Dagatal

Föstudagurinn langi

Páskaþrenningin — heilögustu dagar ársins.

Páskaþrenningin · Vika 6

Litur dagsins er rauður — litur píslarvotta og hins Heilaga Anda.

Hvað þýðir það

Fastadagur — ein fullkomin máltíð þennan dag.

Föstudagur — hefð er fyrir því að neita sér um kjöt eða annað.

Lesa meira

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Tunga mín af hjarta hljóðihelgan leyndardóm um þann,líkam Krists og blessað blóðið,bót sem öllum heimi vann,konungs þjóða þá hins góðaþað á krossi' úr æðum rann.Síðstu nótt, þá sat að borðisjálfur Kristur bræðrum meðlögmáls gjörla eftir orði –engin máltíð dýrri' er séð –höndum hreinum sínum sveinumsig til fæðu gefa réð.Hold í brauði, blóð í vínibauð sitt væri Drottinn kær.Miskunn slík þótt manna' ei skínimyrkum skilning, trúum vær.Trúin eina hjarta hreinuhuggun, gleði' og styrkleik fær.Helgidóm svo háan allirheiðra skulum alla tíð.Gamlar lögmálsfórnir fallifyrir Drottins nýjum sið.Trúin mæta best má bætabrestinn skilnings kristnum lýð.Sönnum Guði, son getanda,syni getnum fyr'ir upphaf,huggaranum, helgum anda,hinum tveim sem kemur af,æ skal syngja sérhver tungasanna vegsemd, dýrð og lof. Amen.

Sálmur 51

Andstef · Guð þyrmdi ekki eigin Syni sínum heldur framseldi hann fyrir oss öll.

1Til söngstjórans. Sálmur Davíðs,

2þá er Natan spámaður kom til hans * eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu.

3Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar * afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi.

4Þvo mig hreinan af misgjörð minni * hreinsa mig af synd minni,

5því að ég þekki sjálfur afbrot mín * og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.

6Gegn þér einum hefi ég syndgað og gjört það sem illt er í augum þínum. Því ert þú réttlátur * er þú talar, hreinn, er þú dæmir.

7Sjá, sekur var ég, er ég varð til * syndugur, er móðir mín fæddi mig.

8Sjá, þú hefur þóknun á hreinskilni hið innra * og í fylgsnum hjartans kennir þú mér visku!

9Hreinsa mig með ísóp, svo að ég verði hreinn * þvo mig, svo að ég verði hvítari en mjöll.

10Lát mig heyra fögnuð og gleði * lát kætast beinin sem þú hefur sundurmarið.

11Byrg auglit þitt fyrir syndum * mínum og afmá allar misgjörðir mínar.

12Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð * og veit mér nýjan, stöðugan anda.

13Varpa mér ekki burt frá augliti þínu * og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.

14Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis * og styð mig með fúsleiks anda,

15að ég megi kenna afbrotamönnum vegu þína * og syndarar megi hverfa aftur til þín.

16Frelsa mig frá dauðans háska, Guð hjálpræðis míns * lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu.

17Drottinn, opna varir mínar * svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!

18Þú hefur ekki þóknun á sláturfórnum – annars mundi ég láta þær í té * og að brennifórnum er þér ekkert yndi.

19Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi * sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.

20Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar * reis múra Jerúsalem!

21Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn * þá munu menn bera fram uxa á altari þitt.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Guð þyrmdi ekki eigin Syni sínum heldur framseldi hann fyrir oss öll.

Sálmur — Hb 3, 2-4. 13a. 15-19 — Guð birtist til dóms

Andstef · Jesús Kristur elskaði oss og úthellti blóði sínu fyrir oss til að vér gætum þvegið burt syndir vorar.

2Drottinn, ég hefi heyrt boðskap þinn, ég er hræddur. Drottinn, endurnýja verk þitt áður en mörg ár líða * lát það verða kunnugt áður en mörg ár líða. Minnst þú miskunnar í reiðinni.

3Guð kemur frá Teman og Hinn heilagi frá Paranfjöllum. (Sela.) Tign hans þekur himnana * og af dýrð hans er jörðin full.

4Ljómi birtist eins og sólarljós, geislar stafa út frá hendi hans * og þar er hjúpurinn um mátt hans.

