Miðvikudagur í dymbilviku
Dymbilvika — vikan fyrir páska.
Langafasta · Vika 6Litur dagsins er fjólublár — litur undirbúnings og iðrunar.
Lesa meiraLestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Jesaja 50:4-9a
- Davíðssálmur
- Sálmur 69:8-10, 21-22, 31 og 33-34
- Guðspjall
- Matteusarguðspjall 26:14-25
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Við kross þinn, Jesús, jafnan vil ég mér hæli fá.Þar hellubjargið best ég finn, sem byggt ég traust get á.Það hæli er í eyðimörksvo ágæt höfn og blíð,þar sem reika' eg einn um ókunn löndgegnum angist, neyð og stríð.Ó, hjálp í sálarhrelling, ó, hæli, sem ég fann,við krossinn fagra frelsarans, þar frið ég sálu vann.Sem Jakob nætur sá í sýnupp sólar ljúkast hvel,get ég stigann séð frá krossi Krists,þar í kærleiks von ég dvel.En skammt frá krossins skugga ég skelfdur gröf sé nær,og dimm og geigvæn dauðans nótt þar drunga yfir slær.En nær mér stendur krosstákn Kristsí kærleiks ljóma fáð,eins og stjarna yfir villuveg,þar mér veitist ljós og náð.Og oft ég lít í anda Guðs einkason á krossvið dauðans berjast dimmu kvöl og dreyra renna foss.Ó, hvílíkt undur, ást og náð,sjá andans dýrsta hnoss,fyrir mig að ljúfur lausnarinnvildi líða dauða' á kross.Til kross þíns, kæri Jesús, ég kom og hlaut þar frið,því aldrei ég í huga hef það hæli' að skiljast við.Og hvað sem býður heimur mér,ég hismi met og tál,en ég hrósa mér af krossi Krists,þar Guðs kærleik vann mín sál. Amen.
Sálmur 77
Andstef · Þegar ég er í nauðum, rétti ég út hendur mínar og leita Drottins.
1Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Asafs–sálmur.
2Ég kalla til Guðs og hrópa * kalla til Guðs, að hann megi heyra til mín.
3Þegar ég er í nauðum, leita ég Drottins * rétti út hendur mínar um nætur og þreytist ekki, sál mín er óhuggandi.
4Ég minnist Guðs og kveina * ég styn, og andi minn örmagnast. [Sela]
5Þú heldur uppi augnalokum mínum * mér er órótt og ég má eigi mæla.
6Ég í huga fyrri daga * ár þau sem löngu eru liðin,
7ég minnist strengjaleiks míns um nætur * ég hugleiði í hjarta mínu, og andi minn rannsakar.
8Mun Drottinn þá útskúfa um * eilífð og aldrei framar vera náðugur?
9Er miskunn hans lokið um eilífð * fyrirheit hans þrotin um aldir alda?
10Hefur Guð gleymt að sýna líkn * byrgt miskunn sína með reiði? [Sela]
11Þá sagði ég: „Þetta er kvöl mín * að hægri hönd Hins hæsta hefur brugðist.“
12Ég víðfrægi stórvirki Drottins * ég vil minnast furðuverka þinna frá fyrri tíðum,
13ég íhuga allar athafnir þínar * athuga stórvirki þín.
14Guð, helgur er vegur þinn * hver er svo mikill Guð sem Drottinn?
15Þú ert Guð, sá er furðuverk gjörir * þú hefur kunngjört mátt þinn meðal þjóðanna.
16Með máttugum armlegg frelsaðir þú lýð þinn * sonu Jakobs og Jósefs. [Sela]
17Vötnin sáu þig, ó Guð * vötnin sáu þig og skelfdust, og undirdjúpin skulfu.
18Vatnið streymdi úr skýjunum * þrumuraust drundi úr skýþykkninu, og örvar þínar flugu.
19Reiðarþrumur þínar kváðu við * leiftur lýstu um jarðríki, jörðin skalf og nötraði.
