Önnur Mósebók 15Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Önnur Mósebók 15

Eg vil lofsyngja Drottni, því að hann hefir sig dýrlegan gjört, hestum og riddurum steypti hann niður í hafið.

Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði; hann er minn Guð, og eg vil vegsama hann, Guð föður míns, og eg vil tigna hann.

Drottinn er stríðshetja, Drottinn er hans nafn.

Vögnum Faraós og herliði hans varpaði hann í hafið, og hinir völdustu kappar hans druknuðu í Hafinu rauða;

undirdjúpin huldu þá, þeir sukku niður í sjávardjúpið eins og steinn.

Þín hægri hönd, Drottinn, hefir sýnt sig dýrlega í krafti, þín hægri hönd, Drottinn, sundurkremur fjandmennina.

rÖg með mikilleik þinnar hátignar leggur þú mótstöðumenn þína að velli; þú útsendir þína reiði og hún eyðir þeim eins og hálmleggjum.

Og fyrir blástri nasa þinna hlóðust vötnin upp, rastirnar stóðu eins og veggur, S öldurnar stirðnuðu mitt í hafinu.

Ovinurinn sagði: Eg skal elta þá, eg skal ná þeim; eg skal skifta herfangi, eg skal skeyta skapi mínu á þeim. Eg skal bregða sverði mínu, hönd mín skal eyða þeim.

Þú blést með þínum anda, hafið huldi þá; þeir sukku sem blý niður í hin miklu vötn.

Hver er sem þú, Drottinn, meðal guðanna? Hver er sem þú, dýrlegur að heilagleik, dásamlegur til lofsöngva, þú sem stórmerkin gjörir?

Þú útréttir þína hægri hönd, jörðin svalg þá.

Þú hefir leitt fólkið, sem þú frelsaðir, með miskunn þinni, þú fylgdir því með þínum krafti til þíns heilaga bústaðar.

Þjóðirnar heyrðu það og urðu felmitsfullar, ótti gagntók íbúa Filisteu.

Þá skelfdust ætthöfðingjarnir í Edóm, hræðsla greip forystumennina í Móab; allir íbúar Kanaanlands létu hugfallast.

Skelfing og ótta sló yfir þá; fyrir mikilleik þíns armleggs urðu þeir hljóðir sem steinninn, meðan fólk þitt, Drottinn, fór leiðar sinnar, meðan fólkið, sem þú hefir aflað þér, fór leiðar sinnar.

Þú leiddir þá inn og gróðursettir þá á fjalli arfleifðar þinnar, þeim stað, sem þú, Drottinn, hefir gjört að þínum bústað, þeim helgidóm, sem þínar hendur, Drottinn, hafa reist.

Drottinn skal ríkja um aldur og að eilífu!

Því að þegar hestar Faraós ásamt vögnum hans og riddurum fóru út í hafið, lét Drottinn vötn sjávarins flæða yfir þá, en Ísraelsmenn gengu á þurru mitt í gegnum hafið.

Þá tók Mirjam spákona, systir Arons, bumbu í hönd sér og allar konurnar gengu á eftir henni með bumbum og dansi.

Og Mirjam söng fyrir þeim: Lofsyngið Drottni, því að hann hefir sig dýrlegan gjört, hestum og riddurum steypti hann í hafið. Ferð Ísraelsmanna til Mara og Elím.

Síðan lét Móse Ísrael hefja ferð sína frá Rauðahafinu og héldu á þeir il Súr-eyðimerkur; gengu þeir þrjá daga um eyðimörkina og fundu ekkert vatn.

Þá komu þeir til Mara; en þeir gátu ekki drukkið vatnið fyrir beiskju; því að það var beiskt; fyrir því var sá staður kallaður Mara.

Þá möglaði fólkið móti Móse og sagði: Hvað eigum vér að drekka?

En hann hrópaði til Drottins, og vísaði Drottinn honum þá á tré nokkurt; kastaði hann því í vatnið og varð vatnið þá sætt. Þar setti hann því lög og rétt, og þar reyndi hann það.

Og hann sagði: Ef þú hlýðir gaumgæfilega raust Drottins, Guðs þíns, og gjörir það, sem rétt er fyrir honum, gefur gaum boðorðum hans og heldur allar skipanir hans, þá vil eg engan þann sjúkdóm á þig leggja, sem eg lagði á Egipta, því eg er Drottinn, græðari þinn.

Síðan komu þeir til Elím; þar voru tólf vatnslindir og sjötíu pálmar, og settu þeir búðir sínar þar við vatnið.