Saltarinn 119Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 119

Sælir eru þeir, sem breyta grandvarlega, þeir er fram ganga í lögmáli Drottins.

Sælir eru þeir, er halda reglur hans, þeir er leita hans af öllu hjarta

og eigi fremja ranglæti, en ganga á vegum hans.

Þú hefir gefið skipanir þínar, til þess að menn skuli halda þær vandlega.

að breytni mín mætti vera staðföst, svo að eg varðveili lög þín.

Þá mun eg eigi til skammar verða, er eg lít á öll þín boð.

Eg skal þakka þér af einlægu hjarta, er eg hefi numið þín réttlátu ákvæði.

Eg vil gæta laga þinna, þá munt þú alls ekki yfirgefa mig.

Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu.

Eg leita þín af öllu hjarta, lát mig eigi villast frá boðum þínum.

Eg geymi orð þín í hjarta mínu, til þess að eg skuli eigi syndga gegn þér.

Lofaður sért þú, Drottinn; kenn mér lög þín.

Með vörum mínum tel eg upp öll ákvæði munns þíns.

Yfir vegi vitnisburða þinna gleðst eg eins og yfir alls konar auði.

Fyrirmæli þín vil eg íhuga og skoða vegu þína.

Eg leita unaðs í lögum þínum, gleymi eigi orði þínu.

Veit þjóni þínum að lifa, að eg megi halda orð þín.

Ljúk upp augum mínum, að eg megi skoða dásemdirnar í lögmáli þínu.

Eg er útlendingur á jörðunni, dyl eigi boð þín fyrir mér.

Sál mín er kvalin af þrá eftir ákvæðum þínum alla tíma.

Þú hefir ógnað ofstopamönnunum, bölvaðir eru þeir, sem víkja frá boðum þínum.

Velt þú af mér háðung og skömm, því að eg hefi haldið reglur þínar.

Þótt þjóðhöfðingjar sitji og taki saman ráð sín gegn mér, þá íhugar þjónn þinn lög þín,

gg reglur þínar eru unun mín, boð þín eru ráðgjafar mínir.

Sál mín loðir við duftið, lát mig lífi halda eftir orði þínu.

Eg hefi talið upp málefni mín og þú bænheyrðir mig, kenn mér lög þín.

Lát mig skilja veg fyrirmæla þinna, að eg megi íhuga dásemdir þínar.

Sál mín tárast af trega, reis mig upp eftir orði þínu.

Lát veg lyginnar vera fjarri mér og veit mér náðarsamlega lögmál þitt.

Es hefi útvalið veg sannleikans, selt mér ákvæði þín fyrir sjónir.

Eg held fast við reglur þínar, Drottinn lát mig eigi verða til skammar.

Eg vil skunda veg boða þinna, því að þú hefir gjört mér létt um hjartað.

Kenn mér, Drottinn, veg laga þinna, að eg megi halda þau alt til enda.

Veit mér skyn, að eg megi halda lögmál þitt og varðveita það af öllu hjarta.

Leið mig götu boða þinna, því að af henni hefi eg yndi.

Beyg hjarta mitt að reglum þínum, en eigi að ranglátum ávinningi.

Snú augum mínum frá því að horfa á hégóma; lífga mig á vegum þínum.

Staðfest fyrirheit þitt fyrir þjóni þínum, sem gefið er þeim, er þig óttast.

Nem burt háðungina, sem eg er hræddur við, því að ákvæði þín eru góð.

Sjá, eg þrái fyrirmæli þín, lífga mig með réttlæti þínu,

Og lát náð þína koma yfir mig, Drottinn, hjálpræði þitt, samkvæmt fyrirheiti þínu,

að eg fái andsvör veitt þeim, er smána mig, því að þínu orði treysti eg.

Og tak engan veginn sannleikans orð burt úr munni mínum; því að eg bíð dóma þinna.

Og eg vil stöðugt varðveita lögmál þitt, um aldur og æfi,

þá mun eg ganga um viðlendi, því að eg leita fyrirmæla þinna;

þá mun eg tala um reglur þínar frammi fyrir konungum, og eigi skammast mín,

og leita unaðs í boðum þínum, þeim er eg elska,

og rétta út hendurnar eftir boðum þínum, þeim er eg elska, og íhuga lög þín.