13Þú fer að heiman til þess að frelsa þjóð þína * til þess að hjálpa þínum smurða. Þú brýtur niður mæninn á húsi hins óguðlega, gjörir grundvöllinn beran niður á klöpp.

15Þú fer yfir hafið með hesta þína * yfir svelg mikilla vatna.

16Þegar ég heyrði það, titraði hjarta mitt, varir mínar skulfu við fregnina. Hrollur kom í bein mín * og ég varð skjálfandi á fótum, að ég yrði að bíða hörmungadagsins, uns hann rennur upp þeirri þjóð, er á oss ræðst.

17Þótt fíkjutréð blómgist ekki og víntrén beri engan ávöxt, þótt gróði olíutrésins bregðist og akurlöndin gefi enga fæðu * þótt sauðfé hverfi úr réttinni og engin naut verði eftir í nautahúsunum,

18þá skal ég þó gleðjast í Drottni * fagna yfir Guði hjálpræðis míns.

19Drottinn Guð er styrkur minn! Hann gjörir fætur mína sem * hindanna og lætur mig ganga eftir hæðunum. Til söngstjórans. Með strengjaleik.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Jesús Kristur elskaði oss og úthellti blóði sínu fyrir oss til að vér gætum þvegið burt syndir vorar.

Sálmur 147, 12-20

Andstef · Vér tignum kross þinn, ó Drottinn, og lofum og vegsömum heilaga upprisu þína, því að tré krossins hefur fært heiminum fögnuð.

12Vegsama Drottin, Jerúsalem * lofa þú Guð þinn, Síon,

13því að hann hefur gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum * blessað börn þín, sem í þér eru.

14Hann gefur landi þínu frið * seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.

15Hann sendir orð sitt til jarðar * boð hans hleypur með hraða.

16Hann gefur snjó eins og ull * stráir út hrími sem ösku.

17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola * hver fær staðist frost hans?

18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna * lætur vind sinn blása, og vötnin renna.

19Hann kunngjörði Jakob orð sitt * Ísrael lög sín og ákvæði.

20Svo hefur hann eigi gjört við neina þjóð * þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Vér tignum kross þinn, ó Drottinn, og lofum og vegsömum heilaga upprisu þína, því að tré krossins hefur fært heiminum fögnuð.

Stuttur ritningarlestur

Jes 52, 13-15Sjá, þjónn minn mun giftusamur verða, hann mun verða mikill og veglegur og mjög hátt upp hafinn. Eins og margir urðu agndofa af skelfingu yfir honum – svo afskræmd var ásýnd hans framar en nokkurs manns og mynd hans framar en nokkurs af mannanna sonum – eins mun hann vekja undrun margra þjóða, og konungar munu afturlykja munni sínum fyrir honum. Því að þeir munu sjá það, sem þeim hefir aldrei verið frá sagt, og verða þess áskynja, er þeir hafa aldrei heyrt.

Stutt svarvers

Í staðinn fyrir svarstefið er eftirfarandi texti lesinn:

