Saltarinn 68Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 68

Til helgisöngs. Davíðs-sálmur. Ljóð.

Guð rís upp, óvinir hans tvístrast og hatursmenn hans flýja fyrir augliti hans.

Eins og reykur eyðist, eyðast þeir; eins og vax bráðnar í eldi, tortímast óguðlegir fyrir augliti Guðs.

En réttlátir gleðjast, fagna fyrir augliti Guðs og kætast stórum.

Syngið fyrir Guði, vegsamið nafn hans, leggið braut fyrir hann, er ekur gegnum öræfin,; Jah heitir hann, fagnið fyrir augliti hans,

sem er faðir föðurlausra, vörður ekknanna, Guð í sínum heilaga bústað.

Guð lætur hina einmana hverfa heim aftur, hann leiðir hina fjötruðu út til hamingju, en aðeins þverbrotnir menn búa í þurru landi.

Ó Guð, þegar þú fórst út á undan lýð þínum, þegar þú brunaðir fram um öræfin, sela,

þá nötraði jörðin, og himnarnir drupu fyrir Guði, fyrir Guði, Ísraels Guði.

Ríkulegu regni dreyptir þú, ó Guð, á arfleifð þína, það, sem vanmegnaðist, styrktir þú.

Staðinn, þar sem söfnuður þinn dvelur, býr þú hinum voluðu, ó Guð, sakir gæzku þinnar.

Drottinn lætur orð sín rætast, þær, sem sigur boða, eru mikill ber.

Konungar hersveitanna flýja, þeir flýja, en hún, sem heima situr, skiftir herfangi.

Hvort viljið þér liggja milli fjárgirðinganna? Vængir dúfunnar eru lagðir silfri og fjaðrir hennar íbleiku gulli.

Þegar hinn Almátki tvístraði konungunum, þá snjóaði á Zalmon.

Guðs fjall er Basanfjall, tindafjall er Basanfjall;

hví lítið þér, tindafjöll, öfundarauga það fjall, er Guð hefir kjörið sér til bústaðar, þar sem Drottinn samt mun búa um eilífð?

Hervagnar Guðs eru tíþúsundir, þúsundir á þúsundir ofan; Drottinn kom frá Sínaí í heilagleik.

Þú steigst upp til hæða, hafðir á burt bandingja, tókst við gjöfum meðal mannanna, og þverbrotnir menn skulu einnig búa hjá Jah Guði.

Lofaður sé Drottinn, er ber oss dag eftir dag; Guð er hjálpráð vort. Sela.

guð er oss hjálpræðisguð, og Drottins Guðs bjargar frá dauðanum.

Já Guð sundurmolar höfuð óvina sinna, hvirfil hins óguðlega, er gengur í sekt sinni.

Drottinn hefir sagt: Eg leiði þá heim aftur frá Basan, leiði þá heim aftur frá djúpi hafsins,

að þú megir lauga fót þinn í blóði, að tungur hunda þinna megi fá sinn hlut af óvinunum.

Menn horfðu á för þína, ó Guð, för Guðs míns og konungs í heilagleik.

Söngvarar eru í fararbroddi, þá strengleikarar, ásamt yngismeyjum, er berja bumbur.

yLofið Guð á samkomunum, lofið Drottin, þér sem eruð af uppsprettu Ísraels.

Þar er Benjamín litli, er ríkir yfir þeim, höfðingjar Júda í þyrpingu, höfðingjar Sebúlons, höfðingjar Naftali.

Bjóð út, ó Guð, styrkleik þínum, gjör styrkt, ó Guð, það, sem þú hefir gjört fyrir oss.

Sakir þíns heilaga musteris skulu konungar færa þér gjafir til Jerúsalem.

Kúga þú dýrið í sefinu, uxaflokkana ásamt þjóðkálfunum, þeim er mætur hafa á silfri; tvístra þjóðum, er unna ófriði.

Það koma sendiherrar frá Egiptalandi, Bláland færir Guði gjafir hröðum höndum.

Þér konungsríki jarðar, syngið Guði, syngið drotni lof, sela,

honum sem ekur um hinn eldgamla himingeim; hann lætur raust sína, hina voldugu raust, gjalla.

Tjáið Guði dýrð; yfir Ísrael er hátign hans og máttur hans í skýjunum.

Ógurlegur er Guð í helgidómi sínum, Ísraels Guð, hann veitir lýðnum mátt og megin. Lofaður sé Guð!