Minst þú orðsins við þjón þinn, af því að þú hefir látið mig vona.

Þetta er huggun mín í eymd minni, að orð þitt lætur mig lífi halda.

Ofstopamenn spotta mig gífurlega, en eg vík eigi frá lögmáli þínu.

Eg minnist dóma þinna frá öndverðu, Drottinn, og læt huggast.

Heiftarreiði við óguðlega hrífur mig, við þá, er yfirgefa lögmál þitt.

Lög þín eru efni ljóða minna í húsinu, er eg bý í sem útlendingur.

Um nætur minnist eg nafns þíns, Drottinn, og geymi laga þinna.

Þetta er orðin hlutdeild mín, að halda fyrirmæli þín.

Drottinn er hlutskifti mitt, eg hefi ákveðið að varðveita orð þín.

Eg hefi leitað hylli þinnar af öllu hjarta, ver mér náðugur samkvæmt fyrirheiti þínu.

Eg hefi athugað vegu mína og snúið fótum mínum að reglum þínum.

Eg hefi flýtt mér, og eigi tafið, að varðveita boð þín.

Snörur óguðlegra lykja um mig, en lögmáli þínu hefi eg eigi gleymt.

Um miðnætti rís eg upp til þess að þakka þér þín réttlátu ákvæði.

Eg er félagi allra þeirra, er óttast þig og varðveita fyrirmæli þín.

Jörðin er full af miskunn þinni, Drottinn, kenn mér lög þín.

Þú hefir gjört vel til þjóns þíns, eftir orði þínu, Drottinn.

Kenn mér góð hyggindi og þekkingu,, því að eg trúi á boð þín.

Áður en eg var beygður, villist eg, en nú varðveiti eg orð þitt.

Þú ert góður og gjörir vel, kenn mér lög þín.

Ofstopamenn spinna upp lygar gegn mér, en eg held fyrirmæli þín af öllu hjarta.

Hjarta þeirra er tilfinningarlaust sem mör væri, en eg leita unaðs í lögmáli þínu.

Það varð mér til góðs, að eg varð beygður, til þess að eg mætti læra lög þín.

Lögmálið af munni þínum er mér mætara en þúsundir af gulli og silfri.

Hendur þínar hafa gjört mig og skapað; veit mér skyn, að eg megi læra boð þín.

Þeir, er óttast þig, sjá mig og gleðjast, því að eg vona á orð þitt.

Eg veit, Drottinn, að dómar þínir eru réttlátir og að þú hefir lægt mig af trúfesti.

Lát miskunn þína verða mér til huggunar, eins og þú hefir heitið þjóni þínum,

Lát miskunn þína koma yfir mig, að eg megi lifa, því að lögmál þitt er unun mín.

Lát ofstopamennina verða til skammar, af því að þeir kúga mig eg íhuga fyrirmæli þín. með rangsleitni;

Til mín snúi sér þeir, er óttast þig, og þeir, er þekkja reglur þínar.

Hjarta mitt sé grandvart í lögum þínum, svo að eg verði eigi til skammar.

Sál mín tærist af þrá eftir hjálpræði þínu, á þitt orð vona eg.

Augu mín tærast af þrá eftir fyrirheiti þínu og segja: Hve nær munt þú hugga mig?

Því að eg er orðinn eins og belgur í reyk, en lögum þínum hefi eg eigi gleymt.

Hversu margir eru dagar þjóns þíns? hve nær munt þú heyja dóm á ofsækjendum mínum?

Ofstopamenn hafa grafið mér grafir, menn, er eigi hlýða lögmáli þínu.

Öll boð þín eru trúfesti. Menn ofsækja mig með lygum, veit þú mér lið.

Nærri lá að þeir gjörðu út af við mig á jörðunni, og þó hafði eg eigi yfirgefið fyrirmæli þín.

Lát mig lífi halda eftir miskunn þinni, að eg megi varðveita reglurnar af munni þínum.

Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur fast eins og himininn;

frá kyni til kyns varir trúfesti þín; þú hefir grundvallað jörðina og hún stendur.