Jesús Kristur lægði sig og varð hlýðinn allt til dauða, dauðans á krossi.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Yfir höfði hans festu þeir sakargift hans svo skráða: Jesús frá Nasaret, konungur Gyðinga.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Fyrir vora sök varð endurlausnari vor að þola dauðann, og hann var grafinn og reis upp aftur. Dýrkum hann af hjartans kærleika og biðjum:Drottinn, miskunna þú oss.Kristur, kennari vor, fyrir vora sök varst þú hlýðinn, jafnvel allt til dauða,kenndu oss að hlýða vilja Föðurins í öllum hlutum.Kristur líf vort, með dauða þínum á krossinum eyddir þú krafti illsku og dauða,megum vér deyja með þér til að rísa með þér í dýrð.Kristur, konungur vor, þú varst fyrirlitinn af oss, varst maðkur og eigi maður,kenndu oss auðmýktina sem þú frelsaðir heiminn með.Kristur, hjálpræði vort, þú gafst líf þitt í dauðann vegna elsku þinnar til vor,hjálpa oss að sýna hvert öðru kærleika þinn.Kristur, Frelsari vor, á krossinum tókst þú til þín alla menn með útréttum örmum þínum,kallaðu saman sundurdreifð börn Guðs í hjálpræðisríki þitt.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Faðir, snúðu þér að lýð þínum af kærleika, með kærleikanum sem Drottinn Jesús Kristur gaf oss, þegar hann lét illa menn taka sig höndum og leið þjáningar og dauðans angist á krossinum. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Ég krýp að lokum kvíðalaus við fæturþér, Kristur minn – og senn er líf mitt allt.Og lífsins brauðs ég neyti, nú er goldiðmeð naglasárum brot mitt þúsundfalt.Og senn hann kvaddi þá með hryggð í hjarta,með himindjúpa kvöl í brjósti sér,og krossinn bar hann, kærleikanum hlýðinn,– og kveikti sól, er lýsir mér og þér.Og föður sínum fól hann drauminn stóraum frið og líkn, og bað í hinsta sinnog hneigði andlit hljótt og sagði: Faðir,í hendur þínar fel ég anda minn.Á þriðja degi reis hann upp og áttienn orðastað við þá, sem biðu hans.Þeir vissu nú, að hann var Herrann sjálfurog holdi klæddur Guð í sporum manns.Og enn hann segir: Sjá, ég kem í skýjum,og sendir þá, er lúta ásýnd hans,að boða líkn og lífið í hans nafniog leiða saman vegu Guðs og manns.Og þó að páskahretin hurðir lemji,er hitt jafn víst, að sólin brýst í gegn.Í þessum heimi illra verka og óttaer ekkert það, sem honum er um megn.Svo heiti' eg loks á hurðir þínar, Jesús,ó, heyr þú mig, er stend ég þar við dyr.Ég kalla á þig og krýp í þínu nafni,ó, Kristur minn, sem barnið áður fyr. Amen.

Sálmur 116, 10-19

Andstef · Lítið með augum yðar, allar þjóðir, og sjáið þjáningar mínar.

10Ég trúði, þó ég segði * „Ég er mjög beygður.“

11Ég sagði í angist minni * „Allir menn ljúga.“

12Hvað á ég að gjalda Drottni * fyrir allar velgjörðir hans við mig?

13Ég lyfti upp bikar * hjálpræðisins og ákalla nafn Drottins.

14Ég greiði Drottni heit mín * og það í augsýn alls lýðs hans.

15Dýr er í augum * Drottins dauði dýrkenda hans.

16Æ, Drottinn, víst er ég þjónn þinn * ég er þjónn þinn, sonur ambáttar þinnar, þú leystir fjötra mína.

17Þér færi ég þakkarfórn * og ákalla nafn Drottins.

18Ég greiði Drottni heit mín * og það í augsýn alls lýðs hans,

19í forgörðum húss Drottins * í þér, Jerúsalem. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lítið með augum yðar, allar þjóðir, og sjáið þjáningar mínar.

Sálmur 143, 1-11

Andstef · Sál mín er í nauð, hjarta mitt er kvalið.

1Drottinn, heyr þú bæn mína * ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu.

2Gakk eigi í dóm við þjón þinn * því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.

3Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar * lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.

4Andi minn örmagnast í mér * hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.

5Ég minnist fornra daga * íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.

6Ég breiði út hendurnar í móti þér * sál mín er sem örþrota land fyrir þér. [Sela]

7Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér * svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.

8Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg * er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.

9Frelsa mig frá óvinum mínum * Drottinn, ég flý á náðir þínar.

10Kenn mér að gjöra vilja þinn * því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.

11Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns * leið sál mína úr nauðum sakir réttlætis þíns.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Sál mín er í nauð, hjarta mitt er kvalið.

Sálmur — Fil 2, 6-11 — Um Krist, þjónn Guðs

Andstef · Þegar Jesús hafði fengið edikið, sagði hann: Það er fullkomnað. Þá hneigði hann höfuðið og gaf upp andann.

6Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki * með það sem feng sinn að vera Guði líkur.

7Hann svipti sig öllu * tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur.

8Hann kom fram sem maður * lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi.

9Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið * sem hverju nafni er æðra,

10til þess að í nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni * jörðu og undir jörðu

11og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar * Jesús Kristur er Drottinn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þegar Jesús hafði fengið edikið, sagði hann: Það er fullkomnað. Þá hneigði hann höfuðið og gaf upp andann.

