Saltarinn 120Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 120

Helgifaraljóð. Eg ákalla Drottin í nauðum mínum og hann bænheyrir mig.

Drottinn, frelsa sál mína frá ljúgandi vörum, frá tælandi tungu.

Hversu mun fara fyrir þér nú og síðar,. þú tælandi tunga?

Örvar harðstjórans eru hvestar með glóandi gýfilkolum.

Vei mér, að eg dvel hjá Mesek, bý hjá tjöldum Kedars.

Nógu lengi hefir sál mín búið hjá þeim, er friðinn hata.

Þótt eg tali friðlega, á vilja þeir ófrið.