Saltarinn 66Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 66

Til helgisöngs. Ljóð. Sálmur. Fagnið fyrir Guði, gjörvalt jarðríki,

syngið um dýrð nafns hans, gjörið lofstír hans vegsamlegan.

Mælið til Guðs: Hversu óttaleg eru verk þín, sakir mikilleiks máttar þíns hræsna óvinir þínir fyrir þér.

Öll jörðin lúti þér og lofsyngi þér, lofsyngi nafni þínu. Sela.

Komið og sjáið verkin Guðs, sem er óttalegur í breytni sinni gagnvart mönnunum;

Shann breytir hafinu í þurlendi, svo að þeir fara fótgangandi yfir voginn; þá glöddumst vér yfir honum.

Hann ríkir um eilífð sakir veldis síns, augu hans gefa gætur að þjóðunum, uppreistarmenn mega eigi láta á sér bæra. Sela.

Þér lýðir, lofið Guð vorn og látið hljóma lofsöng um hann;

hann sem veitti sálum vorum lífið og lét oss eigi verða valta á fótum.

Því að þú hefir rannsakað oss, ó Guð, hreinsað oss, eins og silfur er hreinsað,

Þú hefir varpað oss í fangelsi, lagt byrði á lendar vorar.

Þú hefir látið menn ganga yfir höfuð vor, vér höfum farið gegnum eld og vatn, en nú hefir þú leitt oss út á víðan vang.

Eg kem í hús þitt með brennifórnir, efni heit mín við þig,

bar er varir mínar hétu og munnur minn nefndi, þá er eg var í nauðum staddur.

Eg færi þér brennifórn af feitum dýrum, ásamt fórnarilm af hrútum, eg fórna nautum og höfrum. Sela.

Komið, hlýðið til, allir þér er óttist Guð, að eg megi segja frá, hvað hann hefir gjört fyrir sál mína.

hans hrópaði eg með munni mínum, en lofgjörð lá undir tungu minni.

Ef eg hygg á út í hjarta mínu, þá heyrir Drottinn ekki.

En Guð hefir heyrt, gefið gaum að bænarópi mínu.

Lofaður sé Guð, er eigi vísaði bæn minni á bug, né dró miskunn sína í hlé við mig.