnt Baal-Zefón.
Þegar Faraó nálgaðist, hófu Ísraelsmenn upp augu sín og sjá: Egiptar sóttu eftir þeim; urðu Ísraelsmenn þá mjög óttaslegnir og hrópuðu til Drottins.
Og þeir sögðu við Móse: Tókst þú oss burt til þess að deyja hér á eyðimörku, af því að engar Væru grafir til í Egiptalandi? Hví hefir þú gjört oss þetta, að fara með oss burt af Egiptalandi?
Kemur nú ekki fram það, sem vér Sögðum við þig á Egiptalandi: Lát oss vera kyrra og viljum vér þjóna Egiptum, því að betra er fyrir oss að þjóna Egiptum en að deyja í eyðimörkinni?
Þá sagði Móse við lýðinn: Óttist ekki; standið stöðugir og munuð þér sjá hjálpræði Drottins, er hann í dag mun láta fram við yður koma; því að eins og þér sjáið Egiptana í dag, munuð þér aldrei nokkurn tíma framar sjá þá.
Drottinn mun berjast fyrir yður, en þér skuluð vera kyrrir.
Þá sagði Drottinn við Móse: Hví hrópar þú til mín? Seg Ísraelsmönnum, að þeir haldi áfram;
en lyft þú upp staf þínum og rétt út hönd þína yfir hafið og kljúf það, og Ísraelsmenn skulu ganga á þurru mitt í gegnum hafið.
Sjá, eg mun herða hjörtu Egipta, svo að þeir skulu sækja á eftir þeim, og eg vil sýna dýrð mína á Faraó og öllum liðsafla hans, á vögnum hans og riddurum.
Og Egiptar skulu vita, að eg er Drottinn, þá er eg sýni dýrð mína á Faraó, á vögnum hans og riddurum.
Og engill Guðs, sem gekk á undan liði Ísraels, færði sig og gekk aftur fyrir þá, og skýstólpinn, sem var fyrir framan þá, færðist og stóð að baki þeim;
og hann bar á milli herbúða Egipta og herbúða Ísraels og var skýið myrkt annars vegar, en annars vegar lýsti það upp nóttina; og færðust hvorugir nær öðrum alla þá nótt.
En Móse rétti út hönd sína yfir hafið og Drottinn lét hvassan austanvind blása alla nóttina og bægja sjónum burt og gjörði hafið að þurlendi, og vötnin klofnuðu.
Og Ísraelsmenn gengu á þurru mitt í gegn um hafið og vötnin stóðu eins og veggur tl hægri og vinstri handar þeim.
Og Egiptar veittu þeim eftirför og sóttu eftir þeim mitt út í hafið, allir hestar Faraós, vagnar hans og riddarar.
En á morgunvökunni leit Drottinn yfir lið Egipta í eldsog skýstólpanum, og sló felmti í lið Egipta;
og hann lét vagna þeirra ganga af hjólunum, svo að þeim sóttist leiðin erfiðlega. Þá sögðu Egiptar: Flýjum fyrir Ísrael, því að Drottinn berst með þeim móti Egiptum.
Þá sagði Drottinn við Móse: Rétt út hönd þína yfir hafið og skulu þá vötnin aftur falla yfir Egipta, yfir vagna þeirra og riddara.
Og Móse rétti hönd sína út yfir hafið, og sjórinn féll aftur undir morguninn í farveg sinn, en Egiptar flýðu beint í móti aðfallinu og keyrði Drottinn þá mitt í hafið.
Og vötnin féllu að og huldu vagnana og riddarana, allan liðsafla Faraós, sem eftir þeim hafði farið út í hafið; ekki nokkur einn þeirra komst lífs af.
En Ísraelsmenn gengu á þurru mitt í gegnum hafið og vötnin stóðu eins og veggur til hægri og vinstri handar þeim.
Þannig frelsaði Drottinn Ísrael á þeim degi undan valdi Egipta og Ísrael sá Egipta liggja dauða á sjávarströndinni.
Og er Ísrael sá hið mikla undur, sem Drottinn hafði gjört á Egiptum, þá óttaðist fólkið Drottins, og þeir trúðu á Drottin og þjón hans Móse. Þá söng Móse og Ísraelsmenn Drottins þennan lofsöng og sögðu: