En eftir hvíldardaginn, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, kom María Magdalena og María hin, til að líta eftir gröfinni.
Og sjá, mikill landskjálfti varð, því að engill Drottins steig niður af himni og kom og velti steininum frá og settist á hann ofan.
En útlit hans var sem leiftur og klæði hans hvít sem snjór.
En varðmennirnir skulfu af hræðslu við hann og urðu sem örendir.
En engillinn tók til máls og sagði við konurnar: Óttist eigi! Því að eg veit, að þér leitið að Jesú hinum krossfesta.
Hann er eigi hér, því að hann er upprisinn, eins og hann sagði. Komið, sjáið staðinn, þar sem Drottinn lá.
Og farið nú með skyndi og segið lærisveinum hans: Hann er upprisinn frá dauðum; og sjá, hann fer á undan yður til Galíleu; þar munuð þér sjá hann. Sjá, eg hefi sagt yður það.
Og þær skunduðu burt frá gröfinni, með ótta og mikilli gleði, og hlupu að flytja tíðindin lærisveinum hans.
Og sjá, Jesús kom á móti þeim og sagði: Heilar þér! En þær komu til og gripu um fætur hans og veittu honum lotningu.
Þá segir Jesús við þær: Óttist eigi! farið burt og kunngjörið bræðrum mínum, að þeir skuli fara til Galíleu, og þar munu þeir sjá mig.
En er þær voru farnar burt, sjá, þá komu nokkrir af varðmönnunum til borgarinnar og kunngjörðu æðstu prestunum alt, sem gjörst hafði.
Og er þeir voru saman komnir ásamt öldungunum, héldu þeir ráðstefnu, gáfu hermönnunum mikið fé
og mæltu: Segið þér: Lærisveinar hans komu á næturþeli og stálu honum, meðan vér sváfum.
Og berist þetta landshöfðingjanum til eyrna, skulum vér friða hann, og yður munum vér gjöra áhyggjulausa.
En þeir tóku féð og gjörðu sem þeim hafði kent verið. Og þessi orðrómur hefir verið borinn út meðal Gyðinga alt til þessa dags.
En þeir ellefu lærisveinar fóru til Galíleu, til fjallsins, sem Jesús hafði boðið þeim.
Og er þeir sáu hann, veittu þeir honum lotningu; en nokkrir efuðust.
Og Jesús kom til þeirra, talaði við þá og sagði: Alt vald er mér gefið á himni og jörðu.
Farið því og gjörið allar þjóðirnar að lærisveinum, með því að skíra þá til nafns föðurins og sonarins og hins heilaga anda,
og með því að kenna þeim að halda alt það, sem eg hefi boðið yður. Og sjá, eg er með yður alla daga alt til enda veraldarinnar. Þ.e. varmenni. Þ. e. klettur.