Önnur Mósebók 13Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Önnur Mósebók 13

Þá talaði Drottinn við Móse og sagði:

Þú skalt helga mér alla frumburði, hvað eina sem opnar móðurlíf meðal Ísraelsmanna, hvort heldur er menn eða fénaður; það er mitt.

Og Móse sagði við fólkið: Verið minnugir þessa dags, er þér fóruð burt úr Egiptalandi, út úr þrælahúsinu; því með voldugri hendi leiddi Drottinn yður út þaðan: sýrð brauð má eigi eta.

Í dag farið þér af stað, í abíb-mánuði;

og þegar Drottinn leiðir þig inn í land Kanaaníta, Hetíta, Amóríta, Hevíta og Jebúsíta, sem hann sór feðrum þínum að gefa þér, í það land, sem flýtur í mjólk og hunangi, þá skaltu halda þennan sið í þessum sama mánuði.

Sjö daga skaltu eta ósýrt brauð og á hinum sjöunda degi skal vera hátíð Drottins.

Ósýrt brauð skal eta í þá sjö daga, ekkert sýrt brauð má sjást hjá þér, og ekki má heldur súrdeig sjást nokkurstaðar hjá þér innan þinna landamerkja.

Á þeim degi skaltu gjöra syni þínum grein fyrir þessu og segja: Það er sökum þess, sem Drottinn gjörði fyrir mig, þá er eg fór út af Egiptalandi.

Og þetta skal vera þér til merkis á hendi þinni og til minningar á milli augna þinna, svo að lögmál Drottins sé þér æ á vörum, því með voldugri hendi leiddi Drottinn þig út af Egiptalandi.

Þessa skipun skaltu því halda á ákveðnum tíma ár frá ári.

Þegar Drottinn leiðir þig inn í land Kanaaníta, eins og hann sór þér og feðrum þínum, og gefur þér það,

þá skaltu eigna Drottinn alt það, sem opnar móðurlíf; og allir frumburðir, sem koma undan þeim fénaði, er þú átt, skulu heyra Drottni til, séu þeir karlkyns.

Alla frumburði undan ösnum skaltu leysa með lambi; leysir þú ekki, skaltu brjóta þá úr hálsliðum; en alla frumburði manna meðal barna þinna skaltu leysa.

Og þegar sonur þinn spyr þig á síðan og segir: Hvað á þetta að þýða? þá svara honum: Með voldugri hendi leiddi Drottinn oss út af Egiptalandi, úr þrælahúsinu;

því þegar Faraó synjaði oss þverlega fararleyfis, þá deyddi Drottinn alla frumburði í Egiptalandi, bæði frumburði manna og frumburði fénaðar; þess vegna fórnfæri eg Drottinn öllu, sem opnar móðurlíf, en alla frumburði barna minna leysi eg.

Og það skal vera merki á hendi þér og minningarband á milli augna Þinna um það, að Drottinn leiddi oss út af Egiptalandi með voldugri hendi. Förin yfir Rauðahafið.

Þegar Faraó hafði gefið fólkinu fararleyfi, leiddi Guð þá ekki á leið til Filistalands, þótt sú leið væri skemst; því að Guð sagði: Vera má að fólkið iðrist eftir, þegar það sér að ófriðar er von, og snúi svo aftur til Egiptalands.

Heldur lét Guð fólkið fara í bug eyðimerkurveginn til Rauðahafsins; og fóru Ísraelsmenn vígbúnir af Egiptalandi.

Og Móse tók með sér bein Jósefs, því að hann hafði tekið eið af Ísraelsmönnum og sagt: Sannlega mun Guð vitja yðar; flytjið þá bein mín héðan burt með yður.

Og þeir tóku sig upp frá Súkkót og settu búðir sínar í Etam, þar sem eyðimörkina þrýtur.

En Drottinn gekk fyrir þeim á daginn í skýstólpa, til að vísa þeim veg, en á nóttunni í eldstólpa, til að lýsa þeim, svo að þeir gætu ferðast nótt sem dag;

skýstólpinn veik ekki frá fólkinu á daginn, né heldur eldstólpinn á nóttunni.