Eftir ákvæðum þínum standa þau enn í dag, því að alt lýtur þér.

Ef lögmál þitt hefði eigi verið unun mín, þá hefði eg farist í eymd minni.

Eg skal eigi gleyma fyrirmælum þínum að eilífu, því að með þeim hefir þú látið mig lifi halda.

Þinn er eg, hjálpa þú mér, því að eg leita fyrirmæla þinna.

Óguðlegir bíða mín, til þess að tortíma mér, en eg gef gætur að reglum þínum.

tí Á allri fullkomnun hefi eg séð endi, en þín boð eiga sér engin takmörk. ¥ ¥

Hve mjög elska eg lögmál þitt, liðlangan daginn íhuga eg það.

Boð þín hafa gjört mig vitrari en óvinir mínir eru, því að þau heyra mér til um eilifð.

Eg er hyggnari en allir kennarar mínir, því að eg íhuga reglur þínar.

Og er skynsamari en öldungar, því að eg held fyrirmæli þín.

Eg held fæti mínum frá hverjum vondum vegi, til þess að gæta orðs þíns.

Frá ákvæðum þínum hefi eg eigi vikið, því að þú hefir frætt mig.

Hversu sæt eru fyrirheit þín gómi mínum, hunangi framar munni mínum.

Af fyrirmælum þínum er eg skynsamur orðinn, fyrir því hata eg sérhvern lygaveg.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegi mínum.

Es hefi svarið og haldið það, að varðveita þín réttlátu ákvæði.

Eg er mjög beygður, Drottinn, lát mig lífi halda eftir orði þínu.

Haf þóknun á sjálfviljafórnum munns míns, Drottinn, og kenn mér ákvæði þín.

Og geng ætíð með lífið í lúkunum, en þínu lögmáli hefi eg eigi gleymt.

Óguðlegir hafa lagt snöru fyrir mig; en eg hefi eigi vilst frá fyrirmælum þínum.

Reglur þínar eru eign mín um aldur, því að þær eru yndi hjarta míns.

Eg hefi hneigt hjarta mitt að því, að breyta eftir lögum þínum, um aldur og alt til enda.

Es hata þá, er haltra til beggja hliða, en lögmál þitt elska eg.

Þú ert skjól mitt og skjöldur, eg vona á orð þitt.

Burt frá mér, þér bófar! að eg megi halda boð Guðs míns.

Styð mig samkvæmt fyrirheiti þínu, að eg megi lifa, og lát mig eigi til skammar verða í von minni.

Styð þú mig, að eg megi frelsast og ætíð lifa til laga þinna.

Þú hafnar öllum þeim, er villast frá lögum þínum, því að svik þeirra eru til einskis.

Sem sora metur þú alla óguðlega á jörðu, þess vegna elska eg reglur þínar.

Hold mitt nötrar af hræðslu fyrir þér, og dóma þína óttast eg.

ís hefi iðkað rétt og réttlæti, sel mig eigi í hendur kúgurum mínum.

Gakk í ábyrgð fyrir þjón þinn, honum til heilla, lát eigi ofstopamennina kúga mig.

Aygu mín tærast af þrá eftir hjálpræði þínu og eftir þínu réttláta fyrirheiti.

Bar með þjón þinn eftir miskunn þinni og kenn mér lög þín.

Es er þjónn þinn, veit mér skyn, að eg megi þekkja reglur þínar.

Pími er kominn fyrir Drottni, að taka í taumana, þeir hafa rofið lögmál þitt.

Þess vegna elska eg boð þín framar en gull og skíragull.

Þess vegna held eg beina leið eftir öllum fyrirmælum þínum, eg hata sérhvern lygaveg.

Reglur þínar eru dásamlegar, þess vegna heldur sál mín þær.

Vískýring orðs þíns upplýsir, gjörir fávísa vitra.

Eg opna munninn og stend á öndinni, því að eg þrái boð þín.

Snú þér til mín og ver mér náðugur, eins og ákveðið er þeim, er elska nafn þitt.

Gjör skref mín örugg með fyrirheiti þínu og lát ekkert ranglæti drotna yfir mér.