20Leið þín lá gegnum hafið, stígar þínir gegnum mikil vötn * og spor þín urðu eigi rakin.
21Þú leiddir lýð þinn eins * og hjörð fyrir Móse og Aron.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þegar ég er í nauðum, rétti ég út hendur mínar og leita Drottins.
Sálmur — 1 S 2, 1-10 — Hinn fátæki gleðst í Drottni
Andstef · Ef vér erum með Kristi dánir, trúum vér því, að vér og munum með Kristi lifa.
1Hanna gjörði bæn sína og mælti: Hjarta mitt fagnar í Drottni * horn mitt er hátt upp hafið fyrir fulltingi Drottins. Munnur minn er upp lokinn gegn óvinum mínum, því að ég gleðst yfir þinni hjálp.
2Enginn er heilagur sem Drottinn, því að enginn er til nema þú * ekkert bjarg er til sem vor Guð.
3Mælið eigi án afláts drambyrði, ósvífni komi eigi út af munni yðar. Því að Drottinn er Guð * sem allt veit, og af honum eru verkin vegin.
4Bogi kappanna er sundur brotinn * en máttfarnir menn gyrðast styrkleika.
5Mettir leigja sig fyrir brauð, en hungraðir njóta hvíldar. Óbyrjan fæðir jafnvel sjö * en margra barna móðirin mornar og þornar.
6Drottinn deyðir og lífgar * færir til Heljar niður og leiðir upp þaðan.
7Drottinn gjörir fátækan og ríkan * niðurlægir og upphefur.
8Hann reisir hinn lítilmótlega úr duftinu, lyftir hinum snauða upp úr skarninu * leiðir þá til sætis hjá þjóðhöfðingjum og setur þá á tignarstól. Því að Drottinn heyra stólpar jarðarinnar, á þá setti hann jarðríkið.
9Fætur sinna guðhræddu varðveitir hann, en hinir guðlausu farast í myrkri * því að fyrir eigin mátt sigrar enginn.
10Þeir sem berjast móti Drottni, verða sundur molaðir * hann lætur þrumur af himni koma yfir þá. Drottinn dæmir endimörk jarðarinnar. Hann veitir kraft konungi sínum og lyftir upp horni síns smurða.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ef vér erum með Kristi dánir, trúum vér því, að vér og munum með Kristi lifa.
Sálmur 97
Andstef · Kristur Jesús er orðinn oss vísdómur frá Guði, bæði réttlæti, helgun og endurlausn.
1Drottinn er konungur orðinn! jörðin fagni * eyjafjöldinn gleðjist.
2Ský og sorti eru umhverfis hann * réttlæti og réttvísi eru grundvöllur hásætis hans,
3eldur fer fyrir honum * og bálast umhverfis spor hans.
4Leiftur hans lýsa um jarðríki * jörðin sér það og nötrar.
5Björgin bráðna sem vax fyrir Drottni * fyrir Drottni gjörvallrar jarðarinnar.
6Himnarnir kunngjöra réttlæti hans * og allar þjóðir sjá dýrð hans.
7Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar * þeir er stæra sig af falsguðunum. Allir guðir falla fram fyrir honum.
8Síon heyrir það og gleðst * Júdadætur fagna sakir dóma þinna, Drottinn.
9Því að þú, Drottinn, ert Hinn hæsti yfir gjörvallri jörðunni * þú ert hátt hafinn yfir alla guði.
10Drottinn elskar þá er hata hið illa * hann verndar sálir dýrkenda sinna, frelsar þá af hendi óguðlegra.
11Ljós rennur upp * réttlátum og gleði hjartahreinum.
12Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni * vegsamið hans heilaga nafn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Kristur Jesús er orðinn oss vísdómur frá Guði, bæði réttlæti, helgun og endurlausn.