Stuttur ritningarlestur

1Pt 2, 21-24Kristur leið fyrir yður og lét yður eftir fyrirmynd, til þess að þér skylduð feta í hans fótspor. Hann drýgði ekki synd, og svik voru ekki fundin í munni hans. Hann illmælti eigi aftur, er honum var illmælt, og hótaði eigi, er hann leið, heldur gaf það í hans vald, sem réttvíslega dæmir. Hann bar sjálfur syndir vorar á líkama sínum upp á tréð, til þess að vér skyldum deyja frá syndunum og lifa réttlætinu. Fyrir hans benjar eruð þér læknaðir.

Stutt svarvers

Í staðinn fyrir svarstefið er eftirfarandi texti lesinn:

Jesús Kristur lægði sig og varð hlýðinn allt til dauða, dauðans á krossi.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Þegar vér vorum óvinir, sætti Guð oss við sig með dauða Sonar síns.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Fullkomnaðu Kirkju þína.Verndaðu páfa vorn N.Styrktu biskup vorn N.Vertu hjá samfélagi biskupa.Hjálpaðu heimilislausum mönnum.Svalaðu hungruðum.Lýstu blindum.Huggaðu gamalt fólk.Styrktu helgaðar meyjar.Kallaðu gyðingaþjóðina til hins nýja sáttmála.Veittu löggjöfum visku.Gefðu styrk mönnum í freistni.Leiddu látna í hið eilífa ljós.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Faðir, snúðu þér að lýð þínum af kærleika, með kærleikanum sem Drottinn Jesús Kristur gaf oss, þegar hann lét illa menn taka sig höndum og leið þjáningar og dauðans angist á krossinum. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Þú, Jesús, lífsins lindin bestþú ljós og yndi sálna mestþú betra hverri býður þrájá, betra' en allt, sem hugsast má.Ó, hve mín þrá er heit til þínæ, hvenær muntu vitja mín.Æ, hvenær fögnuð hlýt ég þinnæ, hvenær saðning, Jesús minn?Ég fylgi, Jesús, þangað þérei þig fær skilið neitt frá mérþú hefur tekið hjartað mittþað hjá þér dvelur og er þitt.Þig lofar allur himins herog helga vegsemd greiðir þér.Þú, gleðin heims, þú gafst oss friðvorn Guð og föður sjálfan við.Þig lofi, Jesús, líf og sálþig lofi tunga' og hjartans mál.Í trú vér biðjum: Til þín innoss tak þú alla' í himin þinn. Amen.

Sálmur 91

Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.

1Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta * sá er gistir í skugga Hins almáttuga,

2sá er segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg * Guð minn, er ég trúi á!“

3Hann frelsar þig úr snöru fuglarans * frá drepsótt glötunarinnar,

4hann skýlir þér með fjöðrum sínum * undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.

5Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar * eða örina, sem flýgur um daga,

6drepsóttina, er reikar um í dimmunni * eða sýkina, er geisar um hádegið.

7Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar * þá nær það ekki til þín.

8Þú horfir aðeins á með augunum * sér hversu óguðlegum er endurgoldið.

9Þitt hæli er Drottinn * þú hefur gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.

10Engin ógæfa hendir þig * og engin plága nálgast tjald þitt.

11Því að þín vegna býður hann út englum sínum * til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.

12Þeir munu bera þig á höndum sér * til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.

13Þú skalt stíga ofan á ljón og nöðrur * troða fótum ung ljón og dreka.

14„Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann * ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.

15Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann * ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.

16Ég metta hann með fjöld lífdaga * og læt hann sjá hjálpræði mitt.“

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hann mun hylja þig með vængjum sínum, þú munt eigi óttast ógnir næturinnar.

Stuttur ritningarlestur

Opb 22, 4-5Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.

Stutt svarvers

Í staðinn fyrir svarstefið er eftirfarandi texti lesinn:

Jesús Kristur lægði sig og varð hlýðinn allt til dauða, dauðans á krossi.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Drottinn, vér biðjum þig að vitja þessa húss, og halda snörum óvinarins fjarri því. Megi heilagir englar þínir dvelja hér og varðveita oss í friði og lát blessun þína ávallt hvíla yfir oss. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007