Saltarinn 67Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 67

Til helgisöngs. Með strengjaleik. Sálmur. Ljóð.

Guð sé oss náðugur og blessi oss; hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor, sela,

svo að þekkja megi veg þinn á jörðunni á og hjálpræði þitt meðal allra þjóða.

Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa;

gleðjast og fagna skulu þjóðirnar, því að þú dæmir lýðina réttvíslega og leiðir þjóðirnar á jörðunni. Sela.

Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa.

Jörðin hefir gefið ávöxt sinn, Guð, vor Guð, blessar oss.

Guð blessi oss, svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann.