Saltarinn 118Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 118

Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.

Það mæli Ísrael: því að miskunn hans varir að eilífu!

Það mæli Arons ætt: því að miskunn hans varir að eilífu!

Það mæli þeir, sem óttast Drottin: því að miskunn hans varir að eilífu!

Í þrengingunni ákallaði eg Jah, Jah bænheyrði mig á víðlendinu.

Drottinn er með mér, eg óttast eigi, hvað geta menn gjört mér?

Drottinn er með mér, meðal hjálpara minna, og eg mun fá að horfa lyst mína á hatursmenn mína.

Betra er að leita hælis hjá Drottni en að treysta mönnum,

betra er að leita hælis hjá Drottni en að treysta tignarmönnum.

Allir heiðingjar umkringdu mig, en í nafni Drottins hefi eg sigrast á þeim.

Þeir umkringdu mig á alla vegu, en í nafni Drottins hefi eg sigrast á þeim.

Þeir umkringdu mig eins og býflugur vax, brunnu sem eldur í þyrnum, en Í nafni Drottins hefi eg sigrast á þeim.

Mér var hrundið, til þess að eg skyldi falla, en Drottinn veitti mér lið.

Jah er styrkur minn og lofsöngur og hann varð mér til hjálpræðis.

Fagnaðar- og siguróp kveður við í tjöldum réttlátra: hægri hönd Drottins vinnur stórvirki.

Hægri hönd Drottins upphefur, hægri hönd Drottins vinnur stórvirki.

Eg mun eigi deyja, heldur lifa og kunngjöra verk Jah.

hefir hirt mig harðlega, en eigi ofurselt mig dauðanum.

Ljúkið upp fyrir mér hliðum réttlætisins, að eg megi fara inn um þau og lofa Jah.

Þetta er hlið Drottins, réttlátir menn fara inn um það.

Eg lofa þig, af því að þú bænheyrðir mig og ert orðinn mér hjálpræði.

Steinninn, sem smiðirnir höfnuðu, er orðinn að hyrningarsteini.

Að tilhlutun Drottins er þetta orðið, það er dásamlegt í augum vorum.

Þetta er dagurinn, sem Drottinn hefir gjört, fögnum, verum glaðir á honum.

Ææ, Drottinn, hjálpa þú, æ, Drottinn, gef þú gengi!

Hver sem kemur, sé blessaður í nafni Drottins, frá húsi Drottins blessum vér yður.

Drottinn er Guð og hann lét oss ljós skína. Tengið saman dansraðirnar með laufgreinum, alt inn að altarishornunum.

Þú ert Guð minn og eg þakka þér, Guð minn, eg vegsama þig.

Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.