Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Til helgisöngs. Liljulag. Daviðs-sálmur.
Hjálpa mér, ó Guð, því að vötnin ætla að sálga mér.
Eg er sokkinn niður í botnlausa leðju og hefi enga fótfestu, eg er kominn ofan í vatnadjúp og bylgjurnar ganga yfir mig.
Eg hefi æpt mig þreyttan, er orðinn brennandi þar í kverkunum, augu mín eru döpruð orðin af að þreyja eftir Guði mínum.
Fleiri en hárin á höfði mér eru þeir, er hata mig að ástæðulausu, fleiri en bein mín þeir, sem án saka eru óvinir mínir; því, sem eg hefi eigi rænt, hefi eg samt orðið að skila aftur.
Þú, Guð, þekkir heimsku mína og sakir mínar dyljast þér eigi.
Lát eigi þá, er vona á þig, verða til skammar mín vegna, ó Drottinn, Drottinn hersveitanna, lát eigi þá, er leita þín, verða til svívirðingar mín vegna, þú Guð Ísraels.
Því að þín vegna ber eg háðung, þín vegna hylur svívirðing auglit mitt.
Eg er ókunnur orðinn bræðrum mínum og óþektur sonum móður minnar,
af því að vandlæting vegna húss þíns hefir uppetið mig og smánanir þeirra, er smána þig, hafa lent á mér.
Eg hefi þjáð mig með föstu, en það varð mér út háðungar;
eg gjörði hærusekk að klæðnaði mínum, og eg varð þeim að orðskvið;
þeir, er sitja í hliðinu, ræða um mig, og þeir, er drekka áfengan drykk, syngja um mig.
En eg — bæn mín komi fyrir þig, Drottinn, ver mér náðugur sakir þinnar miklu miskunnar, bænheyr mig sakir þinnar hjálpandi trúfesti.
Drag mig upp úr leðjunni, svo að eg sökkvi eigi, lát mig björgun hljóta frá hatursmönnum mínum og úr hafdjúpinu.
Lát eigi vatnsbylgjurnar ganga yfir mig, né djúpið svelgja mig, og lát eigi brunninn lykja aftur op sitt yfir mér.
Bænheyr mig, Drottinn, sakir gæzku náðar þinnar, snú þér að mér eftir mikilleik miskunnar þinnar,
Og hyl eigi auglit þitt fyrir þjóni þínum, því að eg er í nauðum staddur, flýt þér að bænheyra mig.
Nálgast sál mína, leys hana, frelsa mig sakir óvina minna.
þú þekkir háðung mína og skömm og svívirðing, allir fjendur mínir standa þér fyrir sjónum.
Háðungin kremur hjarta mitt, svo að eg örvænti; eg vonaði að einhver mundi sýna meðaumkun, en þar var enginn, og að einhverjir mundu hugga, en fann engan.
Þeir fengu mér malurt til matar, og við þorstanum gáfu þeir mér vínsýru að drekka.
Svo verði þá borðið fyrir framan þá að snöru, og að gildru fyrir þá, sem ugglausir eru.
Myrkvist augu þeirra, svo að þeir sjái eigi, og lát lendar þeirra ávalt riða;
hell þú heift þinni yfir þá og lát þína brennandi reiði ná þeim.
Búðir þeirra verði eyddar og enginn búi í tjöldum þeirra,
því að þann, sem þú hefir lostið, ofsækja þeir og auka þjáningar þeirra, er þú hefir gegnumstungið.
Bæt sök við sök þeirra og lát þá eigi ganga inn í réttlæti þitt;
verði þeir afmáðir úr bók lifenda, og eigi skráðir með réttlátum.
En eg er volaður og þjáður, hjálp þín, ó Guð, mun Þjarga mér.
Eg vil lofa nafn Guðs í ljóði og mikla það í lofsöng;
það mun Drottinn líka betur en uxar, ungneyti með hornum og klaufum.
Hinir auðmjúku sjá það og gleðjast; þér sem leitið Guðs — hjörtu yðar lifni við.
Því að Drottinn hlustar á aumingjana og fyrirlítur eigi bandingja sína.
Hann skulu lofa himinn og jörð, höfin og alt, sem í þeim hrærist.
Því að Guð veitir Zion hjálp og reisir við Júdaborgir, og menn skulu búa þar og fá landið til eignar,
og niðjar þjóna hans munu erfa það, og þeir, er elska nafn hans, byggja þar.