Stuttur ritningarlestur
Jes 50, 5-7Hinn alvaldi Drottinn opnaði eyra mitt, og ég þverskallaðist eigi, færðist ekki undan. Ég bauð bak mitt þeim, sem börðu mig, og kinnar mínar þeim, sem reyttu mig. Ég byrgði eigi ásjónu mína fyrir háðungum og hrákum. Drottinn hinn alvaldi hjálpar mér, því lét ég ekki háðungarnar á mér festa. Fyrir því gjörði ég andlit mitt að tinnusteini, því að ég veit, að ég verð ekki til skammar.
Stutt svarvers
Þú hefur endurleyst oss, Drottinn, * með blóði þínu.
Þú hefur endurleyst oss, Drottinn, * með blóði þínu.
Af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.
Með blóði þínu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Þú hefur endurleyst oss, Drottinn, * með blóði þínu.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Fyrir hinn eilífa Anda fórnfærði Kristur sjálfum sér Guði sem hin fullkomna fórn. Blóð hans hreinsar oss af syndum vorum og gerir oss verðug þess að þjóna hinum lifanda Guði.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Elskuðu bræður (og systur), biðjum til Krists, Frelsara vors, sem endurleysti oss með blóði sínu og upprisu:Drottinn, miskunna þú oss.Þú fórst upp til Jerúsalem til að þjást og gekkst þannig inn í dýrð þína,færðu Kirkju þína til hinnar himnesku páskahátíðar.Þú varst hafinn upp á krossinum og stunginn með spjóti hermannsins,græddu sár vor.Þú gjörðir krossinn að lífsins tré,gefðu ávexti þess til þeirra sem endurfæddir verða í skírninni.Á krossinum fyrirgafst þú hinum iðrandi ræningja,fyrirgef oss syndir vorar.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú vildir að Sonur þinn gengist undir ok krossins fyrir oss, til að þú upprættir úr oss vald óvinarins. Gef oss þjónum þínum að öðlast náð upprisunnar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Fyrst boðar Guð sitt blessað náðarorðið,svo býður hann sitt ríka kærleiksborðiðog sendir einkason sinn til að kallatil sinnar kvöldmáltíðar alla – alla.En fyrsti' og annar afsökunar biðja,og eins fer fyrir boðsmanninum þriðja,og það er kunngjört Herra hefðarríkum,að heimsins börn ei sinni boðskap slíkum.Þá spyr hann að, hvort veikir ekki vilji,hvort volaðir og blindir ekki skilji,þá býður hann þeim bjargarlausu' og snauðu,þeim breysku, særðu, föllnu, týndu' og dauðu.Hvert orð er sterkast? Orðið hans, er kallar.Sjá, einnig dauðir ganga lífs til hallar,þeir koma' í hópum, heimurinn sem smáir,en Herrann segir: "Þeir eru' enn of fáir."Hann býður ennþá: "Farið, laðið, leiðið,og leitið, kallið, biðjið, þrýstið, neyðið,mitt kærleiks djúp á himins víðar hallir,í húsi mínu rúmast allir – allir."Fyrst kallar Guð, en bregðist þú því boði,þá biður Guð, og þó að hvorugt stoði,þá þrýstir Guð, og það er síðsta orðið,ef því er neitað, hræðstu sálar morðið!Ó, Drottinn, þú, sem býður, biður, neyðir,ég blindur er, en sonur þinn mig leiðirfrá synd og hættum gegnum dauðans dalinn,í dýrðar þinnar fagra gleðisalinn. Amen.
Sálmur 62
Andstef · Guðlausir sögðu: Vér skulum sitja um hinn réttláta því að hann er andstæður verkum vorum.
1Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Davíðssálmur.
2Bíð róleg eftir Guði, sála mín * frá honum kemur hjálpræði mitt.
3Hann einn er klettur minn og hjálpræði * háborg mín – ég verð eigi valtur á fótum.
4Hversu lengi ætlið þér að ryðjast allir saman gegn einum manni * til að fella hann eins og hallan vegg, eins og hrynjandi múr?
5Þeir ráðgast um það eitt að steypa honum úr tign hans * þeir hafa yndi af lygi, þeir blessa með munninum, en bölva í hjartanu. [Sela]
6Bíð róleg eftir Guði, sála mín * því að frá honum kemur von mín.