Leys mig undan kúgun manna, að eg megi varðveita fyrirmæli þín.

Fát ásjónu þína lýsa yfir þjón þinn og kenn mér lög þín.

Augu mín úthella vatnslækjum, af því að menn varðveita eigi lögmál þitt.

Réttlátur ert þú, Drottinn, og réttvísir dómar þínir.

Þú hefir skipað fyrir reglur þínar með réttlæti og mjög mikilli trúfesti.

Vandlæting mín hefir eytt mér, því að fjendur mínir hafa gleymt orðum þínum.

Orð þitt er mjög hreint og þjónn þinn elskar það.

Eg er lítilmótlegur og fyrirlitinn, en fyrirmælum þínum hefi eg eigi gleymt.

Réttlæti þitt er eilíft réttlæti og lögmál þitt trúfesti.

Neyð og hörmung hafa mér að höndum borið, en boð þín eru unun mín.

Reglur þínar eru réttlæti um eilífð, veit mér skyn, að eg megi lifa.

Eg kalla af öllu hjarta: bænheyr mig, Drottinn, eg vil halda lög þín.

Eg ákalla þig, hjálpa þú mér, að eg megi varðveita reglur þínar.

Es er á ferli fyrir dögun og hrópa og bíð orða þinna.

Áður en næturvökurnar byrja eru augu mín búin, til þess að íhuga orð þitt.

Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni, lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.

Þeir eru nærri, er ofsækja mig svívirðilega, þeir eru langt burtu frá lögmáli þínu.

Þú ert nálægur, Drottinn, og öll boð þín eru trúfesti.

Fyrir löngu hefi eg vitað um reglur þínar, að þú hefir grundvallað þær um eilífð.

Sjá þú eymd mína og frelsa mig, því að eg hefi eigi gleymt lögmáli þínu.

Flyt þú mál mitt og leys mig, lát mig lífi halda samkvæmt fyrirheiti þínu.

Hjálpræðið er fjarri óguðlegum, því að þeir leita eigi fyrirmæla þinna.

Mikil er miskunn þín, Drottinn, lát mig lífi halda eftir ákvæðum þínum.

Margir eru ofsækjendur mínir og fjendur, en frá reglum þínum hefi eg eigi vikið.

Eg sé trúrofana og kenni viðbjóðs, þá er eigi varðveita orð þitt.

Sjá, að eg elska fyrirmæli þín; lát mig lífi halda, Drottinn, eftir miskunn þinni.

Alt orð þitt samanlagt er trúfesti og hvert réttlætisákvæði þitt varir að eilífu.

Höfðingjar ofsækja mig að ástæðulausu, hjarta mitt óttast orð þín.

Eg gleðst yfir fyrirheiti þínu eins og sá, er fær mikið herfang.

Eg hata lygi og hefi andstygð á henni, en þitt lögmál elska eg.

Sjö sinnum á dag lofa eg þig, sakir þinna réttlátu ákvæða.

Gnótt friðar hafa þeir, er elska lögmál þitt, og þeim er við engri hrösun hætt.

Og vænti hjálpræðis þíns, Drottinn, og framkvæmi boð þín.

Sál mín varðveitir reglur þínar og þær elska eg mjög.

Es varðveiti fyrirmæli þín og reglur, því að allir mínir vegir eru þér augljósir.

Ó að hróp mitt mætti nálgast auglit þitt, Drottinn; veit mér skyn eftir orði þínu.

Ó að grátbeiðni mín mætti koma fyrir auglit þitt, frelsa mig samkvæmt fyrirheiti þínu.

Lof um þig skal streyma mér af vörum, því að þú kennir mér lög þín.

Þynga mín skal mæra orð þitt, því að öll boðorð þín eru réttlæti.

Hönd þín veiti mér lið, því að þín fyrirmæli hefi eg útvalið.

Eg þrái hjálpræði þitt, Drottinn, og lögmál þitt er unun mín.

Þát sál mína lifa, að hún megi lofa þig og dómar þínir veiti mér lið.

Es villist sem týndur sauður, leita þú þjóns þíns, því að þínum boðum hefi eg eigi gleymt.