7Hann einn er klettur minn og hjálpræði * háborg mín – ég verð eigi valtur á fótum.
8Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd * minn örugga klett og hæli mitt hefi ég í Guði.
9Treyst honum, allur þjóðsöfnuðurinn, úthellið hjörtum yðar fyrir honum * Guð er vort hæli. [Sela]
10Hégóminn einn eru mennirnir, tál eru mannanna börn * á metaskálunum lyftast þeir upp, einber hégómi eru þeir allir saman.
11Treystið eigi ránfeng og alið eigi fánýta von til rændra muna * þótt auðurinn vaxi, þá gefið því engan gaum.
12Eitt sinn hefur Guð talað * tvisvar hefi ég heyrt það: „Hjá Guði er styrkleikur.“
13Já, hjá þér, Drottinn, er miskunn * því að þú geldur sérhverjum eftir verkum hans.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Guðlausir sögðu: Vér skulum sitja um hinn réttláta því að hann er andstæður verkum vorum.
Sálmur 95
Andstef · Hann bar syndir margra og bað fyrir illræðismönnum.
1Komið, fögnum fyrir Drottni * látum gleðióp gjalla fyrir kletti hjálpræðis vors.
2Komum með lofsöng fyrir auglit hans * syngjum gleðiljóð fyrir honum.
3Því að Drottinn er mikill Guð * og mikill konungur yfir öllum guðum.
4Í hans hendi eru jarðardjúpin * og fjallatindarnir heyra honum til.
5Hans er hafið, hann hefur skapað það * og hendur hans mynduðu þurrlendið.
6Komið, föllum fram og krjúpum niður * beygjum kné vor fyrir Drottni, skapara vorum,
7því að hann er vor Guð, og vér erum gæslulýður hans og hjörð sú * er hann leiðir. Ó að þér í dag vilduð heyra raust hans!
8Herðið eigi hjörtu yðar eins og hjá Meríba * eins og daginn við Massa í eyðimörkinni,
9þegar feður yðar freistuðu mín * reyndu mig, þótt þeir sæju verk mín.
10Í fjörutíu ár hafði ég viðbjóð á þessari kynslóð, og ég sagði * „Þeir eru andlega villtur lýður og þekkja ekki vegu mína.“
11Þess vegna sór ég í reiði minni * „Þeir skulu eigi ganga inn til hvíldar minnar.“
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hann bar syndir margra og bað fyrir illræðismönnum.
Sálmur — Kól 1, 12-20 — Kristur er frumburður allrar sköpunar og frumburður frá dauðum
Andstef · Í Kristi höfum vér fundið lausn, fyrir blóð hans, fyrirgefningu synda vorra.
12þakkað föðurnum, sem hefur gjört yður hæfa til * að fá hlutdeild í arfleifð heilagra í ljósinu.
13Hann hefur frelsað oss frá valdi myrkursins og * flutt oss inn í ríki síns elskaða sonar.
14Í honum eigum vér endurlausnina * fyrirgefningu synda vorra.
15Hann er í mynd hins ósýnilega Guðs * frumburður allrar sköpunar.
16Enda var allt skapað í honum í himnunum og á jörðinni, hið sýnilega og hið ósýnilega * hásæti og herradómar, tignir og völd. Allt hefur verið skapað í gegnum hann og fyrir hann.
17Hann er fyrri en allt * og allt á tilveru sína í honum.
18Og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar, hann sem er upphafið * frumburðurinn frá hinum dauðu. Þannig skyldi hann verða fremstur í öllu.
19Því að í honum þóknaðist Guði * að láta alla fyllingu sína búa
20og láta hann koma öllu í sátt við sig, öllu bæði á jörðu og himnum * með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Í Kristi höfum vér fundið lausn, fyrir blóð hans, fyrirgefningu synda vorra.
Stuttur ritningarlestur
Ef 4, 32 — 5, 2Verið góðviljaðir hver við annan, miskunnsamir, fúsir til að fyrirgefa hver öðrum, eins og Guð hefur í Kristi fyrirgefið yður. Verðið því eftirbreytendur Guðs, svo sem elskuð börn hans. Lifið í kærleika, eins og Kristur elskaði oss og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir oss svo sem fórnargjöf, Guði til þægilegs ilms.
Stutt svarvers
Vér tilbiðjum þig, Kristur, * og vegsömum þig.
Vér tilbiðjum þig, Kristur, * og vegsömum þig.
Því að með krossi þínum hefur þú endurleyst heiminn.
Og vegsömum þig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Vér tilbiðjum þig, Kristur, * og vegsömum þig.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Meistarinn segir: Minn tími er í nánd, hjá þér vil ég halda páska með lærisveinum mínum.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Bjarga þú lýð þínum, Drottinn.Endurnýjaðu Kirkju þína ævinlega.Umvefðu páfa N. með gjöfum þínum.Hjálpaðu biskupi vorum N.Varðveittu þjóðir í friði.Vertu viðstaddur á öllum heimilum.Minnstu samfélags vors.Styddu réttlæti.Blessaðu uppskeru bændanna.Vertu nálægur ferðamönnum.Stattu með listamönnum.Styrktu ekkjur.Gef látnum eilíft líf.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú vildir að Sonur þinn gengist undir ok krossins fyrir oss, til að þú upprættir úr oss vald óvinarins. Gef oss þjónum þínum að öðlast náð upprisunnar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Þú, Jesús, lífsins lindin bestþú ljós og yndi sálna mestþú betra hverri býður þrájá, betra' en allt, sem hugsast má.Ó, hve mín þrá er heit til þínæ, hvenær muntu vitja mín.Æ, hvenær fögnuð hlýt ég þinnæ, hvenær saðning, Jesús minn?Ég fylgi, Jesús, þangað þérei þig fær skilið neitt frá mérþú hefur tekið hjartað mittþað hjá þér dvelur og er þitt.Þig lofar allur himins herog helga vegsemd greiðir þér.Þú, gleðin heims, þú gafst oss friðvorn Guð og föður sjálfan við.Þig lofi, Jesús, líf og sálþig lofi tunga' og hjartans mál.Í trú vér biðjum: Til þín innoss tak þú alla' í himin þinn. Amen.
Sálmur 31, 2-6
Andstef · Drottinn, ver verndari minn og hæli.
2Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis * lát mig aldrei verða til skammar. Bjarga mér eftir réttlæti þínu,
3hneig eyru þín til mín, frelsa mig í skyndi * ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar.
4Því að þú ert bjarg mitt og vígi * og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér.
5Þú munt draga mig úr neti því * er þeir lögðu leynt fyrir mig, því að þú ert vörn mín.
6Í þínar hendur fel ég anda minn * þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð!
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn, ver verndari minn og hæli.
Sálmur 130
Andstef · Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn.
1Úr djúpinu ákalla * ég þig, Drottinn,
2Drottinn, heyr þú raust mína * lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína!
3Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum * Drottinn, hver fengi þá staðist?
4En hjá þér er fyrirgefning * svo að menn óttist þig.
5Ég vona á Drottin, sál mín vonar * og hans orðs bíð ég.
6Meir en vökumenn morgun * vökumenn morgun, þreyr sál mín Drottin.
7Ó Ísrael, bíð þú Drottinn, því að hjá Drottni er miskunn * og hjá honum er gnægð lausnar.
8Hann mun leysa Ísrael * frá öllum misgjörðum hans.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. Ef 4, 26-27Ef þér reiðist, þá syndgið ekki. Sólin má ekki setjast yfir reiði yðar. Gefið djöflinum ekkert færi.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Drottinn, Jesús Kristur, mildur og af auðmjúku hjarta, þú býður þeim er fylgja þér, ok sem er ljúft og létta byrði. Vér biðjum þig að þiggja bænir og störf þessa dags og veit oss hvíldina sem vér þörfnumst svo að á morgun vér verðum enn viljugri að þjóna þér, sem lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007